Heima er bezt - 01.07.1952, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.07.1952, Blaðsíða 2
194 Heima er bezt Nr. 6 Töfra- foss Nú, þegar sumar- leyfin fara í hönd, mun marga fýsa að kynnast landinu og kanna ókunna stigu. Oræfin búa yfir stór- fenglegri fegurð, og þar er alltaf hægt að sjá eitthvað nýtt. — Fossinn, sem þessi mynd er af, mun ekki vera mikið þekktur. Um hann segir Helgi Valtýsson rithöfund- ur í bók sinni Á hreindýraslóðum: „Efri fossinn i Krin- gilsá mun nú vera meðal fegurstu fossa hér á landi og sjald- gæfur mjög á vissan hátt. Fljótt á litið er hann smækkuð mynd af Dettifossi. Gljúfrin fyrir neðan fossinn eru þröng og hrikaleg og fyllast algerlega af mjallahvítum úðanum, sem stingur mjög í stúf við skolgrátt jökulvatnið og svarta hamraveggina. En upp í gegnum úðamökk- inn koma öðru hvoru eins og gos, misjafnlega háir vatnsstrókar, er stundum ná allt að tveim þriðju af hæð fossins sjálfs. Er þessi tröllefldi leikur vatns- ins afar fagur og tilkomumikill, þegar sól skín á fossinn.....Sennilega er þessi foss óskírður enn, enda hefur hann verið í reifum tii skamms tíma. Nefndi Friðrik hann Töfrafoss, og er það bæði skáldlegt nafn og fagurt. Og satt að segja á hann það nafn með réttu!“ Myndirnar á forsíðu 1. íslenzkur saltfiskur nýtur hvarvetna mikiila vinsælda, og úti í löndum þykir hann hið mesta lostæti. Myndin sýnir fiskþurrkun á stakksteinum, þar sem öllum aldursflokkum beggja kynja slær oft saman í kappsfullri vinnu við þessa þýðingarmiklu framleiðslu- vöru landsmanna, og þá er oft glatt á hjalla og margt sér til gaman gert. 2. Heyannir eru mestar í júlí- mánuði, og hver sá, er hrífu getur valdið, leggur sitt lið fram til þess að gera heyfeng- inn sem drýgstan. Hrífan þyk- ir nú orðið ekki stórvirkt á- hald til móts við snúningsvél- ar og rakstrarvélar, enda fækkar snjöllum rakstrar- konum óðfluga, en sú var tíð, að þær voru bóndans beztu hjú og íþrótt þeirra í háveg- um höfð. 3. „Reiðing á hann Rauð og Val. Reipin út, — nú binda skal. Fiytjum heim af túni töðu, troðum fulla stóra hlöðu. Þegar öllu þessu inn við náum, þakkir við og töðugjöldin l'á- um“, segir alþýðuskáldið vinsæla, Páll J. Árdal, í kvæði sínu „Vinnuljóð“, er birtist í hinni nýútkomnu bók skáldsins „Ljóðmæli og leikrit“, en víst er um það, að fögur sjón var að sjá heybandslestirnar, með ilmandi grængresið, liða sig heim í heygarð á sólbjörtum sumardegi. Slíkir dagar voru hátíðisdagar og tilhlökkunar- efni fyrir alla á heimilinu. 4. Kaupstaðabörn hafa nú að venju fjölmennt í sveit í sum- ar, en því miður munu all- mörg börn ekki hafa átt þess kost að komast í sveitina. í sveitinni kynnast börnin dýr- unum og ýmsum nytsömum störfum. Oftast mun það vera hesturinn, sem heillar hug unglinganna mest og þau störf sem unnin eru með að- stoð hans, eins og myndin sýnir.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.