Heima er bezt - 01.10.1955, Page 6

Heima er bezt - 01.10.1955, Page 6
294 Heima er bezt Nr. 10 hryggjarliðum úr kind auk gang- limanna. Hann telur að kindarbeinin hafi verið utan við dysina. — Hann sá glögglega höfuðkúpu af manni efst í grjóthrúgunni alveg upp við klettana. Ekki hreyfði hann neitt smágrjótið ofan á beinunum. — Enginn telur sig hafa séð höfuðbein úr kind, enda er það í samræmi við þjóðsög- una, þar sem maðurinn slátraði sauðunum heima á Hlíð og lítil líkindi eru til, að hann hafi tek- ið hausinn með. — Það gat verið óþægilegt, ef hann hitti einhvem á leið sinni. Margar spurningar vakna í sambandi við þennan beinafund. Hvernig hafa beinin leynzt upp undir sjötíu ár? Hafa þau aldrei fundist fyrr en á miðri 19. öld? Og í þriðja lagi: Hefur maður- inn fundist strax á sama ári og hann varð úti, en enginn hirt um að færa hann til kirkju, þar sem hann hafði drýgt þann glæp, að ræna sauðnum og slátrað honum? Þessum spumingum fæst aldrei svarað með nokkurri vissu. — Skuggi aldar og ára- tuga hylur að nokkru þessa sorgarsögu. — Liðni tíminn hef- ur að nokkru breitt huliðsblæju yfir atburðina. — Sagan er enn að nokkru ráðgáta, sem varla verður upplýst til fulls, — en það þarf ekki auðugt ímyndunarafl, til að tengja saman sögubrotin og fylla í eyðurnar. Sagan byrjar í fátæklegu hreysi norðan Hvammsfjarðar. Það liður að jólum. Heimilið er bjargarlaust og sulturinn sverf- ur að. í einhverju vonleysi, leggur húsbóndinn upp að heiman, í leit að lífsbjörg. — Hann kemur hvergi við á bæjum sunnan fjarðarins, en leggur á fjallveg- inn, sem liggur suður í Hnappa- dalinn. — Hann veit um tvo af- skekkta bæi í austurhluta Hnappadals. Hann veit líka að um hátíðir fara allir til kirkju, sem geta, og er þá oft liðfátt heima á bæjunum. Hann kemur að Hlíð á jóladaginn, þegar kirkjufólk er komið af stað til kirkjunnar. — Leiðin til kirkj- unnar er löng. Það er því lítil hætta á því, að fólkið komi aft- ur fyrr en seint að kvöldi eða þegar komið er fram á nótt. — Maðurinn verður þess fljótt vís, að heima eru aðeins börn, og það elzta stúlka, varla meira en 10—12 ára gömul. Hér er því ekkert að óttast. Maðurinn fer í húsin, og velur sér þar vænan sauð og slátrar honum. — Maðurinn er langsoltinn og á erfiða ferð fyrir höndum. Hann matreiðir því innmat úr sauðn- um, etur sjálfur sem hann þolir og gefur líka börnunum með sér, en þau horfa hrædd og agndofa á aðfarirnar. — Hann vill ekki hrella börnin að óþörfu, og þau þora heldur ekki annað en þiggja bita hjá honum. — Síðan hefur maðurinn hraðar hendur. Hann býr um sauðarfallið, og leggur það á bak sér. — Ekki er til set- unnar boðið og ekki er vert að bíða heimkomu húsbóndans. Frá Hlíð inn að Beinakasti eru iíklega 6—7 km. — Ef til vill er þegar skollin á norðan stórhríð, — og ef til vill er færið þungt og allt blindað af lausasnjó, og náttmyrkur skollið yfir. — Það segir fátt af einum. — Vel getur nýmetið hafa orðið of lostætt, og lasleiki af þeim ástæðum, bætzt ofan á þreytuna. Maðurinn finnur afdrep upp við klettabeltið — Hann leggur af sér byrðfina og sezt inn í klettahornið, sem myndast milli bergstuðulsins og hamraveggj- arins. — Hann ætlar að hvíla sig, en hvíldin verður löng. Hann sofnar þarna svefninum langa. — Hann vaknar aldrei aftur. — Sögu mannsins er lokið. — Heimafólk hans, innan Hvamms- fjarðar, fer sér hægt með eftir- grennjslanir, þegar það fréttir um ránið á Hlíð. Enginn vissi hvert ferðinni var heitið. — Vel gat það verið húsbóndinn, sem sauðinn tók á Hlíð, og vel gat hann líka hafa farið niður um ótryggan ís á Hvammsfirði. Það var bezt að gleymskan geymdi afdrif húsbóndans frá bjargar- 'lausa heirrtilinu. Atburðurinn fyrnist. Margir slíkir atburðir gerast víða um land þessi ár, þar sem fjöldi manna örmagnast á hungur- göngu sinni um landið. Sorgleg, sönn saga verður að þjóðsögu, en örnefnið geymir — Maríukvæði — María, þú ert mjúk og hlý, María, viltu heyra hversu ljóðin mín, Ijúf og ný líða þér milt að eyra. Starsýnt mér verður á þrek og þrótt í þínum hreifingum öllum. Nótt verður dagur og dagur nótt. er dýrð þín skín yfir fjöllum. Frjálslegur hugur og fögur hönd, fagnandi rödd og kraftur. Greiða mér veg inn á gæfulönd ég get ekki týnt þér aftur. Hvort sem við eigum lengi leið um lífsins aldingarð bæði, eða hverfum á ókunn skeið, þá áttu hjarta míns kvæði. Svalinn. Smælki . . . Neyðaróp Stórabróður. Bóndakona ein í Danmörku hafði eignazt dóttur. Þriggja ára sonur hennar var yfir sig hrif- inn af litlu systur. En tveimur vikum eftir að systir hans fædd- ist, varð hann skyndilega þögull, áhyggjufullur og móðgaður við mömmu sína. Kvöld eitt er litla systir hans var böðuð, og hann horfði á eins og hann var vanur, fór hann allt í einu að hágráta. „Mamma, hvernig geturðu ver- ið svona vond að ætla að selja Litlusystur, þegar hún fer að fitna svolítið?" snökkti hann. „Hvað ertu að segja, drengur? Lítil börn eru aldrei seld. Hvernig getur þér dottið annað eins í hug?“ „Jú,“ anzaði drengurinn há- skælandi. „Ég veit vel að þú ætl- ar að selja hana, af því að þú ert alltaf að vikta hana.“ minninguna um einmana ferða- lang, sem sofnar svefninum langa upp við hamravegg í auðn milli byggða. — Þetta er stað- reynd, þótt hin sorglega örlaga saga, verði aldrei rakin eða skýrð að fullu. Stefán Jónsson.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.