Heima er bezt - 01.09.1965, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.09.1965, Blaðsíða 18
EINAR GUTTORMSSON: Einstætt afrek Haustið 1880 gerðu'st þau tíðindi á stórbýlinu Möðruvöllum í Hörgárdal, fyrrum munka- setri og síðar amtmannsbústað, að stofnað var til skólahalds, sem átti að fræða og mennta bændasyni þá, er fundið hefðu þá hvöt hjá sér og gátu látið eftir löngun sinni að verða aðnjótandi meiri þekk- ingar, en almennt gerðist um bændafólk undanfarandi ár. Þeir sem áður menntuðust að nokkru ráði, fóru til Ræykjavíkur og tóku þar próf upp í Latínuskólann, og að námi því loknu voru þeir kallaðir stúdentar, sem þá þótti mikið sæmdarheiti. í þeim hópi sem lagði leið sína í Latínuskólann, munu piltar úr bændastétt hafa verið í miklum minnihluta. Latínan og' erískan voru ekki til- tæk í heimahúsum öðrum en lærðra manna sonum. Var til dæmis ekki ótítt í þá daga, að menntamanna synir væru látnir byrja á þeim málum innan tíu ára aldurs. Er stúdentsprófi hafði verið náð, lá leiðin fyrir þá sérstak- lega, sem ætluðu að gerast læknar eða lögfræðingar, til Kaupmannahafnar háskóla, sem þá var einnig aðgengi- legastur skóli fyrir íslendinga þá, sem hugðu að afla sér annarrar æðri menntunar. Prestaefnum var sú för ekki nauðsyn, því að í höfuð- staðnum var starfandi prestaskóli. Fór því meginþorri stúdenta utan, líkt og verið hafði frá fornu fari, bæði til að svala útþrá sinni og efla sig að andlegri mennt. Þeir menn, bæði, sem ætluðu að leggja stund á andleg fræði, fengu oftlega undirbúning hjá prestum eða prestlærð- um mönnum. Má því með réttu telja prestana hinn and- lega vaka, þangað til skólum tók að fjölga, og undir- búningskennsla þeirra fákunnandi færðist yfir á herðar þeirra, sem framast höfðu í einhverjum skóla. Skóli sá, sem var að rísa á legg á Möðruvöllum í Hörg- árdal, hlaut nafnið gagnfræðaskóli. Tilgangur hans bjó í nafninu, og fyrsta skólaárið var meðal annars kennd búfræði. Gat hann einnig talizt undirbúningsfræðsla undir frekara nám. A Möðruvöllum var risið af grunni nýtt tveggja liæða hús með kvisti. Tvímælalaust á þeirri tíð eitt veglegasta hús í sveit á íslandi. Hér hjálpaðist allt að, sem staðinn mátti prýða, stór og kostarík bújörð, vegleg húsakynni, bæði fyrir bóndann og skólann, og síðast en ekki sízt ein prýðilegasta kirkja, sem þá var þekkt í sveitum lands- ins. Auk bóklegrar fræðslu var einnig ætlunin, að piltar fengju tækifæri til að styrkja líkama sinn með leikfimi. Að því tilefni var gert allstórt hús á þeirrar tíðar mæli- kvarða, skammt vestur af sjálfu skólahúsinu. Hús þetta var í daglegu tali nefnt „Leikhús“. Lítið mun þó hafa orðið úr fimleikakennslu, en á hverjum helgidegi, eftir guðsþjónustu, að undanskilinni jólanótt og langafrjá- degi, dunaði dansinn eftir hljómafalli harmóniku, venju- lega, kom þó stundum fyrir að samspilið var á fiðlu til tilbreytingar, væri einhver skólasveinn leikinn í þeirri listgrein. Það þarf því engan að furða á því, þótt aðsókn ungra manna að skólanum reyndist ágæt. Hjálpaðist þar að bæði upplyfting frá heimahögunum og þekkingarþroski og menntahugur. Mun það einnig hafa komið fyrir, að þeir, sem heima urðu að sitja, þegar jafnaldrar hurfu til skólans á haustin líkt og sumarfuglar til sólarlanda, hafi meyrnað í hug og klökknað í brjósti. Svona gekk það til í þann tíð. Þá þekktist ekki orðið „námsleiði“, held- ur námshungur. Um þessar mundir voru að vísu til menntastofnanir handa kvenþjóðinni, sem miðuðu námsefnið aðallega til fyllri undirbúnings fyrir verðandi húsmæður. Þeirrar menntunar munu aðallega hafa notið heimasætur efn- aðra bænda og heldri manna dætur. Það þótti því tíðindum sæta, þegar það barst út um landsbyggðina, að fátæk bóndadóttir væri setzt á bekk með piltunum í gagnfræðaskólann á Möðruvöllum. Þetta voru svo fáheyrð tíðindi, að margir létu segja sér þetta tvisvar, fyrr en trúað yrði. Þetta var þó satt og óhrekjandi og skeði haustið 1893. Nú eru 70 ár að baki, síðan þetta gerðist. Og af því að þetta var svo einstætt í sinni röð, virðist ekki úr vegi að draga fram í dagsljósið, hver stúlka þessi var, því að svo er að sjá, sem kynsystur hennar er yfir blaðakosti hafa að ráða, hafi algerlega gleymt henni, bæði fyrr og síðar, og því dirfskufulla fordæmi, er hún í raun og veru gaf ungum stúlkum á þeim tíma. Kona sú, er hér um ræðir, hét Jórunn Jónsdóttir.Fædd var hún að Litlu-Brekku í Hörgárdal 11. júlí 1874, dótt- ir búandi hjóna þar, Önnu Margrétar Runólfsdóttur, bónda Sveinssonar að Litla-Dunhaga í Arnarnesshreppi, og Jóns Guðmundssonar, hreppstjóra að Stóra-Dunhaga í Skriðuhreppi, Halldórssonar. Föðursystir Jórunnar, sem hún var heitin eftir, var dótturdóttir síra Þorsteins Hallgrímssonar, prests að Stærra-Árskógi, og seinni konu hans, Elínar Halldórs- dóttur. Voru þau Jórunn, amma Jórunnar, og Jónas skáld frá Hrauni í Öxnadal, systkinabörn. 7 J 330 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.