Heima er bezt - 01.10.1955, Síða 5

Heima er bezt - 01.10.1955, Síða 5
Nr. 10 Heima er bezt 293 beinin fundu fyrir nær 50 árum, en hann var forfallaður og gat ekki farið. Segir nú ekki margt af ferð- inni. Veðrið var gott. Hestarnír viljugir og vegurinn sæmilegur, þar til inn kom að Fossabrekk- um. Var mest um það rætt á leið- inni, hvort við myndum finna beinin, því að Guðbrandur, leið- sögumaðurinn, hafði farið svo ungur að heiman frá Hlíð, að hann mundi ekki vel um afstöð- una, — en allnákvæma lýsingu höfðum við fengið hjá Magnúsi bþnda í Hraunholtum. Þegar upp var komið á brún- irnar, og útsýn opnaðist inn á Leirdal, var stigið af hestbaki og farið að athuga umhverfið. Er þarna gróðurlaust mjög og auðn- arlegt yfir að líta. — Til vinstri var klettaraninn og hafði okk- ur verið sagt, að þar sem kletta- beltið væri hæst, væru beinin, en allur hjallinn er nokkuð lang- ur. Dreifðu menn sér nú með- fram klettunum og leituðu bein- anna. — Ég held að Gísli Gests- son hafi fyrstur komið auga á kumlið. Var þarna ofurlítil dys af smá- steinum fast upp við klettana. Efst, næst klettunum höfðu nokkrir smásteinar verið teknir í burtu, og sá þar í höfuðbein af manni, en að öðru leyti voru beinin hulin. Ég hafði heyrt að beinin væru inni í litlum skúta, en svo var ekki. — Þarna er klettabeltið um tvær mannhæðir, þverhnípt og vottar fyrir stuðlamyndun. Á þessum eina stað við klettabelt- ið, skagar einn stuðullinn nokk- uð fram, og í horninu, sem myndast milli stuðulsins og klettabeltisins, voru beinin. — Við tíndum allt lausagrjótið í burtu og kom þá beinagrindin öll í ljós, eða það sem eftir er af henni. — Er svo að sjá, sem bein- in hafi aldrei verið hreyfð. — Höfuðbein sáust greinilega og út- limabein að mestu. Mátti glöggt sjá á legu útlima-beinanna, hvernig maðurinn hafði setið á hækjum sínum í horninu sem þarna myndaðist af klettabelt- inu og stuðlinum. Gísli Gestsson tók mynd af beinunum, eins og þau lágu óhreyfð. — Við tíndum síðan smásteinana aftur yfir beinin hljóðir og hugsandi, og huldum allt eins og áður var. Ég tel að útlimabeinin hefðu molnað við minnstu hreyfingu. — Við horfðum um stund á dys- ina. — Saga mannsins, hans síð- ustu lífsstundir, lá fyrir augum okkar sem opin bók. — Hann er á leið inn yfir fjall úr Hnappa- dalnum. — Á hann skellur stór- hríð. — Hann hefur vindinn og hríðina í fangið, og framundan er Leirdalurinn kennileitalaus og villugjarn. Maðurinn hugsar sér að leita sér skjóls upp við klettabeltið. Hann ætlar að hvíla sig og sjá hvort veðrið lægir ekki. — En hvíldin hefur orðið löng. •— Þreytan og kuldinn hefur hel- tekið þennan einmana ferða- lang, og náttbólið hefur orðið gröf hans. En hver hefur þessi maður ver- ið? Hve langt er síðan þetta skeði? Er nokkurt samband á milli þjóðsögunnar og þessara beinaleifa í auðn fjallanna? Þessum spurningum verður víst aldrei svarað með fullum rökum, en ég vil reyna í þessum þætti að telja fram þau rök, er tengja saman beinin undir Beinakasti og söguna um mann- inn með sauðarfallið — Ég skal strax taka það fram, að við verðum þarna fyrir nokkr- um vonbrigðum, við athugun beinanna þarna sáust engin kindabein, hversu vel, sem við leituðum, en það hefur ætíð fylgt sögunni um beinin undir Beina- kasti, að þar væru líka kinda- bein. — Þeir sem beinin sáu eftir síðustu aldamót staðhæfa flest- ir, að hafa séð þar bein úr full- orðinni kind. — Get ég varla dregið í efa að þeir skýra þar rétt frá. Þessi saga um heimsókn ó- kunna mannsins að Hlíð í Hnappadal, á að hafa gerzt fyrir 170 árum eða þar um bil. — f raun og veru er þetta ekki lang- ur tími fyrir þjóðsögu og vel get- ur sannleiksgildi hennar verið óbrjálað allan þennan tíma. — í þjóðsögunni er getið um nafn elztu telpunnar, sem heima var á Hlíð, þegar ránsmaðurinn heimsótti börnin. Nú lá næst fyr- ir mig, ef ég vildi leita sannleik- ans í þessu máli, að athuga kirkjubækur frá þessum tíma úr Kolbeinsstaðasókn, en þangað átti Hlíð kirkjusókn. Þetta hef ég líka gert, en á því var ekkert að græða. — Allar kirkjubækur úr Kolbeinsstaða-kirkjusókn frá árunum 1780 til 1800 eru glatað- ar. Aðeins eru til 4 rotin og máð blóð, frá einu ári, en heimilisfólk frá Hlíð er ekki á þessum rotnu ðlöðum. — Þá var næst að athuga mann- talið frá 1801, og sjá hverjir eru þá ábúendur á Hlíð. — Á því var þó lítið að græða. — Hjónin, sem þá búa á Hlíð eru bæði um fimmtugt, og hjá þeim eru heima þrjú böm. Elzt er dóttir 13 ára og drengir tveir 10 og 7 ára. Eng- in Ólöf er þar þá á heimilinu. — Ef sagan hefur gerzt á árunum 1784 til 1786, og stúlkan, sem elzt var af börnunum á Hlíð hefði þá verið 10 til 12 ára. þá ætti hún að vera 25 til 27 ára á manntali árið 1801. Hún gæti líka vel verið farin að heiman eða látin. — Kirkjubækurnar, sem þarna gátu sannað eða staðfest að nokkru leyti þjóð- söguna eru glataðar. Sönnun eða staðfesting á þjóðsögunni fæst því engin. — Það verða því líkur einar, sem hægt er að byggja á. — En líkurnar eru margar, þótt ég geti ekki rúmsins vegna getið þeirra allra. — Höfuðrökin hafa glatast með kirkjubókunum. Þeir bræður frá Hlíð, sem nú eru á sextugs og sjötugsaldri, muna vel beinafundinn fyrir 50 árum. — Magnús Magnússon bóndi í Hraunholtum, sem er þeirra elztur man þó ekki glöggt eftir kindarbeinunum, en heyrði þó um þau talað. Guðmundur Magnússon, sem nú býr að Ön- undarholti í Villingaholtshreppi man vel eftir kindarbeinunum, en telur þau hafi verið utan við dysið. Hann telur sig hafa séð beinin fyrst 1904—1905. — Hann man ákveðið eftir langlegg af fullorðinni kind ásamt völunni. Telur hann að leggurinn hafi legið utan við dysina, en man ekki glöggt eftir öðrum kindar- beinum. — Gunnlaugur Magnús- son frá Hlíð, sem bjó í Miðfelli í Hreppum, og nýlega er látinn, sá fyrst beinin, er hann var 10 til 11 ára. — Hann fullyrti að kindarbein hefðu verið þar líka. — Hann mundi glöggt eftir

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.