Heima er bezt - 01.09.1965, Síða 7
HOLMGEIR ÞORSTEINSSON:
Hreppstjórinn á Strjúgsá
Nf ítjÁnda öldin gekk í garð með ömurlegum at-
burðum á landi hér, einkum fyrir Norðlend-
inga. Á fyrsta ári aldarinnar voru þeir sviptir
bæði biskupsstóli og latínuskóla á Hólum,
sem verið hafði stolt þeirra og styrkur um aldir. Þeir
voru þessu því mjög mótfallnir. En gegn einræðinu
danska, fengu þeir ekki rönd við reist. Náttúruöflin
voni þó ennþá miskunnarlausari í garð lífsafkomu
þeirra, svo nærri lá mannfelli.
Upp úr miðjum vetri 1801, gerði veðurofsa með stór-
hríðum og frosthörku dag eftir dag. Snemma í marz-
mánuði brast á voðaveður með hörku stórhríðum um
land allt. Rak þá mikinn hafís að landi og fyllti alla
firði norðan og vestanlands. í þessu voðaveðri urðu
skipstapar og mannskaðar víða um land, og urðu marg-
ir til á ferðalagi, jafnvel í byggð.
Þegar voðaveðrið í marzmánuði geisaði yfir landið,
nísti hrörleg bæjarhúsin og fyllti hugi hrellingu, lá í
hóli sínu ársgamall sveinn í kaldri og hrörlegri bað-
stofunni í Teigakoti í Skagafirði. Móðir hans reyndi að
hlúa að honum með fátæklegum rúmfatnaðinum, með
þá brennandi en óræðu spurningu í huga: Lifir hann
jiessar hörmungar af? Sjálf hafði hún reynt það, að
vera nær því að missa lífið vegna afleiðinga náttúru-
hamfara. Hvað bíður svo þessa ómálga sveins, sem norð-
an stórhríðin öskrar nú yfir, sín ömuriegu vögguljóð?
Ekkert svar.
Sveinn þessi hét Jón og var sonur hjónanna í Teiga-
koti, fæddur 14. marz 1800. Faðir hans, Gísli bóndi í
Teigakoti, var fæddur 1765, dáinn 1829, sonur Jóns
bónda í Kolgröf og síðar Nautabúi og konu hans Rósu
Ólafsdóttur frá Valadal. Foreldrar Jóns á Nautabúi
voru Þorkell bóndi á Eyvindarstöðum í Blöndudal og
kona hans Guðríður jónsdóttir. Foreldrar Þorkells
voru: Björn lögsagnari á Guðlaugsstöðum og kona hans
Ólöf Sigurðardóttir. Foreldrar Björns lögsagnara voru:
Séra Þorleifur prestur að Blöndudalshólum, Ólafsson
og kona hans Þórunn Kortsdóttir Þormóðssonar. Þór-
unn var systir Þorleifs lögmanns Kortssonar.
Elín, kona Gísla í Teigakoti, var dóttir Einars bónda
Jónssonar á Skottastöðum í Svartárdal í Húnavatns-
sýslu. Hún var fædd á Stafni í Svartárdal 1765: Elín
Einarsdóttir var um tvítusjt er Móðuharðindin dundu
yfir á árunum 1783—1785. Surfu liarðindi þessi þá svo
hart að mönnum að fjöldi bænda flosnuðu upp frá bú-
um sínum og allur bústofn þeirra gjörfallinn. Létu
margir þá lífið af bjargarskorti. Einn þeirra bænda, er
upp flosnuðu þá, var Einar á Skottastöðum. Varð það
úrræði hans, sem margra fleiri, að yfirgefa heimili sitt
og fara á vergang, og freista þess að fá lífi sínu borgið á
þann hátt. Sama varð og hlutskipti Elínar dóttur hans.
Úr Svartárdalnum leitaði hún austur á bóginn til Skaga-
fjarðar, en þar var hún öllum mönnum ókunnug og
þekkti engan bæ. Af einhverri tilviljun — eða máske
vegna leiðsögu örlagadísa sinna, lenti hún einn dag
göngu sinnar að Nautabúi í Skagafirði. Var hún þá orð-
in svo örmagna af hungri, þreytu og vosbúð að hún
komst ekki heim að bænum, en hné niður við túngarð-
inn. Bjóst hún þá við að síðasta stund sín væri komin.
En svo varð þó eigi, því lengra líf var henni ætlað. Ein-
hver af heimamönnum varð hennar var og var hún studd
eða borin heim í bæinn.
Þá bjuggu á Nautabúi hjónin Jón Þorkelsson og Rósa
Ólafsdóttir. Skutu þau skjólshúsi yfir Elínu og hlynnti
húsfreyjan að henni eftir beztu getu. Elín var að upp-
lagi hraustbyggð og tápmikil og hresstist því brátt og
komst til fullrar heilsu. Hún var vinnugefin og laghent
og féll vel á með þeim húsfreyju. Talaðist svo til, að
Elín yrði kyrr hjá þeim hjónum. Gísli sonur þeirra
Nautabúshjóna var þá orðinn fulltíða maður, og voru
þau mjög jafnaldra hann og Elín. Kom þar brátt, að þau
felldu hugi saman og giftust árið 1790.
Jón Þorkelsson á Nautabúi andaðist 1785. Hélt ekkjan
áfram búskap, með tilstyrk Gísla sonar síns, þar til hann
fékk til ábúðar einhvern hluta jarðarinnar 1790, og bjó
þar eitt ár, en fluttist þá búferlum að Teigakoti, þar sem
hann bjó til æviloka 1829.
Rósa Ólafsdóttir, móðir Gísla, brá búi 1796, og flutt-
ist að Teigakoti til sonar síns og tengdadóttur. Hjá þeim
dvaldi hún til æviloka. Hún andaðist 1824, þá talin 103
ára.
Teigakot var hjáleiga frá Lýtingsstöðum og fremur
rýr bújörð. Gísli og Elín voru efnalítil, en komust sæmi-
lega af. Þau eignuðust 7 börn, og komust fjögur þeirra
til fullorðins ára, en þau voru þessi:
1. Guðrún Gísladóttir, fædd á Nautabúi 19. janúar
Heima er bezt 519