Heima er bezt - 01.07.1952, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.07.1952, Blaðsíða 9
Nr. 6 Heima er bezt 201 aðstaða þeirra er örðug. Stefnu- skrá þeirra er sósíalistisk, en þeim gengur erfiðlega að fram- kvæma hana í reynd. Enn hefur þeim ekki tekizt að þjóðnýta margar helztu greinar stóriðn- aðarins, enda þótt tilraunir hafi verið gerðar með að þjóðnýta bankana. Örfá hlutafélög ráða mestu í stóriðnaðinum, og þau hafa myndað hringa. En fagfélögin eru líka sterk. Borgin Broken Hill er gott dæmi upp á það. Borgin er byggð á námagrefti, en enginn fær vinnu þar, nema hann sé meðlimur einhvers fag- félagsins í borginni. Og það er aðeins hægt að verða meðlimur fyrir þá, sem hafa átt þar heima í sjö ár, hafa unnið þar eða eru fæddir þar. Afleiðingin verður, að vinnan gengur að erfðum frá föður til sonar. Enda þótt þróunin gangi í þá átt, að einoka stóriðnaðinn, eru einstakir stóreignamenn ekki margir, og miljónerar eru mjög fáir. Á hinn bóginn finnast hvorki í Sydney né Melbourna fátækrahverfi neitt líkt því, sem er í London. Ástralíumenn hafa alltaf verið vandlátir í vali sínu af innflytj- endum. Ef maður er ekki hvít- ur að langfeðgatali, er vonlaust að reyna að sækja um landvist- arleyfi í Ástralíu. Englendingar eru eftirsóttastir. Margir eru óánægðir með þessa innflutningsáætlun. Hinu- megin við hafið er Asía að vakna. Þar búa yfir 1000 milj. manna, eða helmingur alls mannkyns. Þeir, sem óánægðir eru, hræðast, að heimurinn eins og hann er í dag, muni ekki þola að til séu strjálbyggð lönd og lítt notuð. Þeir hafa skilið, að landið verður að verða sterkt, og til þess er iðnaður og landbúnaður höfuð- skilyrðin. En það getur því að- eins gerzt, að fagfélögin og iðju- höldarnir falli frá einokunar- stjórn sinni og leyfi frjálsa sam- keppni í verzluninni og á vinnu- stöðunum, og opni landið fyrir heiminum. TVÖ KVÆÐI SUMARMORGUNN. Sól er yfir sundum, sumarblær á grundum, dögg á grasi glitrar, gullið blómið titrar. Lóa í lyngi kvakar, léttum vængjum blakar. Þrestir ljóða í lundi, lömbin rísa af blundi. Lindir ljúfar hjala, lækir glaðvært tala, telja fletir tjarna tugi andabarna. Leikur blær að blöðum, blómin prúð í röðum signir blítt og sendir sínar hlýju kenndir ■— inn í bóndans býli, brátt hvert opnast skýli, fólkið fögnuð ríkan finnur morgun slíkan. Þeir, sem verki valda vilja styrkir halda út á völlinn væna, viðra töðu græna. Hrífur leika’ í höndum, hug fær leyst úr böndum starfsins hraði straumur, stoltur vökudraumur. Töðubreiðan blikar, brátt þar vélin kvikar, sveittir fákar frísa, fúlgur stórar rísa. Er sá sumardagur sólheiður og fagur dýrleg gjöf frá guði, geisli af lifsfögnuði. SUMARKVÖLD. Hneig í Ægisarma ágústsólin varma. Rótt nú rökkurmóða reifar dalinn hljóða. Lóan kvöldljóð kveður kliður þrasta gleður. Undir laufi lundsins lömbin njóta blundsins. Lindir hætta’ að ljóða, læki setur hljóða. Sefur í sefi tjarna sægur andabarna. Bjarkarkrónur bærir blær er hörpu hrærir. Þrýstir kossum þíðum þétt að blómum fríðum. Geiminn fyllir friður, fólkið leggur niður störfin sín hin ströngu, striti sleppir löngu. Hvíla búin bíður, blærinn andar þýður inn um opinn glugga, yfir leggur skugga. — Þá, sem þreyttir blunda þöglra yndisstunda, þeir fá nú að njóta, náð og gjafir hljóta. Víst í drauma dýra dásemd ævintýra nóttin blíða breytir, blessun öllum veitir. Jórunn Ólafsdóttir, Sörlastöðum.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.