Heima er bezt - 01.12.1964, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.12.1964, Blaðsíða 4
GESTUMBLINDI: GAMLA KIRKJAN IBæ hafði staðið kirkja frá ómunatíð. Sagan sagði, að hún hefði verið reist þar fyrst þegar kristni kom á ísland, en þá hefði goðorðsmaður búið í Bæ. Hann hefði gert hina fyrstu kirkju á grunni goða- hofsins gamla. Þannig hafði verið þar helgistaður og miðstöð héraðsins frá því byggð hófst og aldrei rofnað samband nýs og gamals. Kynslóðir komu og fóru, en kirkjan stóð. Þegar kirkjuhúsið hrörnaði komu menn saman og reistu annað nýtt á sama grunni. Sömu horn- steinarnir stóðu óhreyfðir öld eftir öld og báru húsið uppi. Altari kirkjunnar var ætíð reist á sama stað. Und- ir því stóð stór klöpp eða hella, sem enginn hafði nokkru sinni látið sér til hugar koma að róta við eða kanna. En nú var kirkjan í Bæ orðin gömul, svo gömul, að enginn vissi aldur hennar með nokkurri vissu, né hve- nær hún hefði verið reist. En eins og önnur hús hafði hún einu sinni verið ný. Þá var hún fegursta og stærsta hús sveitarinnar, og fólkið var stolt af kirkjunni sinni nýju. Það kepptist við að skoða hana og fékk aldrei nóg af að dást að þessu eftirlæti sínu. Kirkjan var Guðs hús og griðastaður, hæli og heimili jafnt í sorg og gleði. Á hverjum Drottins degi kölluðu klukkur hennar söfnuð- inn heim á staðinn, þær hljómuðu með gleðiblæ á fagn- aðarstundum við brúðkaup og skírnir og þær kváðu þunglamalegt og dapurt líksöngslag, þegar menn voru bornir til hinnztu hvíldar í kirkjugarðinum í Bæ. Þann- ig hafði kirkjan verið þáttur í lífi hvers manns frá vöggu til grafar, þar lifðu menn sælustu fagnaðarstund- ir og sárustu sorgaraugnablik. Um kirkjuna hafði ómað samstilltur söngur safnaðarins, og úr prédikunarstóli hennar höfðu klerkamir kynslóð eftir kynslóð boðað fagnaðarboðskapinn eftir því sem bezt þeir kunnu, og lýst blessan Guðs yfir fólk og land. Þangað sótti söfn- uðurinn fræðslu og fullnægju. Hugur fólksins lyftist yfir hversdagsleikann við ljósadýrð og sálmasöng. Það naut þeirrar fegurðar og helgiljóma, eins og börnin gleðjast af jólakertinu sínu. Það unni kirkjunni sinni og bar lotningu fyrir helgi hennar. Árin liðu, tímarnir breyttust, en kirkjan í Bæ stóð óhögguð. Hún var eins og kletturinn, sem stendur óbif- anlegur í straumróti og iðukasti tímans. En þar kom, að nýir straumar brutust inn í sveitina og flóðu um hana með ótrúlegu afli og atgangi. Þessir nýju straumar hrifu æskuna með sér og létu gamla fólk- ið engan veginn ósnortið. Efnishyggja settist að völd- um og skaut örvum efans inn í hugi fólksins. Það var farið að tala um það, að ef til vill væri það ekki allt satt og rétt, sem kennt væri í kirkjunni. Fyrst í stað hvísl- uðu menn því ofurlágt á milli sín, en síðar ræddu menn það upphátt, meira að segja á almannafæri og sögðu það skýrt og skorinort, að „vísindin“ væru hér á öðru máli, og þau vissu hvað þau segðu. En svo hlálega vildi til, að þeir ræddu flest og töluðu hæst um vísindi og vísinda- legar niðurstöður, sem naumast gerðu sér þess grein, hvað vísindi raunverulega væru. En þetta stóð í blöð- unum, og þau höfðu sína vizku úr einhverjum erlend- um ritum, og hvað þurfti þá framar vitnanna við, því að svo fylgdust Bæjarsóknarmenn með tímanum, að þeir trúðu ekki sannleika íslenzkra vísindamanna. r Einn góðan veðurdag var svo sveitin morandi af alls konar fræðingum, búfræðingum, gagnfræðingum, iðn- fræðingum og hamingjan má vita hvað, meira að segja slæddust þangað einstöku sálfræðingar, sem raunar höfðu helzt þá nýjung fram að flytja, að engin sál væri til. Og sveitin tók framfarakipp, fyrst í orði, síðan í verki. Óræktarholt voru tætt í sundur, fúaflóar ræstir fram og því breytt Öllu í iðjagræn tún. Vatni var veitt á engjarnar, gripasýriingar voru árlegur viðburður, og verðlaunum var hlaðið á þróttmikla tarfa og lagðprúða hrúta. Moldinni var rótað upp og breytt í gull eða gulls ígildi. Þeir, sem þann töfrastaf báru, búfræðingarnir, 432 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.