Heima er bezt - 01.05.1955, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.05.1955, Blaðsíða 4
132 Heima er bezt Nr. 5 og hjá honum dó Snjófríður ár- ið 1915. En þá er nú eftir að segja frá fyrri hluta æfi hennar, áður en hún giftist, en af honum fóru mestar sögur. Leit ég svo á, að sagan um hann skildist betur, eftir að lesendur hefðu kynnzt seinni hluta æfi ijennar. í raun og veru skiptist sagan um fyrri hluta æfi Snjófríðar í tvennt. Annarsvegar eru opin- berar heimildir í kirkjubókum ýmsra prestakalla og dómsmála- bókum og fógetabókum Suður- Múlasýslu. Hinsvegar eru sagnir þær, sem gengu manna á milli um Snjófríði, víða um Austur- land. Ekki er hægt að fullyrða neitt um sannleiksgildi þeirra, en þó voru þær sagðar mér af mönnum, sem á lífi voru, er söguviðburðirnir áttu sér stað. En ekki styðjast þær nema að nokkru leyti við opinberar heimildir og það er af því, að hinum opinberu heimildum er mjög áfátt. Hljóðar þá sagan þannig: Snjófríður Sigurðardóttir er fædd að Sellátrum í Reyðarfirði 14. september 1837. Foreldrar hennar voru Sigurður Stein- grímsson, bóndi á Sellátrum og kona hans Sigríður Sveinsdóttir. Árið 1840 var Steingrímur 66 ára að aldri og Sigríður kona hans 44 ára. Systkinin, börn þeirra, voru þá: 1. Níels Sigurðsson, 18 ára, 2. María Sigurðardóttir, 15 ára, 3. Guðmundur Sigurðsson, 11 ára, 4. Helga Sigurðardóttir, 8 ára, 5. Jón Sigurðsson, 6 ára, 6. Snjó- fríður Sigurðardóttir, 4 ára. Um þessi systkini er þetta kunnugt: Níels var sagður dugnaðar- og myndarmaður, glaðvær og greindur. Hann varð póstur og er hans getið að góðu í æfi- minningum póstanna. María varð húsfreyja Þorsteins Guð- mundssonar hreppstjóra að Höfðahúsum í Fáskrúðsfirði, merk búkona og öllum hugþekk. Um Guðmund og Jón veit ég ekkert. Helga fór ung upp á Fljótsdalshérað. Séra Stefán Árnason, prestur að Valþjófs- stað, fermdi hana og gaf henni þann vitnisburð, „að hún væri fjörug, gáfuð og gjálíf.“ Hún fór aftur til fjarðanna, giftist ekki en átti 3 börn í lausaleik, sitt með hverjum og var eitt sinn sökuð um að bera út barn sitt. Við réttarhöldin virtist svo, að hún væri sek, en hún var mjög einbeitt og hörð af sér, og svar- aði greindarlega spumingum og hrakti framburð vitna og slapp við refsingu, sökum ófullnægj- andi sannana. Snjófríður fer 1845 með móð- ur sinni, sem þá er orðin ekkja, upp í Flj ótsdalshérað, að Hall- ormsstað. Er hún þar á ýms- um stöðum, sem „tökubarn“, fyrst að Hafursá í Skógum, síð- an að Geirólfsstöðum og Flögu í Skriðdal og svo aftur að Haf- ursá. Hún fær þann vitnisburð, „að hún sé ekki efnileg, hafi lítið lært og sé erfið stúlka.“ Snjófríður dvelur hjá maddömu Ingunni Vigfúsdóttur í Beinár- gerði á Völlum, hefðarkonu af merkum ættum, árið 1853 og fermist það ár í Vallanesi. Presturinn, sem fermir hana, séra Einar Hjörleifsson, gefur henni þennan vitnisburð: „Kann nokkurn veginn, en er skiln- ingsdauf, les ei illa, ófyrirláts- söm og illa upp alin.“ Þeim, sem kynntust Snjófríði, mundi hafa þótt vitnisburður séra Stef- áns Árnasonar um Helgu systur hennar, eiga eins vel við um Snjófríði. Enginn kannast við það, að hún væri skilningsdauf. Vera má þó, að hún hafi verið skilningsdauf á kristin fræði. Eftir fermingu fer Snjófríður hingað og þangað. Þegar hún er 19 ára, er hún léttastúlka á Ket- ilsstöðum á Völlum og nokkru síðar að Fossvöllum í Jökulsár- hlíð. Seinna er hi'in á Flögu í Skriðdal, en árið 1862 er hún komin vinnukona að Kappeyri í Fáskrúðsfirði. Hún fer því vinnukona úr einum stað í ann- an, skiptir oft um og hefur hvergi unað til lengdar. Árið 1860 á hún fyrsta barn sitt með Vigfúsi Hallgrímssyni á Kirkju- bóli í Fáskrúðsfirði. Barnið fæddist 1. desember 1863. Hún var þá vinnukona á Kappeyri, 26 ára að aldri, og enn er bent á stóran stein, þar sem barnið kom undir. Það hét Elínborg og komst til fullorðins ára, en giftist ekki. Snjófríði var af kunnugum lýst þannig, að hún hefði verið há og grönn og sérlega vel vaxin, fríð sýnum og talin að útliti glæsileg kona. Skapgerð hennar er lýst svo, að hún hafi verið glaðlynd og gamansöm, en hviklynd. Jafnframt þessu var hún örgeðja og skapstór, hrein- skilin og stóryrt og illyrt, ef henni þótti hallað á réttlæti og sannindi. Hún var uppstökk, en reiðin fljót að hjaðna, örlát og vinsæl eins og áður er sagt. Árið 1864, eftir barnsburðinn á Kappeyri, fluttist Snjófríður að Karlsstöðum í Vöðlavík, en þaðan til Eskifjarðar. Þangað mun hún hafa komið árið 1865 og verið fyrst til húsa hjá Gísla Árnasyni og seinna vinnukona hjá honum. Gísli var sonur Árna Salómonssonar að Svínhólum í Lóni. Hann var, þegar hér er komið sögu, 46 ára að aldri og giftur maður. Þá var fyrir skömmu kominn til Eskifjarðar nýr sýslumaður í Suður-Múlasýslu, að nafni Waldemar Christian Bohn Oliv- arius f. 20/7 1834. Hafði hann fengið veitingu fyrir sýslunni 28/6 1863, en fyrsta réttarhald hans í sýslunni fór fram 5. des- ember, sama ár. Byrja nú réttarhöld, sem snerta Snjófríði Sigurðardóttur. „Árið 1865, hinn 31. október, var lögregluréttur Suður-Múla- sýslu settur á skrifstofu sýsl- unnar á Eskifirði og haldinn af hinum reglulega dómara W. C. B. Olivarius út af orðrómi um það, að Gísli Árnason snikkari lifði í hneykslanlegum holdlegum mökum með vinnukonu sinni, Snjófríði Sigurðardóttur, sam- kvæmt skýrslu frá hlutaðeig- andi sóknarpresti sem þá var séra Hallgrímur Jónsson pró- fastur að Hólmum). Fyrir rétt- inum mættu þau bæði, hinn á- kærði Gísli Árnason, sem er giftur maður, og vinnukona hans, Snjófríður Sigurðar- dóttir.“ Játar Gísli þar að hafa haft holdlegt samræði við Snjó- fríði og hún viðurkennir það einnig. Um þetta var því enginn ágreiningur. Hinsvegar neituðu þau, að lifa aðskilin, er sýslu- maður skipaði þeim að skilja. Kvaðst þá sýslumaður verða að

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.