Heima er bezt - 01.01.1965, Blaðsíða 47

Heima er bezt - 01.01.1965, Blaðsíða 47
352. Þegar ég kem inn á litla tún- blettinn, rís ég upp og hlusta. Ekkert heyrist. Eg laumast alveg fram að húsinu og gægist varlega inn um glugga á kjall- arahæð hússins. Og hvað sé ég þar? 253. Þar inni sé ég — og þekki óðara —- garðstjóra Fúksens fjármálamanns! Hann heldur á bréfi í hendinni og virð- ist vera að lesa það með mestu athygli. Bréfið mitt! Þessi grímu-gaur var þá garðstjóri Fúksens! 354. Allt í einu brýtur hann saman bréfið og stingur því í vasa sinn og gengur til dyra. Hefir hann orðið mín var? Það held ég alls ekki. Hann leit aldrei upp í gluggann, meðan ég var þar. 355. Ég er rétt í þann veginn að laum- ast burtu aftur, þegar gripið er hörðum hnefa í treyjukraga minn og reið rödd hvæsir í eyra mér: „Jaeja karlinn. Þú ert þá njósnari! En nú ertu genginn í gildruna....“ 356. Garðstjórinn hafði leikið á mig. Hann fer með mig inn i húsið. Ég er við öllu illu búinn. En alveg óvænt fer hann að spjalla vingjarnlega við mig og verður afar ísmeygilegur. 257. Hann réttir mér bréfið og segir mér að lesa það og sjá sjálfur, hvað hér sé á seyði... . Hreinn og beinn fjár- dráttur segir hann. Fúksen heimtar pen- inga af Lind, sem segist ekki geta sent þá fyrr en með kvöldlestinni. 358. Mjög ísmeygilegur reynir garð- stjórinn nú að telja mig á af fara leynt með þetta, á bak við Fúksen, og skipta síðan á milli okkar peningunum sem Lind sendir. An þess að svara hleyp ég á dyr. 359. Garðstjórinn hendist á eftir mér. Hann hefir þegar skilið, að fortölur hans bíta ekki á mig, og að ég læt hann ekki ginna mig, svo hann umhverfðist í einni svipan. I flasinu rekst hann á borð og steypist yfir það. 360. Ég hleyp út í forstofuna og ætla að opna útidyrnar. En hurðin er aflæst, og lykillinn tekinn úr.... Ég verð að leita annarar útgöngu. Ég sný við og hleyp að eldhúsdyrunum.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.