Heima er bezt - 01.01.1965, Síða 33

Heima er bezt - 01.01.1965, Síða 33
Þá hefur verið beðið um ljóð, sem heitir: Ég man það vel. Höfundur ljóðsins er Jón Sigurðsson, en Helena Eyjólfsdóttir hefur sungið ljóð og lag í útvarp. Ég man það vel er mættumst fyrsta sinn, ég man hve blærinn strauk um heita kinn. Ég mætti þér í maí í sunnan vindi og mér fannst blómin hafa fengið mál, og kveða okkur ljóð um ást og yndi þá ást, sem kvikna tók í beggja sál. Ég man það vel hvað vorum feimin þá og varla gátum litið hvort á annað. En lækur hló í lautu okkur hjá litlir álfar voru að gægjast til og frá. Þó löngu sé liðið fyrsta Vorið þá lifnar allt er sólin skín í maí. Við eigum hérna enn þá margt eitt sporið við álfaklettinn reistum okkur bæ. Og þó að feimnin farið hafi af mér ég finn ég roðna enn af heitri gleði hér vil ég lifa öll mín ár með þér eiga vísa hvíld og skjól er rökkva fer. Margir unglingar hafa beðið um ljóð, sem heitir: Trunt, trunt, korriró. Ómar Ragnarsson hefur gert þetta ljóð við lagið Do wah diddy, diddy. Ómar Ragn- arsson hefur sjálfur sungið þetta ljóð á hljómplötu. Sögu amma sagði mér um huldumann sem söng trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. Og til sín sveitastúlku töfraði hann og söng: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. :,: Það hreif :,: :,: Hún hló :,: og í hólnum síðan bjó ó, ó, ó, og ástin, hún losnaði úr læðingi við það. Ég fór að hugsa: „Skyldu ævintýrin eiga svona enn þá sér stað?“ Ég elskaði stúlku, sem mig ekkert vildi með. Ég söng: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró og á þeirri stundu var sem undur hefði skeð. Ég söng: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. :,: Það hreif :,: :,: Hún hló :,: Það hreif, hún hló og fór með mér út í mó / / / O, O, o, og ástin hún losnaði úr læðingi við það. Já, það er merkilegt, að ævintýrin eiga svona enn þá sér stað. Og síðan við lifum í sælu hverja stund og syngjum: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró og ef þú, vinur, þráir afhuga sprund syngdu: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. :,: Það hrífur :,: :,: Hún hlær :,: Það hrífur hún hlær og hún verður alveg ær ó, ó, ó, af ást til þín og syngur: trunt, trunt, ó og hæ og hó, korriró. Enn þá liggja hjá mér allmörg bréf, þar sem beðið er um bæði ný og gömul Ijóð og ef til vill get ég birt þau síðar. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135. BRÉFASKIPTI Elsa Jánsdóttir, Suðurgötu 6, Sandgerði, óskar eftir brefaskipt- um við pilt á aldrinum 18—20 ára.. Arný Viggósdóttir, Suðurgötu 6, Sandgerði, óskar eftir bréfa- skiptum við pilt á aldrinum 14—16 ára. Maria Armannsdóttir, Hásteinsvegi 18, Vestmannaeyjum, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 10—12 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Jórunn Eggertsdóttir, Ragnhildur D. Ólafsdóttir, Sigrún Srem- undsdóttir, Elin Danielsdóttir, Helga Viðarsdóttir, allar í Skóga- skóla, A.-Eyjafjöllum, óska eftir bréfaskiptum við pilta og stúlk- ur á aldrinum 14—16 ára. Arndís H. Hansdóttir, Hólmavík, Strandasýslu, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 13—16 ára. Halldóra Jónsdótir, Rauðabergi, Mýrum, Austur-Skaftafells- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 12-13 ára. Jóhanna Freyja Benediktsdóttir, Hafnargötu 6d, Bolungarvík, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 12—13 ára. Guðbjörg Davíðsdóttir, Miðdal, Kjós, Kjósarsýslu, og Guðbjörg Eygló Þorgeirsdóttir, Möðruvöllum, Kjós, Kjósarsýslu, óska eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 13—15 ára. Herdis Þuríður Gísladóttir, Hafnargötu 62, Bolungarvík, óskar \e£tir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 10—12 ára. Ásrún Benediktsdóttir, Hafnargötu 6d, Bolungarvík, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 10—12 ára. Lárus Benediktsson, Hafnargötu 6d, Bolungarvík, óskar eftir bréfaskiptum við stúlku eða pilt á aldrinum 15—16 árá. Heima er bezt 29

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.