Heima er bezt - 01.01.1965, Page 42
SfAíiri Iiluti í verálaunagetrauninni um
silfurarmbandiá og silfurskyrtulinappana
Þá kemur hér síðari hluti í verðlaunagetrauninni fyrir
lesendur „Heima er bezt“ sem eru innan við 18 ára
aldur. Eins og skýrt var frá í desemberheftinu, þá eru
f. verðlaun fyrir stúlkur silfurarmband og 1. verðlaun
fyrir pilta silfur skyrtuhnappar, hvort tveggja valið úr
hinum fjölbreytilegu silfurskartgripum sem smíðaðir
eru af Halldóri Sigurðssyni gullsmið á Skólavörðustíg 2
í Reykjavík, en það er um leið trygging fyrir því, að
hér er um sérstæða og fagra íslenzka skartgripi að ræða.
En auk þessara tvennu 1. verðlauna, verða veitt 50
bókaverðlaun, svo nú er um að gera að vera með í
leiknum.
Hér fer á eftir síðari hluti getraunarinnar, en svör
við báðum þrautunum þurfa að hafa borizt afgreiðslu
blaðsins fyrir 15. marz næstkomandi.
Utanáskriftin er:
HEIMA ER BEZT
Pósthólf 558
Akureyri.
Vinningarnir verða dregnir út, úr öllum réttum ráðn-
ingum sem kunna að berast.
Síðari hluti getraunarinnar hljóðar þá svona:
Hvar fæddist þjóðskáldið Davíð Stefánsson?
38 Heima er bezt