Heima er bezt - 01.07.1952, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.07.1952, Qupperneq 8
200 Heima er bezt Nr. 6 lægri en í New York eða London. Fjölskylda fjögra manna getur lifað góðu lífi fyrir um 200 kr. á viku. Fjölskylda, sem hefur 200 kr. á viku, getur borðað kjöt á hverjum degi, hafi hún löngun til þess. Kjöt er ódýrt og nóg er af því. Ástralíumenn borða firnin öll af nautakjöti og ennþá meira af kindakjöti. Á gistihús- um í „baklandinu“ fá gestirnir venjulega aðeins tvær sortir af grænmeti — eina steikta og eina soðna kartöflu. Ástralía er eins konar útibú frá Englandi. Fyrstu landnemarnir voru glæpamenn, sem voru gerð- ir útlægir frá Englandi, en árið 1793 komu fyrstu frjálsu land- nemarnir þangað. Eigi leið á löngu áður en þeir urðu í meiri- hluta, og smátt og smátt urðu glæpamennirnir aðeins hverf- andi lítill hluti íbúanna. Um það bil 300.000 Englendingar hafa látið í ljós óskir um að flytja til Ástralíu á síðari árum. Sagt er, að áströlsku stúlkurn- ar séu þær fallegustu í heimi. í- búunum er sárt um að þær flytj- ist úr landi. Vakti það því tals- verða óánægju, er 12.000 þeirra giftust amerískum hermönnum og fóru strax eftir stríðslokin. Landar þeirra vildu ekki missa þær. Fyrir norð-austur-ströndinni liggur Kóralrifið mikla. Það er allt byggt upp af örsmáum kór- aldýrum. Rifið er 2000 km. að lengd og er stöðugt að aukast. En það hefur verið að stækka í eina miljón ára. í lóninu milli rifsins og strandarinnar eru hundruð kóraleyja. Þetta lón er 150 km. á breidd. Er maður flýg- ur yfir lónið, koma alltaf nýir eyjaklasar í ljós. Ef siglt er í bát með glerbotni, hefur maður sýn inn í dásamlega heima. Þar eru stórar hallir úr kóröllum í dásamlegu litaskrúði. Öðru hverju er eins og leiftrum bregði fyrir niðri í djúpinu, en þá eru silfurlitir fiskar að skjótast milli klettanibbanna. Margs konar einkennileg dýr lifa í nágrenni við rifið. Þar finnast risavaxnar skeljar, er verða næstum því tveir metrar að þvermáli og vega rúmlega 200 kg. Verði perlufiskari fyrir því óhappi að stíga ofan á slíka skel, á hann á hættu að hún lokizt utan um fótinn á honum og haldi honum niðri í vatninu þangað til hann drukknar. Þá eru þar einnig fiskar með eitur- brodd fram úr trjónunni, og er lífshætta að verða fyrir honum. En einkennilegasta veran í hafinu kring um Ástralíu er Dy- gongen, en það er eins konar sæ- kýr. Er hún veidd vegna kjöts- ins, sem er mjög ljúffengt. Kroppur hennar er klunnalegur og líkizt að sumu leyti manni. En sporðurinn er eins og á fisk- um. Höfuðið er hálf skopleg eftirlíking af mannshöfði. Hljóð- ið er líkast vælukenndu ópi. Ef til vill er Dygongen fyrirmyndin í hinum fjölmörgu sögnum um hafmeyjar, sem lifað hafa á vör- um alþýðunnar í flestum lönd- um. Fyrir vestan Kóralrifið mikla, hinumegin við Fimmtudagseyna og Torressund, hefst norður- strönd Ástralíu. Þar er hitabelt- isloftslag. Frumskógarnir ná nærri því niður í fjöruborð. Hita- svækja liggur stöðugt yfir hafi og landi. Næst eftir Saharaeyði- mörkina er þetta heitasta svæði hnattarins. Fáir hvítir menn þola loftslagið á þessum slóðum. Maður fylgir strandlínunni til vesturhluta Ástralíu. Á þeim slóðum er hitinn ekki eins mik- ill, en óveðrin geta dunið yfir þegar minnst vonum varir. Of- viðri, einkum það er nefnist „willi-willi“, getur skollið yfir fyrirvaralaust með 55 m. vind- hraða á sekúndu. Heilir flotar fiskibáta fara í mask og þorp leggjast í auðn. Eitt þorpanna, Roeburne, hefur verið endurreist 15 sinnum. Það er erfitt að hafa hænsnarækt í þessum héruðum, því að hænsnin fjúka veg allrar veraldar þegar minnst varir. Stundum fer öll fjölskyldan líka út í veður og vind. Meðfram norður- og norð- vestur ströndinni eiga „fjöru- prangararnir“ heima. Þeir hafa eins konar verzlunarleyfi og safna alls konar reka á fjörun- um, sem þeir selja í verzlunar- stöðunum í nágrenninu. Miðbik landsins er óbyggt og óbyggilegt. Stór svæði eru mar- flöt, eins og sjór í logni. Annars staðar myndar sandurinn lang- ar öldur, sem stundum eru mörg hundruð km. á lengd. Hér og þar rísa lágir fjallgarðar upp úr sandhafinu. Fjöllin eru nakin og gróðurlaus. Fljótin í eyðimörk- inni ná ekki út til hafsins. Þau hverfa í sandinn löngu áður en þau ná svo langt. Nú eru þessi eyðimerkursvæði notuð til að gera tilraunir með fjarstýrð vopn og rakettur. Hér er nægi- legt svigrúm fyrir kjarnorkutil- raunir, enda eru meira en eitt þús. km. til byggðra staða. Um það bil 60.000 Ástralíu- negra eru eftir í landinu. Þessir frumbyggjar landsins eru tæp- lega komnir af steinaldarstig- inu enn. Þeir eiga heima í hér- uðunum við norðurströndina, og þaðan vilja þeir ekki fara. Land- svæði þeirra nefnist Arnhem- land. Það er 12.500 km2 að flat- armáli og vaxið frumskógi og ófærum fenjum. Land þetta var einhver ókunnasti blettur jarð- arinnar, þangað til fyrir tveimur árum. íbúarnir eru ákaflega andvígir hvítum mönnum. Árið 1802 gerði landkönnuður einn fyrstu tilraunina til að komast inn í Arnhem land. íbúarnir drápu hann. Síðan hafa vísinda- menn oft horfið í þessum héruð- um. Þar er stórhætta að ferðast. Margir leiðangrar hafa gert til- raunir til að ferðast yfir landið, en alltaf hafa þeir verið reknir til baka. Nú hafa ástralskir og amerískir vísindamenn efnt til leiðangurs, sem hefur það mark- mið að rannsaka lifnaðarháttu frumbyggjanna í þessu -ein- kennilega landi. Ástraliumenn hafa í mörgum tilfellum kosið að halda staðar- nöfnum frumbyggj anna óbreytt- um. Nöfn eins og Moola-bulla, Borroloola og Wagga Wagga segja skýrt til uppruna síns. Ástralíumaður nokkur, sem var á ferð í Evrópu, reyndi að láta taka betur eftir nafni þorpsins, þar sem hann átti heima, með því að mála það skýrum stöfum á farangur sinn. Nafnið er þannig: Mulkanundracooratarr- aninna. Þrjár stéttir keppa um völdin í Ástralíu. Það eru: Iðnaðarmenn, bændur og verkamenn. í augna- blikinu hafa verkamenn meiri- hlutann í stjórnmálum, en

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.