Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2002, Blaðsíða 19

Bjarmi - 01.12.2002, Blaðsíða 19
Systkinin Ingunn 18 ára og Elías 14 ára. skólanum en vió bræðurnir, sem eru auk mín Aron 12 ára, Markús 8 ára og Birkir 6 ára. Tíu kennarar eru starfandi við skólann, en ekki allir í fullu starfi, sjö norskir og þrír danskir. Hvernig líkar þér að vera íþessum skóla? Mér finnst þaó bara mjög fínt, félagsskap- urinn er góður og kennararnir ágætir. Mér finnst langskemmtilegast í íþróttum og í frí- mínútum. Eþíópíuvikan var mjög skemmti- leg, ég var í hóp sem fjallaði um sögufræga staði í Eþíópíu og var ég svo heppinn að fara á suma þessa staði í haustfríinu með fjölskyldunni, þaó var mjög skemmtilegt. Hvað meðyngri brceðurykkar? Ingunn: Þeir hafa það bara mjög gott, Markús og Birkir skildu lítið í norsku til aó byrja meó en núna eru þeir mjög duglegir og eru búnir að eignast nokkra vini. Finnstykkur þið bera ábyrgð áyngri brœðrum ykkar? Ingunn: Nei, nei, en það breytist kannski eftir jól, þegar ég verð elst á heimavistinni og reyni aó aóstoða bræóur mína. Hvað gerið þið í frítímanum? Elías: Við í unglingaskólanum erum öll góó- ir vinir, Thea er í 10. bekk og er dönsk, Andreas sem er danskur er í 9. bekk og Ingeborg sem er norsk er í sama bekk. Svo er það Benjamin sem erfrá Noregi, hann er í 8. bekk. Vió strákarnir spilum oft fótbolta og gerum margt fleira skemmtilegt. Ingunn: Svenni kærasti minn er búinn að vera í heimsókn í haust, hann hefur líka stundaó fjarnám, en í frítímanum höfum við gert margt, eins og t.d. spilaó tennis og blak, farið i' göngutúra um bæinn, kynnst Eþíópum og spilað á hljóófæri. Svenni fer til Islands eftir jólin og auðvitað mun ég sakna hans, en ég fer heim í vor og veró í námi á Islandi næsta vetur. Hefur norski skólinn tengsl við aðra skóla í borg- inni? Elías: Já, sænska skólann þar sem eru bara átta nemendur. Hann leigireina kennslustofu í norska skólanum og við höfum sameigin- lega myndmenntatíma. Unglingaskólinn er í samstarfi við þýskan skóla í leikfimi og við förum þangaó og höfum tíma með þeim. Svo er alltaf íþróttakeppni milli alþjóólegu skólanna í Addis, sem eru um tólf talsins, við tökum þátt í nokkrum greinum þar. Hver er munurinn á að búa í Eþíópíu ogá Islandi? Ingunn: Veðrið er allt annað hér, miklu betra en á Islandi, svo finnst mér minna stress hér og fólkió er mjög vingjarnlegt. Það er frábær matur hérna, þjóöarrétturinn Injera be Wott er uppáhaldsmaturinn minn. Elías: Hér kostar kók aðeins 15 krónur, svo margt er ódýrara. En það er líka mikil fá- tækt, vió sjáum götubörn á hverjum degi, þau búa á götunni og betla og eiga mjög erfitt. Svo er líka mikil hungursneyð í landinu núna, fólk hefur ekki fengió uppskeru lengi. Ingunn: Við gefum götufólki stundum mat, síðan styójum vió kirkjuna sem hjálp- ar mörgum, en þaó er oft erfitt að horfa upp á neyó fólksins. Getið þið lýst fýrir okkur þvísem þið sjáið á leið- inni ískólann? Elías: Eins og viö sögóum er mikió af betl- urum, en þaó er líka heilmikió um dýr í um- ferðinni, asnar með byróar, kindur, geitur og beljur. Ingunn: Umferóarmenningin hér er væg- ast sagt mjög sérstök, fjórir bílar troða sér auðveldlega hlió vió hlið á eina akrein og á morgnana tekur þaó Gerawork, eþíópíska bílstjórann okkar, oft um fjörutíu mínútur aó keyra 9 kílómetrana sem eru í skólann. I umferóinni er mjög mikið af gangandi veg- farendum og leigubílum sem stoppa þar sem þeim hentar. Húsin eru mjög misjöfn allt frá plastskýlum til flottra einbýlishúsa og er þetta allt saman í einum graut. Elías: Sheraton hóteliö er eitt af allra stærstu og glæsilegustu hótelum í Afríku, en hótelió er byggt í miöju fátækrahverfi, svo andstæóurnar eru rosalegar. 19

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.