Heima er bezt - 01.05.1955, Síða 18

Heima er bezt - 01.05.1955, Síða 18
146 Heima er bezt Nr. 5 og áður. Sögumaður minn sagðist í fyrstu hafa haldið, að verkið mundi ganga seint með þessu masi. En hann sagðist fljótt hafa séð, að þetta tafði Grím ekkert og hann mundi verða að hafa sig allan við, ef ekki átti að hallast á sig með afköstin; það hefði verið eins og Grímur hefði getað hugs- að um tvennt í einu: umtalsefn- ið og vinnuna. En það sagðist hann ekki hafa getað, tók því það ráð að hugsa eingöngu um verk- ið, og með því móti hefði hann lafað í að vinna á við Grím. En Grímur hélt samtalinu áfram þrátt fyrir það, þótt hann gæti lítinn þátt tekið í því. Grímur þótti athafnamaður í búnaði á sinni tíð, ekki síður en Þorleifur faðir hans. Hann færði bæinn á Nesjavöllum syðst á vellina. Þótti þar hægara með neyzluvatn og betra túnstæði heldur en þar sem hann stóð í tíð föður hans. Grímur byggði loftbaðstofu með þiljaðri stofu undir loftinu, auk búrs og eld- húss. En það þótti óvanalegt, að á bæ þessum sneru bæjardyrnar í norður. Um 1860 byggði hann geymsluhús úr timbri, og var það með fyrstu húsum þeirrar teg- undar, sem byggt var þar um sveitir. Hann fékk lærðan smið; sm Reykjavík til þess að byggja þetta hús. í sveitum voru þá fáir, sem kunnu að reisa timburhús. Lækirnir, sem koma úr Hengl- inum og renna austur á vellina, voru erfiðir viðfangs. Vildu grafa undir stíflumar. Á sjötta tug aldarinnar (1850—60) stofnuðu Grafningsmenn nokkurs konar búnaðarfélag í sveitinni. Til- gangur þess félags var ekki sá að fá opinberan styrk, heldur að bindast samtökum með að hjálpa hver öðrum með erfið verk, til þess að koma þeim í fram-- kvæmd. Þetta kom sér vel fyrir Grím. Hann fékk nógan mann- skap sér til aðstoðar og gat þess vegna sett öflugar stíflur í læk- ina, sem entust mörg ár. Eftir að bærinn var færð- ur syðst á vellina, fór Grímur að rækta þar tún út frá honum. Þar var þurrlent og betur til rækt- unar fallið heldur en þar, sem bærinn var áður. Á meðan taða var lítil og kýrnar fáar, hafði hann geitur til þess að bæta úr mjólkurleysinu, en hætti svo við þær, þegar hann gat haft nægi- lega margar kýr til heimilis- þarfa. En á sumrin fékk hann nóg skyr og smjör úr sauða- mjólk; hann færði frá ánum eins og allir aðrir bændur gerðu í þá daga. Grímur notaði skíði á vetrum, þegar ófærð var vegna snjóa, sem fáir gerðu í þá daga. Grímur átti börn mörg. Ekki veit sá, er þetta ritar, neitt ná- kvæmt um tölu þeirra. Líklega hafa þau verið full 20 eða fleiri. Hann var tvígiftur. Síðari kona hans hét Hallgerður Þórhalla- dóttir, ættuð vestan úr Kjós. Með fyrri konu sinni átti hann 4 börn, sem upp komust, og með þeirri síðari 9 börn. Svo átti hann 4 með sömu konu (Sesselju Brynj- ólfsdóttur) framhjá. En hve mörg hann átti, sem öðrum voru eignuð, er óvíst, en almanna- rómur hélt, að þau hefðu verið nokkuð mörg. Flest börn hans komust til fullorðinsára og varð dugandi fólk, og er margt manna frá honum komið. En þrátt fyrir allan þennan barna- fjölda komst hann af án styrks frá öðrum. Sótzt var eftir börn- um hans, þegar þau komust á legg; þau reyndust öll dugleg og komu sér vel. Það átti víst sinn þátt í afkomu Gríms, hvað börn hans voru dugleg og í alla staði efnileg. Grímur andaðist 6. nóvember 1867, 68 ára gamall. Hallgerður, síðari kona hans, bjó eftir það á Nesjavöllum með sonum sínum til fardaga 1879. Þá fór hún á- samt Helgu dóttur sinni og manni hennar, Andrési Guð- mundssyni, sem þá byrjuðu bú- skap í Hlíð í Selvogi. Sama ár sem Hallgerður fór frá Nesja- völlum, kom þangað Jóhann Grímsson, sonur hennar. Bjó hann þar síðan í 30 ár. Ýmislegt var erfitt á Nesja- völlum, þó að landkostir væru þar góðir, einkum hvað sauðfjár- búskap snerti. Silungsveiði á jörðin í Þingvallavatni. En bær- inn stendur um 5 kílómetra frá vatninu. Fer því mikill tími til þess að hagnýta sér þau hlunn- indi. Smalamennska er þar líka erfið. Heyskapur þar er stopull. Ekkert mýrlendi, einungis harð- vellir. En heyfall þar er gott. Venjulega er þar ekki komin slægja á útjörð fyrr en í ágúst. Og í kalárum er sáralítið hægt að heyja þar heima. Það var því venja flest ár, þegar búið var að slá túnið, að fá léðar slægjur. En þær voru ekki að fá nálægt. Þær varð að sækja norður á Mosfellsheiði, í svonefnda Sauða- fellsflóa. Það eru víðlendar mýrar sem tilheyra Mosfelli í Mosfellssveit. Presturinn þar réði yfir þessum mýrum, og var honum greitt slægjukaupið. Þang að er 4—5 tíma ferð hvora leið frá Nesjavöllum. Stundum var farið suður í Hengladali og heyj - að þar, og sum ár niður í Reykja- dal. Reykjadalur er frá Reykja- koti í Ölfusi. Allt er þetta langar leiðir frá Nesjavöllum. En erfiðasta leiðin er úr Reykjadal, því upp úr honum er bæði löng og brött brekka upp á Ölkeldu- háls. Kalárið mikla 1881 varð að sækja heyskapinn alla leið nið- ur á Saurbæjarmýri í Ölfusi. Það mun vera 7—8 tíma ferð frá Nesjav., eða lengra því að þetta er yfirleitt ógreiðfær vegur og víða brattur. Þegar þetta var bjó Jóhann Grímsson á Nesjavöllum. Hann hafði ekki nema 6 hesta til að flytja á heyið og ekki hægt að fara nema eina ferð á dag með hörkubrögðum, svo þeg- ar slægjan var búin er hann gat fengið, átti hann allmikið óflutt heim. Þurrkur hafði verið og var allt heyið þurrt. Þá brugðust Ölfusingar svo við, að þeir lögðu til 20 hesta með reiðingum, svo að allt heyið sem eftir var komst heim í einni ferð. Árið 1918 var kalár mikið og grasleysi. Þá var Brynjólfur Magnússon bóndi á Nesjavöllum; gat hann þá lítið heyjað heima, en varð að tína saman heyskap hingað og þang- að. Síðan mun ekki hafa verið sóttur heyskapur að á Nesja- völlum, enda er nú heyskaparlag breytt, og heyleysi bætt upp með fóðurkaupum. Þrátt fyrir þessa erfiðleika, varð aldrei heylaust á Nesjavöll- um, og reynslan varð sú, að þeg- ar hörð ár komu og heyleysi, þá urðu bændur miklu fleiri hey- lausir á heyskaparjörðum en hinum, sem lítinn heyskap höfðu. Framh. á bls. 157.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.