Heima er bezt - 01.11.1958, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.11.1958, Blaðsíða 36
FYRIR STÚLKUR Hér komum við með litla en skemmtilega getraun fyrir stúlkur, 16 ára og yngri. Og eins og venjulega höfum við mjög glæsi- leg verðlaun fyrir þá af yngri lesendun- um, sem verða svo duglegir og heppnir að sigra í getrauninni. — Þið getið lesið nánara um þessi verðlaun á öðrum stað á síðunni. f þetta sinn er þrautin í því fólgin, að svara eftirfarandi þremur spurningum rétt: ■* w » ’■'*■ • ■ I. VERÐLAUN: LÍTILL VEFSTÓLL VERÐMÆTI KR. 150.oo 2. VERÐLAUN: LAMPAGRIND OG BAST I BORÐLAMPA VERÐMÆTI KR. 134.oo Bæði þessi glæsilegu verðlaun eru gripir, sem framleiddir eru hjá FLUGMó-verk- smiðjunni, alveg eins og módelverðlaunin í drengjagetrauninni, en sýna þó allt aðra hlið á hinni fjölbreyttu og hugvitssömu framleiðslu FLUGMó-verksmiðjunnar. f litla vefstólnum getið þið ofið alls konar smáhluti, sem þið getið sjálfar haft mikla ánægju af eða sem þið getið glatt foreldra ykkar og vini með. Borðlampagrindin er búin til úr svörtu járni, en svo er vandinn sá, að flétta bastið á grindina, og á þann hátt getið þið búið til nýtízkulegan og fallegan lampa með eigin höndum. Ef ykkur langar til að kaupa eitt- hvað af framleiðsluvörum FLUG- MÓ-verksmiðjunnar, þá getum við gefið ykkur þær upplýsingar, að allar framleiðsluvörur verksmiðj- unnar fást í TÓMSTUNDA- BÚÐINNI, Austurstræti 8, pósthólf 822, Reykjavík. 1. Hver kaupstaðurinn hefur mestan fólksfjölda: Hafnarfjörður, Akureyri eða Siglufjörður? 2. Hvaða fjall er hæst: Hekla, Esja eða Herðubreið? 3. Hvaða stöðuvatn er stærst: Mývatn, Þingvallavatn eða Hvítárvatn? Og þegar þið eru orðnar alveg öruggar um að hafa leyst þrautina rétt, skrifið þið svörin við spurningunum ásamt nafni ykkar, heimilisfangi og aldri, á sérstakt blað og sendið síðan í umslagi, sem þið merkið BARNAGETRAUN STÚLKNA neðst í hornið vinstra megin, til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. En ráðn- ingin þarf að hafa borizt ritinu fyrir 20. desember 1958. Berist fleiri en ein rétt ráðning, verður dregið um vinningana.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.