Heima er bezt - 01.12.1964, Side 29

Heima er bezt - 01.12.1964, Side 29
SÓLVEIG BENEDIKTSDÓTTIR s úsmœöur Nú nálgast jólin óðum og allar reynum við eftir mætti að undirbúa komu þeirra, svo að þau verði öllum á heimilinu gleðileg og góð. En þurfum við nú að hafa alveg eins mikið fyrir hlut- unum og nú tíðkast? Er ekki of mikil áherzla lögð á íburð, jafnvel óhóf í mat og drykk, skreytingum og klæðnaði? Helgi hátíðarinnar verður ekki meiri með auknum íburði. Þvert á móti. Og gerum við ekki of mikið að því að taka upp alls konar erlenda siði, en gleymum að halda í heiðri okkar eigin erfðavenjum? Þá held ég, að flest heimili hafi sína sérstöku rétti á borðum um jólin. Og öll viljum við innst inni hafa allt „eins og það var heima“. Hangikjötið er alls staðar talið sjálfsagt, en laufa- brauðið virðist því miður vera á undanhaldi. Eg hef heyrt, að íslendingar í Vesturheimi teldu nokkra rétti vera sérstaklega íslenzka og þar teljast þeir til hátíða- rétta, t. d. kleinur, pönnukökur með sykri, vínartertu, rúllupylsu o. fl. Gætum við ekki betur haldið í heiðri okkar gömlu þjóðarréttum en við gerum nú? Ég hef heyrt, að laufabrauð sé nú aðeins búið til á Norður- og Austurlandi, en áður fyrr um allt land. Oskandi væri, að allar íslenzkar húsmæður tæki nú upp þennan gamla og góða sið. Væri þættinum kært að fá sendar upp- skriftir af laufabrauði frá húsmæðrum, því að mér er kunnugt um að það er ekki alls staðar eins. Ég geri engar uppástungur um aðalhátíðamatinn, en læt hér fylgja nokkra létta rétti á kalda borðið. SÚR SÍLD 2 saltsíldar 21/2 dl. borðedik eða vínedik 2 ms. vatn + 4 ms. sykur 2 laukar 4 lárviðarlauf 10 heil piparkom. Síldin er afvötnuð vel og flökuð. Edik, sykur og vatn er soðið saman og kælt mjög vel. Síldin er þerruð og skorin í fingurþykkar ræmur þversum og lögð í glas, en muldum pipar, lárviðarlaufi og sneiddum lauk kom- ið fyrir milli laga. Edikblöndunni hellt yfir og síldin geymist lengi í ísskápnum. Góð eftir 1—2 sólarhringa. TÓMATA SÍLD 4 kryddsíldarflök 1 dl. tómatsósa 1 ts. paprika 2 ms. salatolía 1 saxaður iaukur 1/2 dl. sherry 1/2 dl. borð- eða vínedik. Síldin er afvötnuð vel, þerruð og skorin í lengjur. Tómatsósu og öllu meðfylgjandi hrært vandlega sam- an og hellt yfir síldina. Góð eftir 3 daga. SVESKJUSULTA 1 kg. sveskjur Vatn 300—400 g. sykur. Sveskjurnar era lagðar í bleyti og soðnar í sama vatn- inu, þar til þær eru mjög meyrar. Kældar og hakkaðar og sykurinn látinn út í. Soðið um stund. Heima er bezt 457 /

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.