Heima er bezt - 01.05.1955, Síða 11

Heima er bezt - 01.05.1955, Síða 11
Nr. 5 Heima er bezt 139 með opin augun! Leifur gekk að rúminu þeim megin sem Sigurð- ur lá. Brosandi otaði hann hár- hvössum sverðsoddinum í barka Sigurðar og pikkaði hann laust nokkrum sinnum. Sigurður vaknaði strax. Hann reis upp til hálfs og greip eftir vopni en fann ekkert. — Þekkirðu mig, Sigurður digri? sagði næturgesturinn. — Leifur Gunnarsson! Sigurð- ur fölnaði, en varð brátt rólegur. — Svo að þú ætlar að hefna þín núna? — Finnst þér, að þú eigir ann- að skilið? — Nei, en hérna í rúminu, við hlið hennar? — Það á einmitt vel við! Leif- ur lét nakið sverðið hvíla á berri bringunni á Sigurði. Það á ein- mitt vel við vegna hennar! bætti hann við grimmdarlega. — Finnst þér slíkt vera aðferð drengja? var svarað rólega. Leifur hrökk við, en sverðið var áfram á sama stað, tilbúið til að stinga því inn í brjóst Sig- urðar. — Þú drapst föður minn gaml- an og fífldir hana! Leifur hló illgimislega. Samtal þetta fór fram í hvísl- andi tón, það var eins og þeir væru sammála um að vekja ekki Ingibjörgu. — Ég tek ábyrgðina! sagði Sig- urður stillilega. — Þú verður neyddur til þess! Leifur hló kuldalega. — Mér finnst þetta slæm að- ferð, sagði Sigurður, — faðir þinn féll í heiðarlegum bardaga. Leifur svaraði ekki. — Þú hlýtur lítinn heiður af þessu, Leifur Gunnarsson! Sig- urður varð öruggari í málrómn- um. — Drengskapur sómdi sér betur! Leifur svaraði ekki enn, það leit út eins og hann væri að hugsa sig um, en loks sagði hann: ' — Hvar börðust þið faðir minn? — Á hólminum, við vógumst með sverðum! — Gott! Leifur varð léttbrýnni, — klæddu þig og komdu með mér. En leyfðu henni að sofa! Hann sneri við og læddist út. Litlu síðar kom Sigurður niður á hólmgöngustaðinn; hann hafði sverð og törgu eins og Leifur. — Ég virði þig fyrir þetta, Leif- ur Gunnarsson! sagði hann. — Ég er enginn heigull! svar- aði Leifur þvert, það var faðir minn ekki heldur. — Nei, ég skammast mín ekki fyrir að hafa höggið slíkan mann banahöggi, sagði Sigurður. Þeir gengu hlið við hlið niður að firðinum. En Ingibjörg vakn- aði og sá að hún var ein i rúm- inu, hún hljóp út á svalirnar í náttserk einum og sá skugga þeirra beggja. Hún varð óróleg. Drekaskipið, sem skreið inn fjörðinn um morguninn, hafði varað hana við, hún þekkti skip Leifs Gunnarssonar og varð skelfd. Nú skildi hún hvað ger- ast myndi. En Ingibjörg var sterk kona; hún klæddi sig og gekk út í nóttina á eftir mönn- unum. Hólmurinn sást eins og svartur depill á dimmbláum sjónum. Þeir tóku bátinn og reru yfir mjóa sundið í hólminn. Ingi- björg náði þeim ekki áður en þeir ýttu frá landi, svo að hún varð að fara krók að eiði einu, sem stóð upp úr um fjöru. Hún hljóp, reif bera fætur sína til blóðs, það leit ekki út fyrir að hún kæmist nógu snemma á staðinn. Þeir hjálpuðust að með að draga bátinn upp á land, tóku svo vopn sín og fylgdust að að hólmgöngustaðnum. Þar hafði á liðnum tímum runnið mikið blóð, sverðaglamur hafði oft bergmálað í hlíðunum. Hérna var hólmgöngustaður forfeðr- anna. Leifur og Sigurður eyddu ekki orðum á leiðinni, þeir höfðu líka þagað í bátnum. Það var svo dimmt, að þeir rákust hvor á annan. En eilítið rof á austur- loftinu benti til þess að þok- unni, sem var, myndi brátt létta. Loks komu þeir á staðinn. Þeir sneru hvor gegn öðrum og drógu sverðin úr slíðrum. — Hérna féll faðir þinn! sagði Sigurður. — Hinn sami blettur, sem vættist hjartablóði hans, mun drekka blóð annars hvors okkar í nótt, sagði Leifur. — Það hlýtur svo að vera, samþykkti Sigurður. Þeir tóku mál hvor af öðrum, en svo skuggsýnt var, að þeir gátu tæplega greint hvorn ann- an. Þeir hikuðu við að byrja. Það lýsti dauft af sverðunum. — Ef þér finnst eins og mér, myndum við kveikja í greni- trénu þarna, því að þá sæjum við betur til að höggva ,sagði Sig- urður dálítið óstyrkur. — Ég hef ekki eldstál á mér, svaraði Leifur, en Óðinn kveikir víst bráðum eld sinn. Skýjaþykknið rifnaði og mán- inn birtist í rofinu. Bleikt ljós glampaði á sverðin, nú sáu þeir ágætlega til. Leifur hjó fyrst, hann klauf skjöld Sigurðar við mundriða. Svo komst bardaginn í algleym- ing. Söngur stálsins hækkaði, mennirnir trömpuðu á jörðina eins og viltir folar, þeir urðu andstuttir, brjóst þeirra gengu upp og niður af mæði og innri óróleik, svitinn perlaði á enni þeirra og blandaðist blóði á höndum og andliti. Þeir hjuggu og lögðu og fundu varla sárs- auka er þeir særðust. Skildirnir voru löngu upphöggnir, nú stóðu þeir berskjaldaðir gegn vopnun- um. Þeir voru svipaðir á hæð, á- líka þreknir og báðir vopnfimir vel og svo leit út, sem þeir myndu vera mjög jafnir. Leifi blæddi ákaft úr sári á hálsinum. En andlit Sigurðar var litlaust; djúpt sár við mittið eyddi kröft- um hans. Hann fann hvernig kraftarnir þrutu úr limum hans, sverðið í hendi hans varð blý- þungt og hann varð að halda þvi með báðum höndum. — Svo sýnist mér, sem Óðinn sé þér hliðhollur í dag, sagði hann stynjandi. — Hann var með þér hérna í hólminum fyrir nokkru, svaraði Leifur. Bardaginn verkaði á hann eins og mjöður, og það var sem líkami hans yrði allur nýr að kröftum. — Nú veiti ég þér banasár, Sigurður digri! æpti hann og skifti sverðinu frá hægri til vinstri eins og í leiftri. Á næsta andartaki leiftraði stálið að hálsi Sigurðar. Hann sleppti sverði sínu og hné niður. Leifur sá að höggið hafði nægt, nú rann hjartablóð Sigurðar í jörð niður og blandaðist blóði Gunnars. Vígs föður hans var hefnt! í nótt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.