Heima er bezt - 01.12.1964, Síða 6
Senn líður að jólum, og börnin eru þegar farin að
hugsa til jólanna með eftirvæntingu, sem þó á
eftir að aukast eftir því sem nær dregur hátíð-
inni.
Höfum við gert okkur ljóst hvað það er, sem börnin
hlakka mest til um jólin. Eru það ekki jólagjafirnar, sem
tilhlökkunin er aðallega bundin við?
Síðustu dagana fyrir jól er mikið annríki á heimilun-
um, senzt er út og suður til að kaupa jólagjafir, ails kon-
ar skraut og varning til jólanna, svo þau geti orðið sem
dýrðlegust.
Og svo koma blessuð jólin, veizluborð eru búin alls
konar kræsingum, fagurlega skreytt jólatré eru tendruð
og umhverfis þau hranna sig jólagjafimar. Börnin missa
matarlystina af tilhlökkun til að sjá í jólabögglana. En
svo líður að þeirri stundu, að jólagjafirnar eru teknar
upp. Leystur er hnútur á hverjum bögglinum á eftir
öðrum, börnin gleðjast eða svipurinn verður mæðuleg-
ur, allt eftir því hve gjafirnar em þeim mikils virði.
Það sem oft hefur vakið athygli mína er það, að oftast
eru það litlu einföldu gjafirnar, sem vekja mesta gleði,
að minnsta kosti hjá yngri börnunum, þau fella sig bezt
HULDA Á. STEFÁNSDÓTTIR:
JÓLIN
við það látlausa og einfalda. Fvrir nokkmm árum sá ég
litla stúlku taka upp jólabögglana sína, hún fékk marg-
ar dýrar gjafir eins og hin börnin á bænum, en gjöfin,
sem hún gladdist mest yfir var lítil taska með spegli og
greiðu handa brúðunni hennar. Allt kvöldið leit hún
ekki við annarri gjöf, litla taskan var henni dýrmætust.
434 Heima. er bezt