Heima er bezt - 01.07.1952, Page 15

Heima er bezt - 01.07.1952, Page 15
Nr. 6 Heima er bezt 207 Hjálmþér Háfeta, en Haki Fáki, reið taani Belja Blóðughófa, en Skœvaði skati Haddingja. Vésteinn Vali, en Vífill Stúfi, Meinþjófr Mói, en Morginn Vakri. Áli Hrafni, er til íss riðu, en annarr austr und Aðilsi grár hvarfaði geiri undaðr. Björn reið Blakki, en Bjárr Kerti, Atli Glaumi, en Aðils Slöngvi, Högni Hölkvi, en Haraldr Fölkvi, Gunnar Gota, en Grana Sigurður. í fornkvæðum þeim, sem geymzt hafa í Sæmundar-Eddu og fræðimenn ætla, að ort sé á 10. og 11. öld, er á víð og dreif minnzt á suma þessa hesta, er nú vóru taldir og nokkurra fleiri getið. í Grímnismálum eru hestar guðanna taldir í þessu erindi: i Glaðr ok Gyllir, Glœr ok Skeiðbrimir, Silfrintoppr ok Sinir, Gisl ok Falhófnir, Gulltoppr ok Léttifeti, þeim ríða Æsir jóum [dag hvern er þeir dæma fara at aski Yggdrasils]. Og í Vafþrúðnismálum er Óð- inn látinn kveða svo um gæð- inga þeirra Dags og Nætur: Skinfaxi heitir, es ehn skíra dregr dag of dróttmögu; hesta beztr þykkir með Hreiðgotum; ey lýsir mön af mari. Hrímfaxi heitir, es hverja dregr nótt of nýt vegin; meldropa fellir morgin hverjan; þaðan kömr dögg of dali. í Völsungakviðu stendur þetta erindi: Þeir af ríki rinna létu Sveipuð og Sveigjuð Sólheima til dala döggótta dökkvar hlíðar, skalf Mistar mærr hvars megir fóru. Og enn fremur þessar hending- ar: Rinni rökn taitluð til Reginþinga, en Sporvitnir at Sparinsheiði Melnir ok Mýlnir til Myrkviðar. Þetta verður að nægja um hin fornu hestaheiti. Mörg þeirra hafa eflaust um langt skeið ver- ið torskilin öllum þorra manna, og aðeins á færi lærðra málfræð- inga að skýra sum þeirra. Hefur og ýmislegt verið um það efni ritað af málfræðingum vorum bæði fyrr og síðar, svo og erlend- um fræðimönnum. Þeim, sem vildu vita eitthvað nánara um slíkar nafnaskýringar, skal bent á taókina: íslendingar, eft- ir dr. Guðmund Finntaogason. í kaflanum um Dýrin hefir höf. gert nöfnum þessum, og raunar fleiri fornum hestaheitum, ræki- leg skil og á skemmtilegan hátt. En lokaorð skýringa hans eru á þessa lund: „Ef vér lítum yfir þessi heiti, sem ég nú hefi reynt að skýra, þá virðist mér ljóslega koma fram í mörgum þeirra aðdáun forfeðra vorra á hestunum. Það er ljómi yfir þeim, og jafnframt sjáum vér, að hestar eru kennd- ir við vitsmuni, gætni, árvekni, fjör, glaðlyndi, metnað. Vér sjá- um þeim bregða fyrir hástígum, léttum í spori, eða með mældum skrefum; vér sjáum aftan und- ir Hófvarpni, þegar hann tekur sprettinn með Gná, og vér þjót- um í huga eins og stormur um jörðina, eða vér erum komnir á hestaþing, þar sem allra augu stara á Vigglitni.“ Þegar Eddukvæðunum slepp- ir, verður þess lítið vart í forn- um kveðskap íslendinga, að kveðið sé um hesta. íslendinga- sögur nefna að vísu marga af- burða snjalla gæðinga og úrvals hesta, sem mjög vóru kærir eig- öndunum og eftirlæti þeirra, svo sem drepið var lauslega á fyrr. En litlar sem engar minjar hafa geymzt um það, að skáldin kveði um hesta sérstaklega. Sögurnar geyma engar hestavísur, nema ef telja skal Söðulkollu-vísur í Grettissögu, sem eignaðar eru þeim Gretti Ásmundarsyni og Sveini bónda á Bakka „upp frá Þinganesi" í Borgarfirði. En Sveinn átti Söðulkollu og var hún allra hrossa skjótust um Borgarfjörð. Þá hafa í sögu Ólafs konungs Haraldssonar geymzt tvær hestavísur eða öllu fremur reið- vísur, eftir Sighvat skáld Þórð- arson, ortar austan hafs í Vestra-Gautlandi í einni sendi- för skáldsins til Rögnvalds jarls á Skörum. Og loks eru í Sturl- ungu tvær vísur, er sumpart eru kveðnar um hesta, og hafa þeir frændur ort sína vísuna hvor: Sighvatur Sturluson á Grund og Sturla skáld og lögsögumaður Þórðarson. En þó að fleira hafi eigi geymzt, að því er ég bezt veit, af því, sem fornmenn kunna að hafa ort um hesta sína, þá er þó annað, sem ber því ljósast vitni, hvað hestarnir hafa verið forn- skáldunum tiltækir í kveðskap. Dr. Guðmundur Finnbogason getur þess í kafla þeim, sem fyrr var í vitnað, að í 516 skipskenn- ingum sé skipinu líkt við hest og það kallað t. d. unnar-hestur, ranga fákur o. s. frv. (Framh. í næsta blaði). llllllllllllllllllllIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllIllllllllM I Tilkynning til áskrifenda í Heima ER BEZT | Athygli skal vakin á því, að \ E gjalddagi blaðsins var 1. júlí. Þeir i É áskrifendur, sem enn hafa ekki greitt = | árgjaldið, kr. 67,00, eru góðfúslega i = beðnir að greiða það nú þegar, svo § = að komizt verði hjá póstkröfu- i i kostnaði. niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.