Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.2002, Qupperneq 27

Bjarmi - 01.12.2002, Qupperneq 27
Kanaan Ómar Kristjánsson Sjónvarpsstöóin Omega hefur undanfarna mánuói sýnt þáttaröð frá samfélagi Maríusystra í Þýskalandi. Þættirnir hafa vak- ið verðskuldaða athygli fyrir falslausar og heiðarlegarfrásagnirafundrum ogGuðs dá- semdarverkum á okkar tímum. Starf þeirra hefur ekki verið áberandi þrátt fyrir aó starfs- stöóvar þeirra séu í 120 löndum. Samfélag Maríusystra hefur aldrei notió opinberra styrkja af neinu tagi, en starfar einvörðungu fyrir frjáls framlög og stuðning velunnara og Kanaanvina. Meðal Maríu- systra starfar bænahópur sem bióur reglu- lega fyrir Islandi og Islendingum. Aóalstöóvar hreyfingarinnar eru í Þýska- landi og þegar ekið er suður hinn fjölfarna þjóðveg Heidelberger Landstrasse í útjaðri Darmstadtborgar blasir vió stórt minnis- merki meó áletruninni „Gjörió iórun, himna- ríki er nánd.“ Spyrja má: Hvaða tengsl eru á milli „iórunar" og „himnaríkis" - og þeirrar gleði sem tengist himnaríki? Þau eraó finna í upprunanum og sannri og einlægri trúar- reynslu Maríusystra og þeirra fjölmörgu kraftaverka sem þær bera vitni um og fram koma í öllu starfi þeirra. Bænin er þeirra sverð og skjöldur. Saga þeirra er samfelldur vitnisburður um mátt bænarinnar. Vakning Eina septembernótt 1944 var miðborg Darmstadt nánast þurrkuð út í sprengju- regni, en upp úr öskunni reis nýtt líf. í mörg ár höfóu þær dr. Klara Schlink og Erika Madauss beóið fyrir vakningu meðal stúlkn- anna í Biblíuskólanum þar sem þær störfuðu sem leiótogar. Vakningin varó á síðustu mánuðum síðari heimstyrjaldarinnar þegar unga fólkið öðlaðist skilning á því að dómur Guðs hafði fallið yfir þjóóina og borgina þeirra og þaó gerði iðrun fyrir sína hálfvolgu kristnu trú. Reynslan af fyrirgefningu Guðs vakti ást á Jesú og vaxandi löngun fyrir bæna- og þjón- ustusamfélag samkvæmt fordæmi hinna fýrstu kristnu, sem „höfðu allt sameiginlegt" (P 2.44). Þetta leiddi árió 1947 til stofnunar Hins evangelíska Maríusystrasamfélags und- ir stjórn Klöru Schlink (Móóur Basíleu, d. 2001) og Eriku Madauss (Móður Martyríu, d. 1999). Meðstofnandi var Paul Riedinger (d. 1949), leiótogi í meþódistakirkjunni og nefndi hann systrafélagið eftir Maríu, móður Jesú, sem í sannri trú og hlýóni við vilja Guós fylgdí Jesú aó krossinum. Gengió fram í trú „Og þeir skulu gjöra mér helgidóm, að ég búi mitt á meðal þeirra." (2M 25.8). Þannig talaói Guð gegnum ritningartextann til Móður Basíleu til staðfestingar á því að byggð skyldi kapella þar sem hann yrói tign- aóur og tilbeðinn. Fyrstu systurnar hófu aö byggja kapelluna með eigin höndum úr múr- steinum sem þær hirtu úr rústum Darm- stadtborgar - bústaðinn byggðu þær síóar - með aðeins 30 mörk í sjóði! Þær treystu að- eins á sinn Himneska Föóur, sem um er rit- að í Sl 77.15 „Þú ert Guó, sá er furóuverk gjörir”, og fengu ótrúleg bænasvör. Nú eru þarna margar byggingar sem eru algerlega skuldlausar. Þeim var gefió nafnið Kanaan, sem þýðir fýrirheitna landió. Þau voru öll reist fýrir trú og þótti það með ólík- indum aó svo vel tókst til. Kanaan til grund- vallar er barnsleg trú á fýrirsjá hins himneska föóur - allt frá því aó hann leggi til mat á boróið til kaupa á nútímalegum tæknibún- aói sem síðar varð þörf fýrir til aó efla boð- unina. En guóleg íhlutun kemur aldrei af sjálfri sér. Aó lifa í trú felur einnig í sér að ganga í Ijósinu svo að engar deilur eða ófýr- irgefnar syndirvaldi því að Drottinn láti hjá líóa aó veita blessun sína. (Sagan er sögó í „Realities of Faith”.) Þjáningagaróur Jesú Sérstakur hluti landareignar Kanaans var nefndur bænagarður þar sem komið var fýr- ir lágmyndum af þjáningum Jesú á leið hans frá Getsemane til Golgata, svo og minnis- varðar tileinkaóir páskum. Móðir Basílea oröaói þetta svo: „Kærleiki Guós er hvergi augljósari en í þjáningum Jesú.” Sátt Oró Jesú sjálfs, samkvæmt Mt 4.17, eru ein- kunnaroró Kanaans, letruð fýrir ofan hlióió að landareigninni: „Gjörió iörun, himnaríki er nánd.“ Þessi fýrirmæli eru mikilvæg í dag- legu lífi okkar. „Fyrirgefóu" og „Mér þykir þetta miður" eru orð sem geta skipt sköp- 27

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.