Heima er bezt - 01.12.1964, Síða 38

Heima er bezt - 01.12.1964, Síða 38
Ný framhaldssaga eftir MAGNEU FRÁ KLEIFUM FYRSTI HLUTI I. UNGFRÚ SPURUL „Afi.“ „Já, Hanna mín?“ „Hvernig eru elliheimili?“ „Vertu nú ekki alltaf að hugsa tun þessi elliheimili, heillin mín. Farðu heldur út og leiktu þér við Neró.“ „Já, en hvernig eru þau?“ „Hver?“ „Elliheimilin.“ „Ég er oft búinn að segja þér, að það er bara stórt hús, sem kallað er elliheimili vegna þess, að þar eru bara gamalmenni.“ „En ellin, er hún þar?“ „Hvað segirðu, barn?“ „Ég spurði, hvort ellin væri þar, og hvernig er hún? Er það kerling Ijót eins og Grýla gamla, eða er hún eins og Setta, sem kom hér einu sinni, og þú sagðir að væri eins og .... “ „Ef þú hættir ekki þessu bulli, Hanna María, verð ég reiður. Svona, farðu nú út,“ sagði afi ákveðinn, áður en Hönnu vannst tími til að segja, hverjum afa hefði fund- izt Setta vera lík. „Afi?“ „Farðu út.“ „Afi minn, segðu mér bara frá ellinni, þá skal ég fara.“ Afi andvarpaði. Svo kallaði hann fram í eldhús til ömmu: „Heyrðu, heillin mín, viltu ekki segja henni ungfrú Spurul, hvað ellin er.“ Amma kom inn í dymar. Hún var að steikja lummur, því í dag var uppboð heima á Fellsenda, og hún bjóst við, að margir myndu koma og fá sér kaffi í Kotinu. Hallfríður gamla myndi hafa í nógu að snúast, þó að hún losaðist við að gefa gestunum kaffi. „Farðu fram í stofu, láttu dúk á borðið og raðaðu svo bollunum fallega á það fyrir mig, þá skal ég gefa þér stóra lummu,“ sagði hún og brosti. „Fær Neró líka lummu?“ „Ef hann er þægur og stilltur.“ Hanna María gekk fram í litlu stofuna og tók til að leggja á borðið. Það fannst henni reglulega gaman. All- ir fallegir litir komu henni í gott skap. Borðdúkurinn var svo snjóhvítur með mjóum allavega litum bekkjum og pínulitlum bláum og rauðum blómum saumuðum í kring í miðjuna og í öll hornin. Bollarnir voru líka fín- ir. Þeir komu frá útlandinu, sagði afi, og í útlandinu var allt svo fínt og fallegt. Þar gat maður tínt epli og appelsínur eins og berin hérna í kotinu, og gráfíkjur og rúsínur og döðlur, allt óx þar á trjánum. Hún hafði séð það sjálf á myndum, sem kaupakonan á Fellsenda hafði átt. „Hanna, ertu ekki að verða búin?“ kallaði amma, svo að Hanna varð að sigla hraðbyri heim frá útlandinu og fara inn í eldhús til ömmu. En þegar hún væri orðin stór, ætlaði hún að fara og skoða allar þessar dásemdir, sem myndirnar í bókunum sýndu henni. „Þurrkaðirðu nú vel af bollunum?“ „Já, amma mín, og ég lét lausu diskana réttu megin. Megum við Neró nú fá lummu?“ Amma rétti þeim sína lummuna hvoru. Hanna kyssti hana fyrir, en Neró rétti kurteislega fram hægri fótinn og bofsaði. „Verið þið nú úti á hlaði og segið mér, ef einhver kemur heim,“ sagði amma. Hanna gekk út og horfði heim að Fellsenda. Þar voru margir menn samankomnir á hlaðinu framan við gamla bæinn. Þetta var stór bær, og hafði einu sinni þótt reisu- legur, en nú var hann orðinn gamall, þilin farin að hall- ast fram á hlaðið, og hrunið úr veggjunum. Allt í einu datt Hönnu dálítið skrítið í hug. Átti hún að fara inn og segja ömmu það? Nei, það var bezt a<ð spyrja afa í kvöld, hvort þetta væri ekld rétt hjá henní. En það var nú samt ósköp leiðinlegt, að Hallfríður og Hinrik og Solla gamla skyldu þurfa að fara frá Fell*- enda til að fara á elliheimili. 466 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.