Heima er bezt - 01.07.1952, Page 29

Heima er bezt - 01.07.1952, Page 29
Nr. 6 Heima er bezt 221 kóngsins, það var eins og fólk sæi hann ekki. Hann var mjög einmana og yfirgefinn, enginn virti fríða andlitið hans viðlits, nema hann sjálfur. Hann varð fljótt mjög leiður á þessu. Smám saman varð honum það ljósara en áður, að það er hugarfar manna, sem mesta þýðingu hef- ur, og fallegt útlit hefur lítið að segja, ef fagrar hugsanir eru því ekki samfara. Nú lærði hann fyrst að meta mannkosti drottningar sinnar, en lagði nið- ur að dæma fólk aðeins eftir út- liti þess. Einn dag sagði hann hátt við sjálfan sig: „Hamingjan gæfi; að ég gæti losnað við þetta fallega andlit, en öðlazt í þess stað góðvild og hyggindi.“ „Þér mun verða að ósk þinni,“ heyrði hann svarað, og um leiö varð hann þess var, að hann gjörbreyttist, varð sem nýr maður og leit nú alla hluti öðr- um augum en fyrr. í gleði sinni þaut hann inn til drottningar sinnar til að færa henni þessar góðu fréttir, en þar sat þá ung og fríð kona. „Ég vissi alltaf, að í raun og veru ertu bæði góður og vitur,“ sagði hún og leit á hann, „og guði sé lof fyrir, að þú hefur nú lært að meta það, sem mest gildi hefur í lífinu. Það var guðfaðir þinn, sem hjálpaði mér og breytti útliti mínu, en nú er ég aftur orðin eins og ég á að mér að vera.“ „Nú hef ég ekki jafn frítt andlit og ég hafði áður,“ sagði ungi kóngurinn, „en í þess stað á ég gott hjarta, og það er meira virði.“ „En nú, þegar þér er orðið þetta ljóst, mun frítt andlit ekki spilla þér né gera þig hégóm- legan hér eftir. Og líttu nú í spegilinn,“ sagði hún brosandi. Sá hann þá, sér til mikillar undrunar, að andlit hans var óbreytt, nema ef til vill var það nú enn fríðara en áður hafði verið. Gengu þau síðan inn til gamla kóngsins, og lagði hann blessun sína yfir þau, áður en hann dó, í fullu trausti þess, að nú hefði þjóð hans eignazt kon- ung og drottningu, sem mátu dyggðir manna og hjartalag meira en ytra útlit þeirra. Úr gömlum blöðum Eftirfarandi klausa í Þjóðólfi 27. maí 1887 gefur nokkra hug- mynd um stjórnarfar það, sem menn áttu þá við að búa hér á landi, sem og flestar þær þjóð- ir, sem verða að sætta sig við yfirráð annarra ríkja. Þingmennska lögð niður. Þing- maður Snæfellinga Sigurður Jónsson sýslumaður (hann var uppeldissonur Jóns Sigurðsson- ar) hefur nýlega á fundi í Stykkishólmi lagt niður umboð sitt sem þingmaður, af því að amtmaður hefur neitað honum um leyfi til að fara á þing, nema hann útvegaði löglærðan mann, „er dvelji í Stykkishólmi eða einhversstaðar innan sýslu“, til að gegna embættinu um þing- tímann, en þvílíkan mann gat S. J. ekki útvegað. — Á áður- nefndum fundi var skorað á dómkirkjuprest Hallgrím Sveinsson að gefa kost á sér til þingmennsku fyrir Snæfells- nessýslu, en hann getur eigi orðið við áskoruninni sakir embættisanna. Þetta bann amtmanns, sem sjálfsagt er komið gegn um alla halarófuna ofan frá ráðgjafan- um, er alveg nýtt, einhver ný nauðsyn, ný þörf hefur legið til grundvallar fyrir því hjá land- stjórninni, þótt öðrum út í frá verði slíkt torskilið, því að ein- mitt um þingtímann eru emb- ættisannir sýslumanna minnst- ar, svo að t.a.m. nágrannasýslu- mennirnir gætu gegnt þeim, en hinsvegar þörfin auðsæ fyrir lögfróða þjóðkjörna þingmenn. Með þessu eru allir sýslumenn útilokaðir frá þingsetu, og þá einnig hinn mikli þingskörung- ur Benedikt Sveinsson. Ekki horfði stjórnin í að taka amt- manninn fyrir norðan til þing- setu, en það er nú munur á, hann eftirlætisbarn stjórnar- innar, en Benedikt Sveinsson helzti forvígismaður þeirra að- almála, sem stjórninni er verst við, lagaskólamálsins og stjórn- arskrármálsins, og báðir hinir sýslumennirnir, sem þjóðin kaus í fyrra með stjórnarskrárendur- skoðuninni. Úr bréfi úr Austur-Skapta- fellssýslu 12. mai 1887...„Hér hefur enginn bjargarskortur verið í vetur, því að afli hefur verið hér um allan Hornafjörð, og á einmánuði rak hér hval í fjörðinn, sem 3 næstu sveitirn- ar náðu í, og 9. þ. m. rak hval í Suðursveit, en við hvalskurð- inn drukknuðu fjórir menn af báti, einn bóndi og 3 vinnu- menn. Slysið atvikaðist þannig: Hvalinn rak inn um Hálsaós svonefndan, og er hann hafði verið festur, fóru 6 menn á bát út að honum. Þegar þeir komu að hvalnum, réttu þeir manni er uppi á hvalnum stóð, ár til að halda bátnum við meðan þeir kæmist upp á hvalinn, en sá, sem að rétti, missti árina og bát- inn rak út undan straumi og vindi, því þeir höfðu ekki nema eina ár eftir á bátnum. Þegar báturinn var kominn út í ós, fleygði einn maðurinn sér út, en við það hvolfdi bátnum. 2 menn- irnir gátu þó hangið í bátnum þangað til hann barst á grynn- ingar, svo að þeir gátu vaðið í land — hinir drukknuðu“......... Gröf Halldórs Brynjólfssonar biskups. Hinn frægi landi vor, dr. Guðbrandur Vigfússon, hef- ur nýlega fundið gröf Halldórs Brynjólfssonar biskups Sveins- sonar. Hann dó í Yarmouth á Englandi árið 1666. Þar er all- merkileg kirkja að nafni St. Ni- holas eða The Parish Church öðru nafni. Kirkjubækurnar þar ná niður á 16. öld og í þeim fann dr. Guðbrandur, að Hall- dór hefur dáið 28. desember 1666. Áður var eigi kunnur dauðadagur hans. Jón Espólín segir í Árbókum sínum (7. deild bls. 45), að hann hafi dáið 16. október, og eftir því hafa menn farið. Nafn hans stendur ritað þannig: Mr. Handry Brindol of Island. Hann hefur að líkind- um kallað sig þar Halldór Brynjólfi að latneskum hætti, og Englendingum, sem hafa rit- að það eftir frumburði, hefur heyrzt það hljóma þannig. Þjóðólfur 1887.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.