Heima er bezt - 01.07.1952, Side 18

Heima er bezt - 01.07.1952, Side 18
210 Heima er bezt Nr. 6 ast þá aðbúð nú á dögum. Á gólfið var oftast breitt lag af sinu. Hún var reytt uppi á eynni. Þar var nóg af henni. Sumir höfðu þó dýnur með. Þegar menn höfðust við í byrgjum var alltaf setið flötum beinum, eða menn lágu bara endilangir, því að engin voru sætin. Nestið var oftast geymt í kistl- um eða litlum koffortum. Nesti var jafnan haft með til viku í senn, því að þegar lítið fuglaðist, var bara farið í land um helg- ar. En þegar mikið var um fugl, þá var flutt í land tvisvar í viku og kom þá mjólk með bátnum fram, og annað, sem beðið var um, eftir þörfum. Fjörur voru aðeins að sunnan og vestan við eyna, og þar stóðu öll byrgin hlið við hlið. Flestar munu útgerðir í eynni hafa verið allt að 20 á ári. í hverri útgerð voru 9 menn flest, 6 sem stund- uðu fiskiveiðar og 3 við fugla- veiðar. Sumar útgerðirnar höfðu þó ekki nema 3—4 menn, sem þá voru aðallega við fuglaveið- arnar, en höfðu fiskirí í hjá- verkum, eða sinntu þeim ekkert, fyrr en fiskur gekk að eynni, en það var oft ekki fyrr en komið var langt fram á sumar. Þá varð stundum mjög fiskisælt um- hverfis eyna og veiddist vel, þegar fuglainnyflum var beitt eða nýrri smásíld, sem veidd var á Króknum. Þarna í Drangey voru oft sam- an komnir um og yfir 100 manns. Þetta voru mest ungir menn og var auðvitað oft glatt á hjalla. Útgerðirnar voru frá Höfðaströnd og Óslandshlíð, Við- víkursveit, Hegranesi, Króknum, Reykjaströnd og Skaga. En á sumum útgerðunum voru menn framan úr héraði, stundum langt framan úr héraði. Ungum mönnum þótti eftirsóknarvert að komast í Drangey. Ævintýra- þrá knúði og auðvitað var það ævintýraför ungum mönnum að róa til eyjar og vera þar þátt- takendur á vertíð. Á vertíðinni var þar mikið annríki og meira en nóg að gera, þegar vel veiddist, en auðvitað komu landlegudagar, stundum nokkrir eða margir í röð, og þá var ekkert að gera nema liggja og sofa, tuskast og takast á, kveða rímur og kveðast á. Þar var ekki glímt, það var ekki hægt, fjaran var svo stórgrýtt og illt undir fæti. Uppi á eynni var auðvitað hægt að glíma, en þangað var sjaldan farið fyrr en sigmennirnir komu til eggja- töku, en það var aldrei fyrr en í júní. Þó kom það fyrir að sækja þurfti vatn, ef það þraut, sem haft var með úr landi. Á einum stað í eynni austanverðri drýp- ur vatn úr sprungu í bergi. Þar er steinskál, sem hægt er að klifra að og fá við og við nokkra potta af yndislega góðu vatni, með því að tæma skálina. Nokk- uð þurfti að bíða þangað til hægt var að sækja í skálina aft- ur, því að ekki rigndi í hana. Ekki var treyst á þetta vatn, svo að sýra og vatn var alltaf haft með að heiman eins og nestið. * Allur undirbúningur fyrir ver- tíðina var gerður að vetrinum og honum var lokið að mestu áður en fram skyldi fara. Mestur var undirbúningurinn fyrir fugla- veiðarnar, en fuglinn var allur veiddur á flekum. Fyrst var nú að gera fleka. Þeir voru allir af sömu stærð, gerðir úr þunnum borðum og á báða enda þeirra voru festir ok- ar. Allir voru þeir jafn stórir og stærðin var: ein alin á breidd og hálf önnur alin á lengd. í miðju okanna voru boruð göt fyrir svokölluð flekabönd, en með flekaböndunum voru flek- arnir tengdir saman. Venjulega voru þrír flekar tengdir á þann veg og var það kölluð niður- staða. Bilið milli flekanna var haft einn faðmur og engin teng- ing milli nema flekabandið. Fyrrum var flekabandið alltaf úr reipi, fléttuðu úr hrosshári eða ull, en síðar var farið að nota kaðla. Hver niðurstaða var lögð við einn stjóra, en stjórinn var kaðall, með vænum steini í end- anum. Stjórinn þurfti að vera það langur, að hægt væri að leggja uppistöðum hæfilega fjarri landi, en aðdjúpt er víða við Drangey, svo ekki þurfti langt fram til þess að dýpi yrði um 30 faðmar, og þurfti að miða lengd stjóra við þetta. í hverjum fleka eru mörg göt ög í þau festar snörur úr hross- hári — taglhári — sem á tím- um flekaveiðanna var mjög eft- irsótt og fengið víða að. Minn- ist ég þess, að bændur, sem komu að kaupa fugl og höfðu gott taglhár meðferðis, voru vel séðir gestir. Gott taglhár var keypt háu verði, oft 1,50—2 krónur pundið, eða ef skipt var á taglhári og fugli, voru látnar 18—24 langvíur fyrir pund af taglhári. Þetta var oftast taxt- inn í þessari vöruskiptaverzlun. Dökka eða svarta taglhárið var eftirsótt og gekk hærra verði kaupum og sölum en það hvíta, sem ekki þótti eins endingargott og dökka hárið. Það var vetrarvinna að búa til snörurnar. Efnið í hverja snöru þurfti að vera um það bil háif alin á lengd og ekki minna. Þeg- ar gera skyldi snörur, lét maður taglhársviskina liggja fyrir framan sig. Var svo dreginn úr henni hæfilegur lokkur, er vera skyldi efni í snöru, og var nú snúið með báðum höndum upp á annan endann, en hinn hafð- ur milli tannanna. Þegar hæfi- legur snúður var kominn á, var snaran lögð saman, hnútur hnýttur á annan endann, snör- unum safnað saman, 100 í hvert búnt, og þetta svo fest á spotta. Nú var flekinn tekinn, í hann boruð um 100 göt, öðrum enda snörunnar stungið í gat neðan frá og dregið svo, að hnúturinn nam við fleka. Á þann endann, sem var ofan á flekanum, var síðan gerð lykkja. Þannig voru flekar útbúnir og snörur í þá dregnar, flekabönd fullgerð og uppistöður útbúnar, svo að ekki þyrfti annað en tengja, þegar nota skyldi veiðitækið á veiðistað. Hver útgerð hafði hæfilegan flekafjölda og nokkra til vara,. eins og strax verður vikið að. # ALLUR útbúnaður, fiskiveiða- tæki meðtalin, skyldi vera í lagi áður en farið var í eyna, en veiði þar hófst venjulega um miðjan maí. Ef vel viðraði, var stundum farið laust fyrir miðjan maí. Var jafnan byrjað á fuglaveiðum ein- göngu, því að það var sjaldgæft,

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.