Heima er bezt - 01.09.1965, Síða 4
SIGURÐUR JONSSON, STAFAFELLI:
nnur
annsson
Lim
rú fækkar þeim mönnum í okkar þjóðfélagi,
sem muna það fólk, sem naut þess eina skóla
sem sveitaheimilin voru, er það hlýddi á lest-
ur fornsagnanna í baðstofunni á kvöldum
dimms skammdegis langs vetrar. Það fólk átti ekki um
margt að velja er út í lífið kom. Landbúnaðarstörf eða
sjósókn, oftast hvoru tveggja. Því nær allir bændur við
strendur landsins sóttu feng á fiskimiðin með landgagn-
inu. Þetta fólk tók vel eftir því, sem lesið var, og ræddi
um efni þess að lestri loknum. Urðu þá kapparnir þeir,
sem bezt dugðu í orrustum taldir mestu hetjurnar og
fyrirmvndir. Aðeins voru þó til undantekningar, og
ber Hallur af Síðu hæst þeirra höfðingja, sem heilluðu
hvern hlustanda sökum góðvildar sinnar og sáttfýsi.
Foreldrar Halls bjuggu á Hofi í Álftafirði, en þaðan
flutti hann að Á í sömu sveit, sem síðar fékk nafnið
Þvottá, eftir að Þangbrandur hafði ausið vatni árinnar
á heiðingjana og skírt þá til kristinnar trúar.
Sveit Síðu-Halls er Álftafjörður hinn syðri og einn-
ig hinn nyrðri svo sem um getur í Landnámu, en nú
kallast Hamarsfjörður. Sveitin nær frá Lónsheiði að
vestan og austur að Berufirði inn að rótum Búlandstinds.
Geithellnahreppur var þetta svæði allt til skamms tíma,
en er nú skipt í Geithellna- og Búlandshrepp. Þar er
Þorfinnur Jóhannsson.
Guðný Jónsdóttir.
316 Heima er bezt