Heima er bezt - 01.09.1965, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.09.1965, Blaðsíða 8
Strjugsárfjall, séð vestan frá. Kötlugjáin blasirvið. Neðan undir rústir af beenum, merktar með krossi. 1770. Hún giftist Gottskálki Jónssyni í Neðra-Lýtings- staðakoti. 2. Þórey Gísladóttir, fædd 16. júlí 1798. Þegar hún var 25 ára fluttist hún inn í Eyjafjörð. Hún giftist Ólafi bónda í Stóradal Stefánssyni bónda í Árgerði Ólafssonar á Rifkelsstöðum Magnússonar á Arnarstöðum Tómas- sonar í Kollugerði Sveinssonar. Sonur Ólafs í Stóradal og Þóreyjar, var Ólafur bóndi á Borgarhóli, faðir Júlíus- ar bónda í Hólshúsum og Ólafs Tryggva starfsmanns hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. 3. Jón Gíslason, fæddur í Teigakoti 14. marz 1800. 4. Gísli Gíslason, fæddur 18. janúar 1805. Jón Gíslason var verkmaður mikill og burðargóður. Hann var snemma bókhneigður og námfús. Á unglings- árum hans kom þegar í ljós að hann var vel hagmæltur, en fór mjög dult með. Þegar á ungum aldri þróaðist með honum sterk löngun til hærra náms og verða embættis- maður sem verið höfðu forfeður hans. Vorið 1819 kom að Goðdalaprestakalli séra Einar Thorlacius. Hann var lærdómsmaður allmikill, sérstak- lega var hann talinn vel latínulærður. Hann tók til sín pilta og kenndi þeim undir inngöngu í Bessastaðaskóla. Um þetta hefir Jóni Gíslasyni verið vel kunnugt, því ekki var svo langt á milli. Hefir þessi vitneskja enn alið á menntaþrá hans. Meðal nemenda séra Einars var Jónas Hallgrímsson frá Steinsstöðum í Öxnadal, síðar þjóð- skáld. Séra Hallgrímur, faðir Jónasar, og séra Einar Thorlacius voru systkinasynir. Heimild er fyrir því, að Jónas Hallgrímsson lærði í tvo vetur hjá séra Einari í Goðdölum til undirbúnings Bessastaðaskóla, en í þann skóla settist hann haustið 1823. Munnmæli herma að þeir Jónas og Jón Gíslason hafi verið samtímis læri- sveinar séra Einars í Goðdölum. Hefir það þá hlotið að vera vetuma 1821—1822 og 1822—1823, annan eða báða. Séra Einari voru veitt Saurbæjarþing, og flutti hann því frá Goðdölum að Saurbæ í Eyjafirði vorið 1823. Hvort Jón Gíslason hefir verið einn eða tvo vetur við nám hjá séra Einari í Goðdölum, hefir því verið lokið þar vestur frá 1823. En hvort heldur hefir verið um einn eða tvo námsvetur að ræða á Goðdölum, er það nokk- urnveginn ömggt að Jón Gíslason hefir eitthvað verið við nám hjá séra Einari Thorlacíusi eftir að hann kom að Saurbæ. Benda til þess frásagnir ýmisra gamalla Eyfirð- inga. En ekki sézt af kirkjubókum hvenær Jón Gíslason hefir komið að vestan til Eyjafjarðar. Víst er þó að frá Leyningi í Hólasókn í Eyjafirði, er hann talinn koma að Strjúgsá vorið 1827. Bendir það til þess, að þar hafi hann þá talizt til heimilis, frá hvaða tíma sem það hefir verið. En hvað sem um heimilisföng hans og veru í Eyja- firði er unnt að segja, er sú frásögn örugg að Jón Gísla- son varð fyrir því slysi að fótbrotna nálægt Hrafnagili, á ferð fram í Eyjafjörð, hverra erinda, sem hann hefir verið, eða hvert ferðinni hefur verið heitið. Líklegast má telja að það slys hafi ráðið úrslitum um æviferil hans og starf þaðan af. Þegar þetta skeði var prestur á Hrafnagili séra Magnús Erlendsson. Skaut hann skjólshúsi yfir sjúklinginn og Jét honum hjúkran í té. Þá var vinnukona hjá séra Magnúsi ung stúlka að nafni Guðrún Jóhannesdóttir bónda í Yztagerði í Miklagarðssókn. Kom það í hennar hlut að annast um sjúklinginn, og lagði hún sig alla fram um að líðan hans væri sem þolanlegust. Fótbrotið var slæmt, hafðist illa við og greri seint. Lá Jón Gíslason lengi vetrar á Hrafnagili, unz hann loks náði fótaferð. 320 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.