Heima er bezt - 01.05.1955, Page 2

Heima er bezt - 01.05.1955, Page 2
130 Heima er bezt Nr. 5 <27 HEIMA ER BEZT . Heimiliftblað með myndum . Kemur út mánaðar- Iejra . Áskriftaffjald kr. 67.00 . Úteefandi: Bókaútffáfan Norðri . Heimilisfanjf blaðsins: Pósthólf 101 Reykjavík . Prentsm. Edda h.f. Ábyrffðarmaður: Albert J. Finnbocason . Ritatjóri: Jón Bjömsson . V----------------------------------------- Efnisyfirlit Bls. 131 Snjófríður Sigurðardóttir, eftir Bjarna Sigurðsson. — 134 Nýlesnar bækur, eftir Þorbjörn Björnsson. — 137 Hólmgangan, saga, eftir Nils Johan Rud. — 141 Ævintýr, kvæði. — 142 Rímnaþáttur aö norðan, eftir Guðlaug Sigurðsson. — 144 Bændur í Nesjum og Nesjavöllum, eftir Kolbein Guðmundsson. — 147 Erlendir ferðalangar á íslandi, eftir Kristmund Bjarnason. — 151 Vísnamál. " 155 Frá Ásbyrgi til Ásbyrgis. Myndasagan ÓIi segir sjálfur frá og margt fleira. iimiiiiiiiimiiiiiiMiiiiiMiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiMmmiiiiiitiiiiiiiiMiiHiiimniiiMMiiHiiiiimii Forsíðumyndin Gleðilegt sumar! Þá er veturinn liðinn að þessu sinni og vorið setzt að völdum. Sumardagurinn fyrsti hefur ver- ið haldinn hátíðlegur um gervallt landið, og hér í Reykjavík, eins og sjálfsagt í öðrum bæjum, hef- ur hann einkum verið hátíð barnanna. Þúsundir barna hafa gengið í skrúðgöngum um göturnar og fagnað vori og sumri á margvíslegan hátt. Sumardagurinn fyrsti er íslenzkur hátíðisdagur fyrst og fremst, því að mjög fáar, eða jafnvel engin þjóð önnur, halda þennan dag hátíðlegan. Þetta er táknrænt. Fáar þjóðir hafa haft eins ríka ástæðu til að fagna sumarkomunni og íslendingar. Vetur- inn hefur oft orðið þjóðinni þungbær, þegar hún var allt of illa undir það búin að heyja baráttu við myrkur og kulda. Fá skáld hafa lýst betur fögnuð- inum yfir komu sumarsins, en séra Stefán í Valla- nesi gerir í þessu einfalda ljóði: Góð veðrátta gengur, geri ég mér ljóð af því. Þetta er fagur fengur, fjölga grösin ný. Fiskur er kominn í fjörð, lillMIIMHIIIHHIIHHIHHHIMIHIHHMIMIIHIMHIIIIIIHIMMIHMIHIIHIMIIMIIIMM F erðamyndir | Furðuleiðum lífsins á | lítt ég eyði myndum, f gefnum heiðum huga frá | Herðubreiðarlindum. | Fagurskapleg flæða Hnoss 1 fjötri af skapi ryður. | — Dynsnjall hrapar Dettifoss | dökkan stapa niður. j Fegurð stök og fjarsýn víð 1 fengu tök á sinni. i — Eru vökul ár og síð | Eiríksjökuls minni. Sveinbjörn Benteinsson. | IIIIIIIIIIIII.Mllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll færir mörgum vörð. Kýrnar taka að trítla út, troðjúgra er hjörð. Skepnur allar skarta við skinið sólar bjarta. Þeir, sem aldir eru upp í sveitum þessa lands, minnast þess, hversu allt lifnaði við á vorin. Það voru hátíðisdagar, þegar féð gat farið að sjá um sig sjálft og ekki þurfti lengur að hafa áhyggjur af því, að heyin entust. Og enda þótt oft væri kalt og vetrarlegt um sumarmálin, vissu menn þó, að ekki gat verið mjög langt batans að bíða, ef allt væri með felldu. Hin hörðu ár, sem annálar geta um, með ís við land langt fram á sumar og al- mennan felli á fólki og fé, voru engir hversdagsat- burðir, og voru einmitt þess vegna færðir í letur og taldir til býsna En eigi að síður er það stað- reynd, að oft hefur þjóðin verið illa undir það bú- in að mæta slæmu vori eftir harðan vetur. Nú er allt þetta, sem betur fer, umliðið. Nú hefur mönn- unum lærzt að sigrazt á mestu örðugleikunum, en þó er allajafna bezt að vera vel á verði. Margskonar gömul hjátrú er tengd við sumar- komuna. Það átti að vera fyrir góðu sumri, ef sam- an frysi vetur og sumar. Hér á Suðvesturlandi gerð- ist það, og ætti þessi landshluti þá að minnsta kosti að eiga von á sérstaklega góðu sumri. Þess er nú ekki langt að bíða, að öll náttúran vakni úr vetrardvalanum. Leysingin flettir fönn- um af fjöllunum og „grundirnar gróa“. Þá verður dýrlegt um að litast í sveitunum, þegar lömbin fara að hoppa og skoppa kringum mæður sínar úti um græna hagana, og þá verður fögnuður barnanna mikill, er þau fá að gæla við ungviðið, hvort held- ur það eru lömbin eöa fallegu folöldin, eins og sýnt er á myndinni framan á þessu hefti.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.