Heima er bezt - 01.11.1958, Síða 17

Heima er bezt - 01.11.1958, Síða 17
MAGNÚS V. FINNBOGASON FRÁ REYNISDAL: Jfjörleifshöföi n g i n n ferðast svo um Mýrdalssand ef sýni i er bærilegt, að hann sjái ekki Hjörleifshöfða, þetta einstæða og einkennilega fjall, langt suð- austur á eyðisandinum. Hann er að mestu leyti umkringdur standbergi, nema helzt að vestanverðu. Er víða í björgunum mikill gróður, stórvaxin hvönn og mjög fjölskrúðugur grasgróður, og öll eru þessi fjöll iðandi af lífi, því að þar verpir mikill fjöldi fýla. Vestur af fjallinu gengur gil, sem heitir Bæjargil, en norðan við það niðri á sandinum heitir Bæjarstaður, þar sem bærinn stóð, áður en Kötluhlaupið tók hann af vorið 1721. Eru fleiri örnefni þarna neðan undir, sem minna á liðna tíma. Upp og suður af Bæjargilinu er allstór dalur, en þang- að var bærinn fluttur og endurreistur, þegar 21 ár var liðið frá því, að allt var komið í auðn eftir hlaupið. I gilinu er uppsprettulækur, og er það eina vatnið, sem finnst í Höfðanum, að undantekinni örlítilli lind, sem er í gildragi austan við bæjarrústirnar, og var hún neyzluvatn staðarins. Upp með gilinu er gata upp að bænum. Norðan megin í gilinu er snarbrött hlíð, sem heitir Sláttubrekka. Var hún eini slægjubletturinn fyrir utan túnið, sem var bæði lítið og kargaþýft. Mun hey- skapurinn sjaldan hafa náð 100 hestum áður en Hall- grímur, sem þar bjó með því síðasta, hóf umbætur á því, en oftast miklu minna. Gatan upp úr Bæjargilinu mun hafa verið eini staður- inn, sem mögulegt var að komast með hest upp á Höfð- ann. Niður af bænum er einstigi, sem heitir Lásastígur. Var hann farinn til að stytta sér leið við fjárhirðingu, því að þegar fé var komið á gjöf, var það haft við ból austur með fjallinu, því að þar var bezt til beitar, þegar að kreppti uppi á Höfðanum. En Lásastígur var til fleira nytsamlegur, því að ær og kýr voru mjólkaðar á sumr- in fyrir neðan hamrana. Varð því að bera mjólkurskjól- urnar upp Lásastíg. Þetta myndi mörgu nútímafólki þykja með ólíkindum að mögulegt væri. En þetta var Höfðakvenþjóðinni leikur einn. Svona er vaninn vold- ugur drottinn yfir hugur og athöfnum mannanna. Allur er Höfðinn sæbarinn að sunnanverðu með ótal hellum og gjögrum. Eru það leifar síðan öldur hafsins lömdu hann með síendurnýjuðum krafti storms og strauma, ár og síð um aldaraðir. En allt í einu verður hér breyting á. Nú er það Katla, sem tekur völdin og ræðst á hann að norðan með ógnarafli sínu og harnför- um. En allar þessar árásir hefur hann staðizt, þessi tign- arlegi útvörður Mýrdalsfjallanna í austri, baðaður skini kvöldsólarinnar breiðir hann sínar grænu hlíðar móti þeim að kvöldi hvers sólskinsdags. Þarna hefur fólkið sem þar hefur búið svo að segja óslitið frá því að Hjör- leifur steig þar fyrst fæti á land, átt öruggt athvarf í meira en 1000 ár, án þess að hafa orðið fyrir nokkru slysi, svo að vitað sé, af völdum hafsins, eldgosa eða jökulhlaupa, sem um hann hafa leikið lausum hala. Allt þetta hefur hann af sér staðið, og bíður þess, að Katla þreytist um síðir á áhlaupum sínum. Eftir hvert hlaup sér hann, að henni hefur ekki orðið annað ágengt en að bæta stórri landspildu við ríki hans, sem hún hefur unnið frá hafinu. En hann hefur sjálfur engu fórnað. Hann veit, að hvað bíður síns tíma, og að hann muni eiga eftir að sjá Mýrdalssand klæðast aftur grænum gróðri, miklu víðáttumeiri en nokkru sinni fyrr. í Landnámabók segir frá því, að þeir fóstbræður, Hjörleifur og Ingólfur, fóru af Noregi til að byggja ísland. Tók Ingólfur land við Ingólfshöfða, en Hjörleif bar vestur með landinu og náði að síðustu landi við Hjörleifshöfða. Reisti hann þar tvo skála fyrir fólk sitt, sem virðist hafa verið frjálsir menn og konur þeirra og Helga Arnardóttir, kona hans, svo og þrælar þeir, sem hann hafði komið með frá Irlandi. Þarna dvaldist hann sinn fyrsta og síðasta vetur á íslandi — veturinn 870— 871. — Þegar hinn langi vetur var liðinn, vildi hann taka til sömu starfa og hann var vanur á ættjörð sinni og sá akur sinn. En nú sagði frumbýlingsfátæktin til sín. Hann átti ekki nema einn uxa. Varð það því úrræði hans, að láta þrælana draga plóginn með honum. En þótt þeir hafi áður verið illu vanir, hefur þeim þó varla áður verið boðið slíkt. Hugðu þeir nú á hefndir og síðar flótta. Drápu þeir nú uxann og kenndu það skógar- birni. Dreifðust þeir Hjörleifur nú um skóginn að leita Heima er bezt 379

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.