Heima er bezt - 01.12.1964, Side 28

Heima er bezt - 01.12.1964, Side 28
breyting í þessum efnum. Þegar hefur verið getið um Sunnanfara og Skírni. Haukur hóf göngu sína vestur á ísafirði 1898, tók hann brátt að flytja myndir, bæði myndskreyttar sögur og síðar fréttamyndir af ýmsu tagi. Mnn ætlun útgefanda, Stefáns Runólfssonar, hafa verið að hafa Hauk eitthvað í líkingu við hin vinsælu dönsku blöð Hjemmet og Familie-Journalen. En útgáf- an gekk illa, og kom Haukur síðast út 1914, og var þá lokið 11 árgöngum. Var hann þó vinsæll, enda flutti hann spennandi reyfara, m. a. byrjuðu Leyndardómar Parísarborgar að koma út í Hauk, skreyttir fjölda mynda. Þegar Sunnanfari hafði hætt göngu sinni um skeið hóf Þorsteinn Gíslason útgáfu Óðins 1906. Var hann að efnisvali mjög skyldur Sunnanfara, og flutti fjölda mynda, einkum mannamynda. Innan í Ó-inu í nafni blaðsins á kápu var mynd af Óðni með hrafna sína. Þá verður að geta barnablaðanna tveggja, Æskunnar og Ungs íslands, sem bæði fluttu mjög margt af myndum þegar frá upphafi, en Æskan var stofnuð 1898 og Unga Island 1905. Hlutu þau miklar vinsældir unglinga og áttu myndirnar vissulega sinn þátt í því. Einnig flutti unglingatímaritið Fanney 1905—1909 allmikið af mynd- um. Má yfirleitt segja, að flest þau tímarit, sem stofnuð voru eftir aldamótin, og ekki sízt þó þegar kom fram á annan tug aldarinnar hafi flutt meira eða minna af myndum, enda þótt myndamót yrði enn að sækja til út- landa. Verður það ekki nánar rakið hér. En þótt tímaritin væru myndasnauð, voru vikublöð- in það ekki síður. Að vísu skal það ekki fullyrt, en nær er mér að halda, að mynd hafi ekki sézt í íslenzku viku- blaði fyrir aldamót, þegar frá eru tekin sérstök hátíða- blöð, svo sem 50 ára afmælisblað Þjóðólfs. Ekki vil ég þó fullyrða þetta, því að mér hefur ekki gefizt kostur á að fletta blöðum sem skyldi til að ganga úr skugga um það. Meðal hinna fyrstu blaða, sem flutti myndir var Gjallarhorn á Akureyri á árunum 1902—04. Flutti það meðal annars allmargar myndir frá stríðinu milli Rússa og Japana. Annars fer ekki að koma verulegur skriður á, að blöðin flytji fréttamyndir fyrr en á styrjaldarár- unum 1914—18. Voru þá myndir frá stríðinu í þeim að, staðaldri, en eins og vænta mátti, voru þær nokkurra vikna gamlar, þegar þær komu til íslands og enn eldri, þegar þær komu í hendur íslenzkum lesendum eins og samgöngum var þá háttað, en vel voru þær þegnar og vissulega skoðaðar af meiri vandvirkni en þær myndir, sem vér fáum nú daglega heim til okkar af atburðum, sem gerzt hafa lengst úti í heimi fyrir fáeinum klukku- stundum. Ekkert skal fullyrt um, hvaða blöð hafi gerzt brautryðjendur í myndflutningi, en ætla má að hin ungu dagblöð, Vtsir og Morgunblaðið hafi verið þar framarlega og við hlið þeirra gömlu vikublöðin ísafold og Lögrétta. Hér hefur verið drepið á sitthvað um myndir í blöð- um og tímaritum fram á annan áratug þessarar aldar. Þótt fljótt sé yfir sögu farið verður ljóst, að ekki var um auðugan garð að gresja í þessum efnum, og að myndir eru bæði fábreyttar og fáar allt fram undir 1920. Var það einkum þrennt, sem til kom. Kostnaður við öflun mynda og myndamótagerð, vanhæfni margra prentsmiðjanna að prenta myndir, svo vel færi á, og þó umfram allt það, að engin myndamótagerð var til í landinu sjálfu. Meðan svo stóð á, var vitanlega ókleift að heita mátti að flytja samtíma fréttamyndir. Það þótti því nokkrum tíðindum sæta, þegar Morgunblaðið flutti samtíma myndir í sambandi við morð, er framið var í Reykjavík 1913. Voru þær skornar í linoleum og frem- ur illa gerðar sem vænta mátti. Árið 1920 hóf Ólafur Hvanndal prentmyndagerð í Reykjavík og lætur Eimreiðin þess getið í fyrsta hefti þess árgangs, að höfundamyndirnar, sem þar eru birtar, en það var þá nýjung að birta myndir höfunda með greinum þeirra, séu fyrstu myndirnar, sem hér séu gerð- ar eftir ljósmyndum. Með íslenzkri prentmyndagerð verða tímamót í sögu íslenzkrar bókagerðar og blaðaútgáfu. En um líkt Ieyti og hún hófst gerast og þau tíðindi að risin er upp stétt íslenzkra málara og teiknara, sem taka að gera myndir í bækur og blöð, verður síðar að því vikið nánar. Hér skal aðeins bundinn endi á sögu myndagerðar í blöð- um og tímaritum með því að geta Spegilsins, sem stofn- aður var 1926. Eins og menn minnast, var hann skop- blað, og teikningar ætíð mikilvægur þáttur í því, sem hann flutti. Gerði Tryggvi Magnússon listmálari flest- ar þeirra á fyrri árum Spegilsins. Tveimur árum yngri en Spegillinn var Fálkinn, sem tók upp þann þráðinn, er Haukur hafði látið niður falla, en nú með miklu meiri myndarbrag, enda ólíkar aðstæður. Lifir hann enn bezta lífi, enda þótt margir keppinautar hafi risið á legg. Er fróðlegt að bera saman hin fyrstu blöð Fálkans frá 1928 og blöðin eins og þau eru í dag. Sá samanburður segir oss langa sögu um þróun tækninnar á sviði íslenzkrar myndagerðar og myndprentunar. (Framhald.) SLÉTTUBÖND eftir Friðbjörn í Staðartungu. Saman flétta bragi ber, bundna nettum höndum. Gaman þetta ekld er undir sléttuböndum. FRÍMERKJASAFNARAR Einar Jakobsson, Dúki, Sæmundarhlíð, Skagafirði, auglýsir: Halló krakkar og frímerkjasafnarar! Sendið mér 30 eða fleiri heil íslenzk frímerki og ég mun senda ykkur 100 mismunandi útlend í staðinn. Jón H. Magnússon, Lækjarskógi, pr. Brautarholti, Dalasýslu, auglýsir: Frímerkjasafnararl Fyrir merki frá 1900—1940 fáir þið 7 erlend í staðinn; fyrir merki frá 1941—1953 fáið þið 6 erlend; fyrir merki frá 1954-1964 fáið þið 5 erlend. 456 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.