Heima er bezt - 01.12.1964, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.12.1964, Blaðsíða 34
Sólin ljómar og svellin þána og sumar er runnið nýtt. — Vellirnir grænka og vötnin freyða og vindar blása af suðri hlýtt. Þá siglir knörr við sjónarrönd í sunnan þey. — Leitar inn til landsins lítið fley. — Sólroðnar, vaggandi bárur bera bát á sand. — Jörðin angar mild og mjúlc. — Mennirnir stíga á land. Pater noster* þeir mæla af munni. — Mennirnir beygja sín kné. Drottni, sem leiddi’ oss um djúpið heila, dýrðin að eilífu sé. í öðrum ljóðaflokknum minnist hann Ingólfs land- námsmanns. Þar segir svo: Yfir höfði íslands þjóta ungar heillaspár. — Af hafi sighr háreistur knörr heiðríkt morguns ár. ísland fyllist eftirvænting og ísland ber sitt hátignar skrúð. Fleygið er borðhátt og skarað skjöldum, skínandi fögur gnoð og prúð. Við sólu á gullna lokka ljómar, á land upp gengur hin norræna sveit. — Ingólfur kominn — og ísland fagnar og aldrei fegurri sýn það leit. Og ylur heitur um ísland fer, — angan í lofti svellur. Það blikar á sylgjur á brjósti hvelfdu og barmurinn rís og fellur. Af knerrinum stíga konur á land, í kjarrinu þýtur við lygnan fjörð, og andvarinn hleypur fagnandi í fang því fegursta hér á jörð. Og blærinn klappar og barminn strýkur og brjóstin kyssir og heitan munn, og fagnandi blærinn faldinum lyftir, — þá freyðir snöggvast hin bjarta unn. Upphaf íslands byggðar Ingólfs koma varð. * Pater noster = Faðir vorið. Skáli er gjör og veður vaxa og veturinn fer í garð. í tólfta ljóðinu minnist hann þúsund áranna hðnu frá setningu Alþingis: Fagurt var á fyrri tíð feðra vorra land, — ymur sama alda blá upp við fjörusand. Eins er haf og himinn og heiðaveldin blá, sunnanblærinn samur og sólin eins og þá. Örsnöggt fellur aldamóðan yfir jarðarlýð. Ungum finnst til elli langt, undrast slíka tíð. Þrosldnn undrast ekki alda þankastrik. — Þó að líði þúsund ár, þetta er augnabhk. Á þessum árum kringum alþingishátíðina voru mörg upprennandi góðskáld á íslandi. Eitt þeirra var Tómas Guðmundsson, sem nú er eitt af þekktustu Ijóðskáldum þjóðarinnar og er hann stundum nefndur borgarskáld, af því hann hefur ort svo margt fallegt um höfuðborg- ina okkar, Reykjavík. í júníblaðinu í Perlum 1930 birtist fallegt ljóð, sem alhr lærðu, eftir hið unga borgarskáld Tómas Guð- mundsson. Kvæðið heitir: Hanna litla og birti ég það hér með leyfi höfundar: Hanna litla! Hanna htla! Heyrirðu ekki vorið kalla? Sérðu ekki sólskinshafið silfurtært um bæinn falla? Hanna litla! Ljúfir draumar líða enn um hjarta mitt, — Ijúfir draumar ungrar æsku, ef ég heyri nafnið þitt. y Hanna litla! Hanna htla! Hjartans barnið glaðra óma. Ástaljóð á vorsins vörum, vorsins álfur meðal blóma. Þín er borgin björt af gleði, borgin heit af vori og sól. Strætin syngja. Götur glóa. Grasið grær á Arnarhól. Hanna litla! Hanna litla! Hersveitir af ungum mönnum 462 Heima er bezt I

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.