Heima er bezt - 01.01.1965, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.01.1965, Qupperneq 12
Hjónin i Vallna- túni og dœtur þeirra. Enn- fremur Olöf Jónsdóttir. Hún var hjá Tómasi allan hans bú- skap, d. 1963. Magnús Gíslason og Jón R. Hjálmarsson, hafa reynzt þessu safnsmáli miklir drengskaparmenn. Hefur hinn síðarnefndi verið formaður safnsnefndar nú um langa hríð. Árið 1959 brugðu foreldrar Þórðar búi í Vallnatúni. Fluttust þau þá með Þórði syni sínum að Skógum, þar sem hann hafði byggt sér fallegt hús á grundinni vest- an við safnshúsið, og ef hægt er að segja það um nokk- urn mann, að hann sé réttur maður á réttum stað, þá er það Þórður Tómasson sem forstöðumaður Byggða- safnsins undir Eyjafjöllum. Alla daga er hann valdnn og sofinn um hag þess og framgang. Hvar sem hann hefur grun um, að til sé einhver sá gripur, sem vert muni að varðveita, þar er hann kominn til að bjarga honum frá glötun og gefa hann framtíðinni. Víða hef- ur hann komið á elleftu stundu, og aldrei mun Þórð- ur glaðari heldur en þegar vel og giftusamlega hefur tekizt slíkt björgunarstarf. — En ekki er honum nóg að leggja leið sína þangað, sem hann veit slíka hluti í vörzlu mannanna. Hann gengur líka á reka. Hann fer á fjörur, þar sem hann veit að jörðin er að skila aftur einhverju af því, sem árin og aldirnar hafa grafið í skaut hennar. Frammi við sjó undir Austur-Eyjafjöll- um nokkru vestan við Eyvindarhóla stóð til forna bær- inn Stóruborg, sem Jón Trausti gerði frægan í Góð- um stofnum. Þarna hefur auðsjáanlega verið stórbýli fyrr á öldum, því að bæjarstæðið er geysimikið um sig. Nú ber bæjarhóllinn fá merki þess iðandi lífs, sem áður hrærðist á þessum slóðum. Utan úr hólnum er sífellt að brotna fyrir ágang vatna og sjávarróts. Alltaf öðru hvoru leggur Þórður leið sína fram að sjó til að ganga þama á reka og tína upp og taka til handar- gagns það sem komið hefur upp á yfirborðið við síð- asta landbrot. Og oft verður honum gott til fanga. Ekki er langt síðan hann fann þarna kvarnarstein úr norsku graníti. Það er trúlegt, að hann sé úr búi Stóruborgar- Onnu. Það væri að vísu ekki rétt að orði komizt, að þar sem byggðasafnið er, hafi Þórður Tómasson verið einn að verki. Safnsnefndin hefur starfað vel, og almenn- ingur um Rangárþing og Skaftárþing hefur sýnt safn- inu mikinn skilning og velvilja. Hitt má líka fullyrða, að þennan skilning og velvilja hafi Þórður átt þátt í að skapa með óþreytandi elju í starfi og fölskvalausri ást á verkefni sínu. Þórður Tómasson hefur vakið og eflt þann skilning með fólkinu, að byggðasafnið sé sú uppspretta þekkingar, sem þjóðin má ekki án vera, ef þræðirnir við fortíðina eiga ekki að slitna. Þess vegna hafa þjóðhættirnir sífellt verið að skapa sér meira rúm í fræðimennsku Þórðar Tómassonar. Framan af hafði hann mestan áhuga á ættfræði, persónusögu og þjóð- sögum eins og útgáfa hans á Eyfellskum sögnum og Sagnagesti bera með sér. En nú sitja þjóðhættirnir í fyrirrúmi. Og söfnun fornra muna, skráning þeirra og varðveizla, er brýnasta verkefnið á þessu sviði nú í dag, því að nú eru þeir óðum að hverfa af sjónarsvið- inu, sem geta veitt heimildir um það, hvernig þessir munir urðu til og til hvers þeir voru notaðir. Eftir einn eða tvo áratugi verða þeir engir til, sem geta svalað forvitni okkar, svarað spurningum okkar um það, hvaða venjur og verk voru tengd þessum fomu mun- um. Við gerum okkur tæpast ljóst hve tímarnir breytast ört á þessu sviði. „Til hvers var þetta notað?“ segja börnin og benda á aktygi, sem hanga mygluð úti í skemmu. „Sjáðu hvað ég fann, pabbi, er þetta ekki skrýtið?" segir smásnáði og sýnir föður sínum reipa- slitur. Hann hefur aldrei séð hey bundið í bagga og veit ekki hvað reipakapall er. Mér kom það líka á óvart að sjá hestvagn á byggðasafninu í Skógum. Ég þurfti dálitla stund til að átta mig á, að hann er að verða „forngripur“ enda þótt hann sé ekki nema fárra ára- tuga gamall. Svona eru hlutirnir fljótir að fyrnast á þessum tímum hraðans og hinna öru breytinga. Svona gagngerðum stakkaskiptum taka atvinnuhættir þjóðar- innar á fáum árum. Þegar þessa er gætt, þá sjáum við hve dýrmætt það er, hve ómetanlegt það er, fyrir okk- ur að eiga í sem flestum byggðarlögum menn eins og Þórð Tómasson, sem hafa næma tilfinningu og glöggt auga fyrir því, sem er að gerast og hafa megnað að vekja fólkið — bæði almenning og yfirvöld — til skiln- ings á því hvað í húfi er. Eins og gefur* að skilja telur Þórður Tómasson að Þjóðminjasafnið sé íslands dýrmætasta eign. En eru þá byggðasöfnin ekki óþörf? Nei, fjarri fer því. Þau hafa sínu mikilsverða hlutverki að gegna, hvert á sínu sviði, hvert á sínum stað. Þau bjarga mikilli mergð gamalla Framhald á bls. 22. 8 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.