Heima er bezt - 01.01.1965, Page 9

Heima er bezt - 01.01.1965, Page 9
Foreldrar Þórðar í Vallnatúni, Kristin Magnúsdóttir og Tómas Þórðarson. Við höldum áfram út með Fjöllunum og stönzum næst við Holtsá. Nú er hún ósköp lítil og sakleysisleg, þar sem hún rennur blá og tær undir brúnni. En eins og kunnugir vita er þetta vatnsfall hið mesta forað, sem olli verstu spjöllum á nærliggjandi jörðum áður en hún var heft. Heila jörð hefur hún lagt í eyði — Hellnahól. Enn sér móta fyrir bæjartóttunum rétt við veginn á grænum hól við rætur Holtsnúps. Við göngum upp á hólinn og fáum okkur þar sæti á grænum þúfnakollum. Nú gefum við Þórði orðið. Það, sem hann segir okkur um Hellnahól hefur hann eftir gamalli konu, sem hann ólst upp með í Vallnatúni, Arn- laugu Tómasdóttur (f. 1860 — d. 1944). Hellnahóll lét ekki mikið yfir sér og auðnarlegt var að líta þar til fjallsins, með klettum og skriðum niður á jafnsléttu. Oðru vísi hafði verið þar um að litast, áður en skrið- urnar féllu. Sagan sagði, að ekki hefði verið hægt að finna þar stein til að henda fyrir kind, og átti ekki að vera langt til þess að rekja. Örnefnið Kálfaból efst í skriðunum minnti á þá sældarhaga. í skriðunum upp af bænum í Hellnahóli var smátorfa, sem hafði staðið af sér öll ofanföll. Gamla fólkið trúði því, að í henni byggi huldufólk og sæi henni borgið. Oft sást þar ljós í glugga hjá því. Lauga hitti einu sinni gamlan lesta- mann austan af sveitum í Hellnahólsgrjótum. Hann benti á torfuna og sagði: „Þegar ég var drengur, var mér leyft að fara með á Bakkann til gamans en ekki gagns. Torfan þessi var þá eins og hún er núna. Það er einhver hulinn kraftur, sem hlífir henni.“ Við skriðuræturnar norðan við Hellnahólsbæinn var dálítill blágrýtisklettur. Seitlar smálind undan honum. Hann var kallaður Einbúi. Þar átti huldufólk heima og fór ekki alltaf dult með sig. Algengt var að sjá ljós í Einbúa. Einu sinni vildi það til hjá foreldrum Laugu um vetrarmjaltir í vökulok, að sækja þurfti vatn handa kú. Fór Tómas að sækja það. Vatnsbólið var þá rétt vestan við bæinn. Uti var tunglsljós og heiðbjart loft. Tómas sá, að kona gekk frá vatnsbólinu norður að Ein- búa og bar vatnsskjólur. Hafði hann orð á því, þegar inn kom, að fleiri hefðu þurft að sækja vatn í Hellna- hóli í kvöld en hann. Hvergi var þó jafnmikið um huldufólk og í bæjar- hólnum. Gengu af því margar sögur, gamlar og nýjar. Einu sinni átti að hafa heyrzt kálfsbaul undir búrgólf- inu í Hellnahóli. Var þá ein huldukýrin að bera. Bónda í Hellnahóli dreymdi, að til hans kom kona, sem sagði: „Þær skulu dropa kýrnar þínar, meðan þú hreyfir ekld við hólnum.“ Bóndinn gætti þess að gera aldrei jarð- rask við bæinn og blessaðist þar líka vel. Síðar vildi misbrestur á þessu verða og gekk þá bændum úrhendis, meir en minna. Þorvaldur Björnsson vissi um helli í háhólnum og hugðist hreinsa hann út. Lét hann vinnu- mann sinn byrja að grafa til hellismunnans. Nóttina eftir dreymdi Þorvald, að hann kom út og gekk austur Heima er bezt 5

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.