Heima er bezt - 01.01.1965, Qupperneq 40

Heima er bezt - 01.01.1965, Qupperneq 40
of seinn, áður en hann hafði tekið fyrstu áratogin, voru þau þrjú komin um borð, Hanna, Neró og Áki. Honum féllust hendur, en Hanna María leit ögr- andiá hann: — Róðu! — ef þú kannt þá áralagið! sagði hún. — Kann áralagið, — hnussaði í Óla, hvað? hélt hún, að hann væri einhver dalakútur eða hvað, en hún skyldi fá að sjá! Þau voru komin hálfa leið út í þann hólma, sem næstur var Iandinu, þegar Hanna stökk upp á aðra þóftuna og tók til að rugga bátnum, svo sjórinn skvett- ist inn á bæði borð. — Ertu bandvitlaus, stelpa! æpti Óli og ætlaði að ná til hennar, en var of seinn, hún hallaði sér aðeins of mikið og féll beint á höfuðið í sjóinn. Áki spratt á fætur, og áður en Óli hafði áttað sig, stakk hann sér á eftir Hönnu. Óla varð ekki um sel. Ef eitthvað kæmi fyrir stelp- una, yrði honum kennt um það. Loks kom Áki úr kafinu. — Sástu hana? kallaði Óli lafhræddur. — Nei, hefur henni ekki skotið upp? spurði Áki. Óli stóðst ekki mátið, hann fór að gráta. — Góði Áki, bjargaðu henni, bað hann vesældarlega. Áki kafaði, en allt í einu sá hann tvo litla fætur, scm tróðu marvaða hjá honum, en hann var ekki fyrr bú- inn að reka höfuðið upp úr sjónum og gleypa í sig dálítið loft, en hann sá tvær litlar hendur, sem réttar voru upp, um leið og þær sukku í djúpið. Enn kafaði Áki. Öli hallaði sér út yfir borðstokk- inn, eins langt og hann gat, og áður en hann vissi af, skauzt lítil hafmær úr djúpinu, greip í hárið á honum og hafði dregið hann útbyrgðis, áður en honum vannst tími til að gefa frá sér nokkurt hljóð. Og þegar Áki kom næst upp til að fá sér loft, gapti hann af undrun. Þarna buslaði Óli í sjónum, en Hanna María var komin upp í bátinn og var að búa sig undir að róa á brott. — Nei, heyrðu nú, kerlingin þín, þú lætur okkur ekki synda í land eftir að hafa baðað okkur svona ræki- lega! kallaði Áki, en Óli var svo reiður, að hann kom ekki upp nokkru orði nema blótsyrðum, sem hann hnýtti saman í langa runu. Hún mamma hans hefði átt að heyra til hans, en sem betur fór, sat hún inni og hafði ekki hugmynd um það, sem var að gerast úti á víkinni. Hanna hló og k'allaði, að þeir hlytu að geta synt í land, það væri ekki svo langur spölur. Þó reri hún ekki burt, heldur lofaði þeim að synda að bátnum. Hún vissi sem sé ekki, hve vel syndir þeir kynnu að vera, svo henni þótti öruggara að „slefa þeim í land“. Upp í bátinn hleypti hún þeim alls ekki, Neró átti að sjá um það. Þeir máttu bara halda sér í borðstokkinn. Óh var svo öskuvondur, að hann grenjaði, þegar hann kom í land, en Áki veltist um af hlátri. Að láta stelpu, sem var miklu minni en þeir báðir fara svona með sig, fannst honum alveg sprenghlægilegt. Þegar ÓIi var vonlaus um að ná í Hönnu í þetta sinn til að lumbra á henni, réðist hann á Áka, en Áki var töluvert sterkari og hélt Óla föstum, þar til mesti móðurinn var runninn af honum. — Sú skal fá fyrir ferðina! tautaði hann með samau- bitnum tönnum og horfði á eftir litla bátnum, sem var að hverfa inn á milli eyjanna. — Ég skal berja hana sundur og saman, og skjóta hundinn! bætti hann við. — Væri ekki betra að koma sér vel við stelpuna og hætta að stríða henni? sagði Áki glettnislega. Hann hafði aldrei á ævi sinni kynnzt stelpu neitt líkri Hönnu Maríu og hlakkaði til að sjá, hvernig viðskiptum Óla og hennar lyki. Áki snaraðist niður í trilluna og náði í ferðatöskuna, sem hafði að geyma öll fötin, sem þau fóru úr, þegar ferðalagið hófst, og þau höfðu klæðst ferðafötum. Þarna náði hann í hversdagsfötin sín og þurra sokka, síðan hljóp hann í hvarf, meðan hann skipti um föt. Óli hélt beina leið heim í Kot, en þegar hann sá, hvað Áki aðhafðist, fór hann að hugsa sig um. Líklega græddi hann ekkert á því að klaga fyrir móður sinni, bezt var að tala við karlinn, eða þá fara að eins og Áki, hann klagaði aldrei. Áður en hann hafði ákveðið sig, var afi kominn út á hlað. Hann horfði píreygður á drenginn, rennandi frá hvirfli til ilja. — Varst þú að fá þér bað, drengur minn? spurði hann glettnislega. — Stelpan dró mig út úr bátnum, svaraði Óli og roðnaði ofurlítið. Það var ekki gaman að segja frá því, að smástelpa hefði farið svona með nærri fullorðinn karlmann. — Á, gerði hún það, telpan? fór hún út í þinn bát? Óla vafðist tunga um tönn. Afi var orðinn anzi hvass- eygur. — Þú ættir að koma þér í þurrt, áður en móðir þín kemur út. Það er ekki víst, að hún skilji, hvernig tíu ára telpa getur baðað svona stóran strák. Afi hló í skegg- ið og sneri inn. — Þú ættir að flýta þér, fötin geturðu sett inn í sjóhúsið, amma þurrkar þau þá kannski og pressar, ef hún hefur tíma. Svo lokaði afi hurðinni hægt en vandlega á eftir sér. Óli fór að ráðum afa, hljóp ofan að sjóhúsi, þar sem Áki vatt fötin sín af kappi. — Hvað ætlar þú að segja mömmu? spurði Óli. — Alls ekkert, svaraði Áki. — En þegar hún sér, að þú ert kominn í hversdags- fötin? — Þá segi ég bara, að ég beri ekki dótið upp úr bátnum í sparifötunum. Svo fæ ég að þurrka þau og pressa heima hjá gömlu konunni. Mamma hefur í svo mörgu að snúast svona fyrstu dagana, að hún fer ekki að gera neina rekistefnu út af fötunum, þó hún sjái þau ekki. En hvað ætlar þú að gera? — Sama og þú, svaraði Óli ólundarlega og fór að klæða sig úr. 36 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.