Heima er bezt - 01.11.1958, Page 37
Svo er hér alveg sérstök getraun fyrir
drengi 16 ára og yngri. — Og auðvitað
eru verðlaunin alveg jafn glæsileg og í
getrauninni fyrir stúlkurnar. — Sjá ann- | VERÐLAUN'
ars staðar á síðunni.
Hjá drengjunum er þrautin einnig í því
fólgin að svara þremur spurningum rétt:
BLITZ“ MÓDE LBÁTASETT. VERÐ KR.
197.00
1. Er vegalengdin milli Reykjavíkur og
Akureyrar undir eða yfir 400 km,
þegar farið er eftir þjóðveginum?
2. Er bifreið, sem merkt er með ein-
kennisstafnum F, frá Akureyri, Siglu-
firði eða Húsavík?
3. Þarf maður að vera 15, 16 eða 17 ára
til þess að geta öðlazt ökuskírteini,
sem heimilar akstur bifreiða?
Þegar þið eruð vissir um að hafa leyst
þrautina rétt, skrifið þið svörin við
spurningunum ásamt nafni ykkar, heim-
ilisfangi og aldri á sérstakt blað, og
sendið það síðan í umslagi, sem þið
merkið BARNAGETRAUN DRENGJA,
neðst í hornið vinstra megin, til „Heima
er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. En ráðn-
ingin þarf að hafa borizt ritinu fyrir
20. desember 1958. Berist fleiri en ein
rétt ráðning, þá verður dregið um vinn-
ingana.
2. VERÐLAUN:
„BAMBI“ SVIFFLUGMÓDELSETT. VERÐ KR 45.oo
Þessi tvö módelsett, sem framleidd eru hjá FLUGMó-verksmiðjunni í Reykjavík, eru
sýnishorn af hinni fjölbreyttu og skemmtilegu framleiðslu verksmiðjunnar, en hún
framleiðir einnig margvíslega aðra móflelgripi. Þessi módel eru skemmtileg og urn
leið menntandi leikföng fyrir alla röska drengi, og þess vegna alveg tilvalin til tóm-
stundaiðju, hvort heldur sem er meðan verið er að setja þau saman eða til skemmt-
unar þar á eftir.
Með módelum frá FLUGMÓ getið þið sýnt bæði foreldrum ykkar og kunningjum,
hvað hægt er að vera handlaginn og duglegur, þegar áhuginn er vakinn — og með
tímanum getið þið smárn saman eignazt heilan flota af módel-flugvélum og módel-
hátum fyrir sparipeningana ykkar. Módelin fást í TÓMSTUNDABÚÐINNI, Austur-
stræti 8, pósthólf 822, Reykjavík, en sú verzlun hefur aðalumboðssölu fyrir allar frarn-
leiðsluvörur FI.UGMÓ.