Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1995, Page 29

Bjarmi - 01.12.1995, Page 29
AF VETTVANGI Helga Vilborg Sigurjónsdóttir á spjalli viö einn þátttakenda á tröppum ráðstefnuhússins. boðnar velkomnar í fjölskyldu IFES. Athygli mína á þessum kynningum vöktu tveir þátttakendur frá Eþíópíu, en eþíópska skólahreyfingin, sem var stofnuð 1974, varð að starfa sem neðanjarðarhreyf- ing í 17 ár á meðan kommúnistar réðu ríkjum. Það var sértakt að heyra sögu þessa fólks, sem starfar við erfið skilyrði í fátæku landi. Kannski voru tilfinn- ingar mínar til þeirra að einhverju leyti tengdar kristniboðinu okkar í Eþíópíu og fyrirbæn hér heima fyrir því. Á svo fjolmennu þingi sem þessu var hópastarfið mjög mikilvægur þáttur. Eg var í hópi með framkvæmdastjórum frá Hong Kong, Kóreu, Irlandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Þýskalandi. Við miðl- uðum hvert öðru upplýsingum um starfið í hreyf- ingunum sem við störfuðum fyrir og deildum þeirri reynslu sem við bjuggum yfir. Við báðum fyrir hvert öðru, hvöttum og uppörvuðum hvert annað. Það var mér mjög dýrmæt reynsla að kynnast því hvernig Guð starfar meðal stúdenta og skólafólks hjá hinum ólíku þjóðum. Aðstæður og starfsskilyrði eru ólík. Framkvæmdastjórinn frá Hong Kong sagði frá því að mörgum fyndist framtíð þeirra í Hong Kong ótrygg. Pólitískar breytingar eru í aðsigi; Kína mun yfirtaka landið árið 1997. Verslunarfólk er hrætt við yfirgang kommúnista, kristilegar hreyfingar vita ekki hvernig skilyrði til starl'a verða eftir komu Kínverjanna. Margir flytjast til útlanda á tneðan tækifæri gefst og landið missir marga góða starfs- menn. Það kom fram hjá vini okkar að hann ætlaði ekki að fara. Stúdentahreyfingin í Hong Kong myndi ekki leggja upp laupana, - en hann bað um fyrirbæn fyrir starfinu þeirra; það vantaði leiðtoga og starfsskilyrði í framtíðinni væru óljós. Á aðalfundi heimsþingsins var í eitt skipti vitnað til Opinberunarbókarinnar 7:9: „Eftir þetta sá ég og sjá: Mikill tnúgur, seni enginn gat tölu á komið, af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum. Þeir stóðu frammi fyrir hásætinu og framrni fyrir lambinu, skrýddir hvítum skikkjum, og höfðu pálma- greinar í höndum." - Þannig leið okkur sern vorum saman á heimsþingi IFES í Kenýu í sumar. Eins og við værum kornin til himna. Við nutum þess að lofa Guð og tilbiðja saman. Við miðluðum reynslu úr Gyöa Karlsdóttir og Esther Gunnarsson fulltrúar KSH á heimsþinginu, ásamt starfsmanni skólahreyfingarinnar í Kanada. Stund milli stríöa. Stúdentar slappa af í sólinni eftir stranga fundarsetu á heimsþinginu. slúdentastarfinu sem gladdi okkur og hryggði - og tókum þátt í að bera hvert annars byrðar. Við báðum hvert fyrir öðru og fannst við vera ein þjóð af því við áttum einn frelsara, Jesúm Krist, og unnum að einni köllun, að vinna stúdenta og skólafólk til fylgdar við Krist Jesú. Þinghaldiö fór fram á ráðstefnustað í eigu auöugs banka. Handan giröingarinnar var þjóö sem bjó viö mjög kröpp kjör. 29

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.