Heima er bezt - 01.12.1964, Síða 15

Heima er bezt - 01.12.1964, Síða 15
sem sagðir eru eitt af þrennu óteljandi á íslandi. Þá var einnig staðnæmzt um stund hjá minnismerki Stephans G. Stephanssonar og litið yfir Skagafjörðinn, sem „skein við sólu“ í allri sinni fegurð. Til Akureyrar var komið um kl. 8 síðdegis, og var gist á Hótel Varðborg. Engum kom þó til hugar að ganga til náða svo snemma, og hélt hópurinn út að skoða bæinn í veðurblíðunni. Fyrst löbbuðum við upp kirkju- tröppurnar og reyndum að telja þær, en bar ekki sam- an um, hve margar þær væru. Þá var og skoðuð hin veg- lega kirkja, sem helguð er minningu séra Matthíasar. Síðan var rölt um bæinn og dáðst að skrúðgörðunum, sem hvergi eiga sinn líka á landi hér. Segja má að tvennt sé það, sem alveg sérstaklega einkenni höfuðstað Norð- urlands: Blómskrúð og snyrtimennska. A sunnudagsmorgunn var aftur haldið af stað. Fyrsti áfangastaðurinn var Grund í Eyjafirði. Sjálfsagt þótti að skoða kirkjuna þar, sem er ein með fegurstu guðs- húsum landsins. Áfram var haldið, yfir Vaðlaheiði í Vaglaskóg, áð þar nokkra stund og nærst á skrínukosti og skógarilmi. Þá var haldið að Goðafossi, síðan að Grenjaðarstað og skoðað byggðasafnið. Mývatn var næsti ákvörðun- arstaður. Ekið var sunnanverðu við vatnið, fram hjá Skútustöðum og Garði, bæ Þuru, gengið í Dimmuborg- ir og TröIIakirkju. Landslag við Mývatn er sérkenni- legt og fagurt og mun verða okkur, sem sáum það þenn- an sólskinsdag, ógleymanlegt. Var nú degi tekið að halla og haldið heim að hótelunum, en þar beið okkar kvöldverður og gisting, og var öll þjónusta 'þar hin ágætasta. Mánudagsmorgunn rann upp með heiðskírum, blá- um himni, sem speglaðist í kyrrum fleti vatnsins. Áfram varð að halda, austur í Námaskarð og síðan áfram. Þar var hátt til lofts og vítt til veggja. Til hægri, langt í fjarska sást Herðubreið fögur og tíguleg, þar sem hana bar við himinn. Þegar komið er austur yfir Jökulsá, er beygt í norður, ekið niður með ánni að Detti- fossi, sem „kveður sterkt svo standberg nötra“. Síðan er enn haldið áfram niður Axarfjörð og aftur yfir Jök- ulsá, en nú vestur yfir og skömmu síðar er ekið inn í eitt af undrum veraldar: Ásbyrgi. Farið var fyrir Tjörnes til Húsavíkur, síðan sem leið lá til Akureyrar, þar sem gista skyldi næstu nótt. Á þriðjudagsmorgunn var árla risið úr rekkjum, því nú þurfti að nota tímann vel fram að hádegi, en þá átti að halda heim. Eftir var að skoða m. a. Nonnasafnið, Lystigarðinn og svo að reyna viðskiptin í hinum glæsi- legu verzlunum. Um eitt leytið var svo lagt af stað heim. Var nú að- eins eftir að skoða kirkjuna á Þingeyrum, sem Ásgeir Einarsson alþingismaður lét reisa þar, fyrir nálægt 90 árum, og lagði fram af eigin fé tæpa 2/3 kostnaðarverðs- ins. Kirkja þessi er einhver sú fegursta á landi voru. Var nú haldið áfram heimleiðis og ekið um Laxárdals- heiði og út Skógarströnd, og þótt við hefðum heillast af fegurð Norðurlands, þá fannst okkur samt fegurst við Breiðafjörð með sínar óteljandi eyjar. Síðla kvölds komum við heim til Stykkishólms úr þessari lengstu ferð, sem enn hefur verið farin á vegum kvenfélagsins. Þátttaka var mjög góð, og gekk ferðin í alla staði að óskum, enda veðurguðirnir okkur dásam- lega hliðhollir. ÞÓRHILDUR JAKOBSDÓTTIR: um við aö Eigum við að spinna úr vetrar nöprum vindum vorsins hlýja þráð? Eigum við að vefa úr klakans kalda garni klæði af sólskinsbráð? Eigum við að seiða fram úr svörtum næturskuggum sólskinsdægur löng? Eigum við að breyta byrstum byljasogum í blíðan fuglasöng? Eigum við að rækta úr urð og gráu grjóti grænan sléttan völl? Eigum við að byggja úr bleiku mánaskini bjarta silfurhöll? Eigum við að leggja um gróna götuslóða glæstan beinan veg'? Og ganga svo til sælla sólskinslanda saman, þú og ég? <-------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Fremsta röð frá vinstri: Kristensa Jónsdóttir, Camilla Kristjánsdóttir, Vilborg Lárusdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Soffía Pálsdóttir, Ásta Pálsdóttir, Magðalena Pálsdóttir, Soffía Guðmúndsdóttir, Guðbjörg Helgadóttir. Miðröð frá vinstri: Sigurborg Jónsdóttir, Maria Bjarnadóttir,Maggj Lárenzinusdóttirjóhanna Bjarnadóttir, Unnur Jónsdóttir, Edda Kristjánsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Margrét Tómasdóttir, Ólöf Ólafsdóttir, Fanney Ólafsdóttir, Kristin Þórarinsdóttir, Kristín Davíðsdóttir, Lovisa Ólafsdóttir, Ingibjörg Pétursdóttir, Jóhanna ]óhannsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Ragna Hansen, Bergþóra Þorgeirsdóttir, Asta Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Petrína Scemundsdóttir, Sólborg Bjartmars, Sigriður Bjarnadóttir, Hansína Jóhannesdóttir, Pet- rea Andrésdóttir, Guðmunda Jónasdóttir, Unnur Torfadóttir, Magðalena Níelsdóttir, Dagbjört Nielsdóttir. Heima er bezt 445

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.