Heima er bezt - 01.01.1965, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.01.1965, Blaðsíða 6
Við áramót Árið 1964 er liðið í skaut aldanna. Viðburðaríkt og með sínu sérstaka svipmóti, eins og raunar öll ár eru. Þótt oss finnist sem rás viðburðanna sé sífelld endur- tekning, hefir þó hver dagur, að ég ekki tali um hvert ár, sinn svip, sín einkenni, ólík öllum öðrum, þrátt fyr- ir órofa samhengi í rás sögunnar. Vér segjum að vísu oft, ..að sagan endutaki sig.“ en sú endurtekning nær þó ekki nema að tilteknu marki. Nær væri að segja, að orsakir og afleiðingar endurtækju sig. Líkar forsendur gefa líkar niðurstöður, en forsendurnar verða sjaldnast alveg þær sömu á mismunandi tímum, þótt snertideplar þeirra séu margir. Með því að meta þá, fáum vér smám saman lært af reynslunni, og ef vér gefum oss nægan tíma, skyggnst inn í framtíðina að tilteknu marki, líkt og veðurfræðingurinn spáir veðri eftir útreiknaðri braut lægðanna. En þær geta breytt um stefnu, og mannshugurinn er breytilegur, vér sjálfir erum ekki lengur þeir sömu, og vér vorum fyrir ári síðan, þótt vér gerum oss það ef til vill ekki ljóst. I því liggur oft vor stærsta reikningsskekkja. Vér skynjum hlutina öðruvísi en vér gerðum fyrr. Áramótin eru tími reikningsskila. Viðskiptareikning- ar daglega lífsins eru gerðir upp, og vér leitumst við að hefja nýtt ár með hreint borð fyrir framan oss. Vér viljum skrá sögu þess á hreint blað, óflekkað af mistök- um liðins árs og án skulda við fortíðina. En oss tekst það sjaldnast til fulls. Lögmál orsaka og afleiðinga fylgir oss. Vér fáum ekki máð burt spor liðins tíma, •og hljótum að hlíta afleiðingum af víxlsporum þeim og villustigum, sem vér höfum fetað á liðnu ári. En vér njótum einnig góðs af því, sem vel hefir tekizt, svo að vér getum fært dálka tekna ekki síður en gjalda, ekki aðeins á sviði viðskiptanna, heldur einnig við lífið sjálft. Nú eins og endranær heyrum vér fregnir frá hinum stóra heimi, og einnig úr voru tiltölulega þrönga um- hverfi. Vér heyrum dóma um liðið ár og spásagnir um hið nýja af vörum þeirra, sem forystuhlutverkum gegna nær og fjær. Einangrun lands vors er rofin, og vér stöndum við barminn á hringiðu heimsviðburð- anna, og vér hljótum að gera oss ljóst, að líf þjóðar vorrar er háð þeim straumi, sem engin þjóð fær lengur umflúið, hversu lítil sem hún er, og hversu einangrað, sem land hennar kann að vera. Oss verður að skiljast það, að ekkert er oss hættulegra en að hlaða um oss múr einangrunar og stinga höfðinu í sandinn, til þess að skynja ekki það, sem gerist kringum oss. Einangrun- armúrinn getur aldrei orðið nema stundarhlíf. Og þegar hann rofnar er ekkert vísara, en að oss yrði skolað varn- arlausum með öllu í sjálfan meginflauminn. \rér hyrf- um eins og dropinn í hafið. Oss er lífsnauðsyn að halda opnum gluggum og gáttum til umheimsins. Fylgjast með rás viðburðanna og taka þátt í samstarfi þjóðanna eftir því sem efni vor leyfa. En jafnframt að vega gaumgæfilega þau áhrif sem oss berast, samlaga menn- ingarstrauma umheimsins þjóðlífi voru og menningu, en láta þá hvorki gleypa oss, né loka þá úti. Vér höfum heyrt, að friðvænlegar horfi nú í heims- málunum en löngum fyrr. Samt berast oss daglegar fréttir af blóðugum átökum hingað og þangað í heim- inum. Þjóðir, sem hafa nýfengið frelsi sitt, berjast inn- byrðis, og úr fjarlægð virðist sem þær hafi sloppið frá sínum fyrri kúgurum, til þess eins, að verða öðrum harðstjórum að bráð. Frelsið, þessi dýrasta eign manns- ins, virðist vera vandmeðafarnara flestum gjöfum for- sjónarinnar. Og alltof oft virðist sem frelsisþrá mann- anna sé notuð, til þess að lyfta harðstjórum og ein- ræðisherrum upp í valdastóla. Þegar sessinn er nægi- lega traustur að þeirra dómi, ræður vilji einvaldans, þegninn er jafnréttlaus og áður. Því miður virðist margt benda til, að slík \rerði örlög ýmissa þeirra þjóða, sem nú eru að heimta frelsi sitt. En þarna virðist mesta hættan vofa yfir heimsfriðnum. Forystumenn lýðræðis- ins ýmist sjá ekki eða geta ekki varizt þessari ógn. Þeir þurfa í mörg horn að líta, þar sem einræðisherrarnir taka ekki tillit til nema síns eigin vilja. Og meðan til eru einræðisríki í heiminum, sem hafa það að stefnu- marki, að þröngva stjórnarfari sínu og lífsviðhorfum upp á aðrar þjóðir og svífast einskis í þeim efnum hangir heimsfriðurinn á bláþræði, þrátt fyrir allar um- ræður og pappírssamninga um afvopnun og bönn við kjarnorkuvopnum. Fyrst þegar þjóðirnar taka fullt til- lit til skoðana hverra annarra, og láta af að þröngva sínum viðhorfum upp á aðra, og mannréttindi og mannhelgi, eins og þau hafa verið bezt túlkuð og skil- greind, verða almennt viðurkennd í verki, er friðarvon. Vér fslendingar höfum notið árgæzku til lands og sjávar. Samt hljótum vér að ugga nokkuð um framtíð- ina, því að ýmsir örðugleikar steðja að, sem vér þó eigum mesta sök á sjálfir. Þjóðin er haldin af tveimur höfuðmeinsemdum, deilugirni og hófleysi. Vér deilum, oft að því er virðist til þess eins, að unna ekki andstæð- ingum sannmælis. Gagnrýni vor er næstum ætíð nei- 2 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.