Heima er bezt - 01.01.1965, Page 17

Heima er bezt - 01.01.1965, Page 17
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖÐUM: ur og mync li r iii. Myndir í bókum til 1930. Myndamót Hólaprentverksins voru útslitin af alda- langri notkun. Prentsmiðjan eða síðustu leifar hennar voru sameinaðar Hrappseyjarprentverki suður á Leir- árgörðum. Og þótt ný öld væri hafin, og framkvæmda- stjóri hins nýja prentverks, Magnús Stephensen, væri bæði stórhuga og hámenntaður, gerði hann enga til- raun til að skreyta bækur sínar með myndum. Og í raun réttri má heita svo, að myndir sæjust varla í ís- lenzkum bókum alla 19. öldina, og þó minnst í þeim bókum, sem prentaðar voru í Reykjavík. Bar þar margt til. Islenzku prentsmiðjurnar skorti alla möguleika, til að prenta myndir svo vel færi fram á síðasta tug aldar- innar. Engir íslendingar kunnu að gera myndir eða myndamót til prentunar, og meðan ljósmyndatæknin kom lítt til sögunnar, var ekki að búast við miklu myndavali. Kostnaður við öflun mynda frá útlöndum var bæði mikill, og auk þess fylgdu því ýmsir örðug- leikar. Þá má og vera, að íslenzka bókagerðarmenn hafi skort smekkvísi, til þess að skreyta bækur sínar mynd- um. Ekki mun nokkur bók prentuð í Viðey hafa verið myndum skreytt. Að vísu var Stjörmifræði Ursins, sem prentuð var í Viðey 1842 með 4 eirstungutöflum, en grunur minn er, að þær hafi verið prentaðar erlendis. Lítil breyting verður til batnaðar, þótt prentsmiðjan flyttist til Reykjavíkur. Myndir munu naumast hafa verið prentaðar í Reykjavík fyrr en eftir að ísafoldar- prentsmiðja kemur til sögunnar 1877 og síðar prent- smiðja Sigmundar Guðmundssonar 1883. Mun Sig- mundur hafa verið brautryðjandi á því sviði, bæði rneðan hann var yfirprentari í Isafold og síðar. Elztu myndskreyttu Reykjavíkurbækurnar, sem ég hef rek- izt á eru kennslubækur Benedikts Gröndals, Dýrafræði og Steinctfræði. Þakkar Gröndal í formálum þeirra Birni Jónssyni, eiganda Isafoldar fyrir, hversu vel bæk- urnar séu úr garði sjerðar að letri, og að hann hafi lagt í þann kostnað að kaupa til þeirra myndir, og var það að maldegleikum. Annars má segja, að myndir hafi varla sézt í Reykjavíkurbókum fram yfir aldamót, nema skýringarmyndir í ýmsum kennslu- og fraeðibók- um, t. d. þremur litlum bókum Stafróf náttúruvísind- anna, sem Bókmenntafélagið gaf út 1880, Eðli og 'heil- brigði mannlegs líkama 1879 og Hjálp í viðlögum 1885, eftir Jónas Jónassen landlækni, hin síðarnefnda þó þýdd. Agrip af náttúrufræði handa barnaskólum eftir Bjarna Sænmndsson 1896 og Jarðfræði Þorvalds Thor- oddsens 1889. Voru myndir í bókum þessum vitanlega allar erlendar að uppruna og flestar einfaldar að gerð. Vel má vera að einhverjar fleiri kennslu- eða fræði- bækur hafi verið prentaðar á þessum síðustu tugum aldarinnar þótt ekki sé þeirra getið hér. Þá var Saga Róbínsóns Krúsó prentuð með myndum í Reykjavík 1886. Alla 19. öldina voru íslenzkar bækur prentaðar í Kaupmannahöfn og oft meira en í Reykjavík. Þannig var Hafnardeild Bókmenntafélagsins lengstum athafna- samari í bókagerð en Reykjavíkurdeildin. Voru fáeinar bækur Bókmenntafélagsins með myndum, svo sem ævi- Titilblað af Fingramálsstafrófi. Heima er bezt 13

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.