Heima er bezt - 01.11.1958, Qupperneq 26

Heima er bezt - 01.11.1958, Qupperneq 26
ekki að ástæðulausu, og er talinn stærsti bletturinn á framkvæmd mótsins. Einkum hefur hinn hái dómstóll orðið fyrir aðkasti vegna dómsins, enda blandaðist eng- um glöggum áhorfenda hugur um það, að Rawson braut allar reglur og hljóp nokkurn spöl á grasinu inn- an við brautina og stytti sér þar með leið. Galina Bystrova frá Rússlandi sigraði í fimmtar- þraut kvenna, hlaut 4733 stig. Fleira gerðist ekki þriðja daginn, áhorfendur voru um 22000. íslenzku áhorfendurnir, sem ekki voru ýkja margir á áhorfendapöllum Ólympíuleikvangsins, biðu með nokkurri eftirvæntingu eftir undankeppninni í þrístökk- inu, sem hófst á fjórða degi Evrópumótsins. Það hafði kvisazt, að Vilhjálmur Einarsson, sá íslenzku keppend- anna, sem mestar vonir voru tengdar við, hefði meiðst á æfingu í Vesterás tíu dögum fyrir mótið, og vafasamt væri að hann næði árangri. Keppendur máttu reyna þrisvar og þurftu að stökkva 14.60 metra, til að öðlast þátttökurétt í aðalkeppninni. Fyrsta stökk VE var ó- gilt en sæmilegt að öðru leyti, og ekki bar á því að meiðslin hefðu tekið sig upp. í annari tilraun gekk allt vel, hvítur fáni var á lofti, stökkið gilt. Það mældist 14.92 metrar og þurfti Vilhjálmur því ekki að reyna frekar. Ekki gekk öllum eins vel. Einhver mesta harm- saga þessa Evrópumóts gerðist í sambandi við undan- keppnina í þrístökkinu. Vinurinn Vitold Kreer, sem stokkið hefur 16.30 metra á þessu ári, og var fyrir mót- ið næst bezta stökk í heiminum á þessu ári gerði tvö fyrstu stökk sín ógild, og í þriðja stökki, sem var gilt, stökk hann aðeins 14.50 metra, tíu sentímetrar komu þarna í veg fyrir að einn bezti þrístökkvari heimsins fengi að taka þátt í aðalkeppninni í sérgrein sinni. Þetta fékk svo mjög á Rússann, að hann hirti ekki um að ldæð- ast hlýjum æfingabúningnum, gekk niðurlútur að fata- hrúgunni og dróg fatnaðinn eftir sér út af vellinum. Er hann kom á æfingasvæðið rétt utan við völlinn, féll hann gjörsamlega saman og grét. Mönnum finnst þetta ef til vill ekki karlmannlegt, en svona er þetta hérna þessa dagana, menn ráða ekki við tilfinningar sínar, eru ým- ist ofsakátir eða niðurlútir og bugaðir. Klukkan 1 hófst úrslitakeppnin í stangarstökkinu. Keppendur voru 21. Keppnin var all söguleg, og stóð næstum 8 klukkustundir. Valbjörn hafði ekki heppn- ina með sér. Hann byrjaði á fjórum metrum og fór yfir í fyrstu tilraun. Hann sleppti 4.10 og reyndi næst 4.20, sem hann lék sér að. Næst reyndi hann 4.30 og í annari tilraun fór hann vel yfir, en hann losnaði ekki vel frá stönginni, er hann hafnaði í kassanum og hafði flogið 4.30, fylgdi stöngin honum eftir og felldi rána. í þriðju tilrauninni mistókst Valbirni, þannig, að hann var þar með úr leik, og varð hann 14. í röðinni. Það voru fleiri en Valbjörn, sem ekki höfðu heppnina með sér, Evrópumethafinn, Roubanis frá Grikklandi, sem flestir spáðu sigri fyrirfram, stökk aðeins 4.10 metra og varð hann 18. Þrír keppendanna stukku 4.50 metra, þeir Landström frá Finnlandi, Preussger frá Þýzkalandi og Bulatov frá Rússlandi. Landström hafði forystuna, því að hann hafði færri tilraunir að baki. Preussger var næstur og Rússinn þriðji. Nú var hækkað í 4.55. Allir felldu svo í fyrstu tilraun. f annarri tilraun var Pressger yfir, en sló rána niður með hendinni. í þriðju tilraun mistókst öllum. Landström varð því Evrópumeistari, fyrsti Norð- urlandabúinn, sem vann gullpen- ing á þessu móti, og var fögnuð- ur áhorfenda geysilegur. Keppn- in stóð fram í myrkur, og síðasta klukkutíma var keppt við kastljós. Þó áliðið væri, sýndu áhorfendur ekki á sér fararsnið, og vegna þessarar spennandi keppni, kom íslenzki flokkurinn of seint til kaffiboðs hjá íslenzka ambassadomum í Stokkhólmi, Magnúsi V. Magnússyni. Hinir síðbúnu gestir hlutu fulla fyrirgefningu, þegar málsatvik voru kunn. Ánægjulegt var að koma á þetta hlýlega íslenzka heimili í fjarlægu landi og njóta þar fullkominnar íslenzkrar gestrisni hjá sendiherrahjón- unum. Því má bæta hér við, að þau hjónin sýndu íþrótta- mönnunum mikinn áhuga, komu alloft á Stadion til að fylgjast með löndunum. Sama er að segja um starfsmenn sendiráðsins, Birgir Möller sendiráðsritari, var önnum kafinn við að greiða úr hvers manns vanda. Hann fylgd- ist með keppninni af svo miklum ákafa, að hann tognaði verulega meðan þrístökkskeppnin stóð yfir. E. Maskinskov frá Rússlandi varð Evrópumeistari í 50 km. göngu, gekk vegalengdina á 4 klst. 17 mín. 15.4 sek. (geri aðrir betur). Ungfrú Press frá Rússlandi sigraði í kringlukasti, kastaði 52.32 metra. Skemmtilegustu greinar dagsins voru úrslit í 400 m. grindahlaupi og 3000 m. hindrunarhlaupi. Lituev frá Rússlandi sigraði í grindahlaupinu á 51.1 sek., en Svíinn Trollsás kom mjög á óvart og varð annar á 51.6 sek. í 3000 metra hindrunarhlaupinu sigraði Chromik frá Póllandi á 8 mín. 38.2 sek. Jakobi frá Þýzkalandi sigr- aði í langstökki kvenna, stökk 6.14 metra og Piatkowski frá Póllandi í kringlukasti karla, kastaði 53.92 m. Bystrova frá Rússlandi sigraði í 80 m. grindahlaupi kvenna á 10.9 sek. Síðasta grein dagsins voru undanrásir í 1500 metra hlaupi. Svavar hljóp í fjórða og síðasta riðli, og átti við ofurefli að etja. Hann varð sjöundi í riðlinum á 3 mín. 51.4 sek. Sigurvegari í riðlinum varð Jungwirth frá Tékkóslóvakíu á 3 mín 49 sek. í sambandi við undanrásir 1500 m. hlaupsins gerðist kátlegt atvik, sem mig langar að segja frá. Kristleifur Guðbjömsson var skráður til leiks í öðrum riðli ásamt Olympíumeistaranum Delany, Salsola frá Finnlandi og hinum upprennandi stórhlaupara Norðmanna, Lundh, og fleiri slíkum. En Kristleifur sat heima, eins og ég hef greint frá. Á næsta bekk fyrir framan mig sátu tveir brezkir útvarpsmenn frá BBC, og lýstu 1500 metra hlaupinu, öllum riðlum, og var hér um beint útvarp að ræða. Þeir höfðu þann þátt á, að skiftast á að lýsa á (Framhald á bls. 396). .388 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.