Heima er bezt - 01.05.1955, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.05.1955, Blaðsíða 12
140 Heima er bezt Nr. 5 „Hann var hngaður, sá er þú valdir, er þú sveikst mig, Ingibjörg," sagði Leiftir. skyldi hann fara til blótsteinsins og færa Óðni þakkarfórn. í því er hann hugsaði um þetta, hljóp hálfklædd kona fram til hins fallna manns. Leif- ur bliknaði í framan, þegar hann þekkti Ingibjörgu. Hún sendi honum villt, sorgþrungið augna- ráð og beygði kné sín við lík hús- bónda síns. — Hann var hugaður, sá sem þú valdir, er þú sveikst mig, Ingibjörg, sagði Leifur Gunn- arsson stilhllega, hann leit á hana, þar sem hún grét yfir líki bónda síns. Svo gekk hann álútur og eins og yfirbugaður gegnum skóginn. Óðinssteinn beið hans uppi í ásn- um. Sigurður digri raknaði við aftur eftir stutta stund. Þegar hann lauk upp augunum og sá sorgbitið andlit Ingibjargar, brosti hann með bláhvítum vör- um og hvíslaði: — Ingibjörg! Ef það verður drengur, þá fóstrar þú hann þannig, að hann verði að manni! Lofaðu mér því! Hann mun ein- hverntíma hefna föður síns. — Því lofa ég þér, Sigurður. Rödd hennar var allt í einu ró- leg og ákveðin, hún stóð upp, andlit hennar varð skyndilega hart. Sigurður digri andvarpaði léttilega og andaðist eftir fá andartök. En konan, sem stóð yfir líki manns síns, var að hugsa um barnið sem hún átti í vændum, og bað til goðanna að það yrði drengur. Sonur. Tuttugu ár eru liðin siðan nóttina dimmu er hólmgangan átti sér stað. Margt hefur breytzt, nýr kynslóð er komin upp og gamla kynslóðin er að hverfa, en mannssálin er hin sama. Menn gleyma seint að hefna sín. Arnfinnur Sigurðsson hafði al- izt upp með hugsuninni um hefndina, hún var orðin hluti af honum, hann hafði drukkið hefndarþrána með móður- mjólkinni. Banamaður föður hans var lif- andi enn. Og sonur Sigurðar digra var orðinn nógu gamall til að drýgja þá dáð, að hefna föð- ur síns. Móðirin hafði rætt við son sinn mörg alvörumál við skin langeldanna, og minnti hann á það loforð, sem hún gaf hans vegna við dauða föður hans. Ingibjörg gat aldrei gleymt því, að hún lifði ein æskuár sín, og varð að fara á mis við ást; líf hennar var eyðilagt vegna hefndarinnar; hún hafði aðeins verið tuttugu ára er hún missti bónda sinn. Hefndin heyrði henni nú til. Það var vilji goðanna. Ungi Am- finnur var líka hefndarþyrstur. En hefndin fékk aðeins hálft rúm í huga hans, hinn helminginn átti ástin. Hann var ástfanginn af hinni ungu mær á búgarði Leifs Gunnarssonar, dóttur banamanns föður hans. Oft hitt- ust þau í leynum og elskuðu hvort annað, gáfu hvort öðru góðar gjafir og hátíðleg heit. Hún hét Ingibjörg. Ingibjörgu eldri varð oft undarlega innan- brjósts, þegar hún hugsaði um ástæðuna til þess, að Leifur Gunnarsson hafði gefið dóttur sinni nafn hennar. Gamlar minningar komu fram í hug hennar Hún barðist harðri bar- áttu til þess að geta verið hnar- reist og hörð. Það var vilji goð- anna; hún hafði ekkert leyfi til að sýna veikleika. Arnfinnur var fæddur til þess að hefna. Hún var á móti sambandi hans og dóttur Leifs. Það gat hæglega leitt hana til svika. Það var verra að bregðast ætt sinni en kær- leikanum. Goðin hegndu þeim er vörpuðu skugga á ætt sína. — Hefnd föður þíns skal vera ást þín, Arnfinnur. Leifur var lítið heima á bæ sín- um. Hann fór oftlangarferðir um landið í hernaðarleiðöngrum, því að hann var lendur maður í hirð Haralds hárfagra, er ætlaði að gera landið að einu ríki. Um það leyti sem Arnfinnur var tvítug- ur, bárust fregnirnar af orust- unni í Hafursfirði um allt land- ið. Nú var Leifur brátt væntan- legur heim aftur, og skuggalega óveðursnótt sigldi drekaskip hans inn fjörðinn. Ingibjörg sat marga nóttina í hólminum og beið, meira segja líka þessa dimmu nótt, þegar skipið kom. — Nú er tíminn kominn, Arn- finnur! sagði hún. — Það er ekki vani röskra drengja að bíða. Það gerði Leifur Gunnarsson ekki daginn sem faðir þinn var veg- inn. Móðir og sonur stóðu í hólm- anum í storminum. Uxavagn Þórs þaut yfir himininn, öðru hverju varð bjart sem af degi af leiftrunum. Og þá sáu þau dreka Leifs. Hann skreið inn fjörðinn

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.