Heima er bezt - 01.09.1965, Side 9

Heima er bezt - 01.09.1965, Side 9
Strjúgsárfjall, sunnan Kötlugjár. I suðaustur frá fjallsöxlinni gengur Strjúgsárdalur. Gegnt Strjúgsárdal, að vestan, er Þverdalur. Þar á milli er Sneis. En menjar fótbrotsins bar hann alla ævi, því stinghaltur gekk hann æ síðan. Vera Jóns á Hrafnagili hafði þær af- leiðingar að sjúklingurinn og hjúkrunarkonan felldu hugi saman og heitbundust. Ekki eru til ákveðnar heimildir um hvaða ár slysið vildi til, en af öðrum atvikum má ráða í hvenær það hefir verið. Eins og áður segir, var Guðrún Jóhannesdóttir vinnu- kona á Hrafnagili þegar Jón fótbrotnaði. Jón Gíslason fluttist að Strjúgsá vorið 1827. Sama vor segir Guðrún Jóhannesdóttir upp vistarráðum á Hrafnagili og flytur þaðan að Strjúgsá og gerist þar bústýra Jóns Gíslasonar. Hið örlagaríka fótbrot Jóns og vera á Hrafnagili, hefir því ugglaust verið veturinn 1826—1827, að öllum líkind- um nokkru fyrir áramótin. Jón Gíslason gerði ferð sína til Eyjafjarðar þeirra erinda, að njóta frekara náms hjá séra Einari Thorlaciusi til undirbúnings inngöngu í Bessastaðaskóla. En nú voru hagir hans allmjög breyttir, þar sem hann hafði fastnað sér konu. Hér var því um tvo kosti að velja: Bregða heiti við unnustuna, og brjótast áfram til hærra náms, eða útvega sér jarðnæði til ábúðar og gerast bóndi. Sjálfsagt hafa þessi öfl togast fast á í huga hans, sem ástæðna vegna var ekki unt að sameina. Æskudraumar hans og þrá til æðra náms og frama, var sterk og rótgró- in í huga hans, enda hæfileikar nægir til náms. Hins vegar var ástin til heitmeyjarinnar og drengskaparlund- in til að standa við gefin heit, og hann tók þann kostinn. Hann fékk ábúð á Strjúgsá, sem var ein af kirkjujörð- um Saurbæjar, og undir yfirráðum Saurbæjarprestsins, séra Einars Thorlacíusar. Strjúgsá var að vísu fremur rýrt kot, en hafði þó þann kost að því tilheyrði allmikið landrými og góð sauðbeit. Voru þeir kostir vel metnir í þá daga. Strjúgsá er framarlega í Djúpadalnum, austan Djúpadalsár. Fram frá bænum liggur dalur alllangur og grösugur, sem Strjúgsárdalur nefnist. Var þar gott hag- lendi fyrir málnytupening. Vorið 1827 settu þau bú saman á Strjúgsá Jón Gísla- son og Guðrún Jóhannesdóttir, og giftust 2. des. það ár. Þar bjó svo Jón til æviloka, allgóðu búi, að talið var. Guðrún Jóhannesdóttir var fædd í Yztagerði 16. júní 1800. Foreldrar hennar voru Jóhannes bóndi í Yztagerði ívarsson og kona hans Ásný Davíðsdóttir frá Hvassa- felli Tómassonar. Guðrún Jóhannesdóttir var búsýslu- kona mikil, dugleg og hagsýn. Börn þeirra, sem fullorð- insaldri náðu: 1. Jón, f. 25. apríl 1828, bóndi á Gilsbakka í Skaga- firði. Hann var tvígiftur. Fyrri kona: Valgerður Guð- mundsdóttir. Seinni kona: Áldís Guðnadóttir. 2. Ingibjörg, f. 2. marz 1830. Hún átti dóttur með Jóhannesi Bjarnasyni, síðar bónda í Stóradal, bæði ógift. Dóttir þeirra var: Guðrún, f. 30. júní 1866 ljósmóðir í Eyjafirði. Ingibjörg giftist síðar Páli Pálssyni bónda í Æsustaðagerði. 3. Einar, f. 10. marz 1831, bóndi í Rauðhúsum. Kona hans Guðrún Hansdóttir frá Guðrúnarstöðum. 4. Ari, f. 23. marz 1833, bóndi í Víðigerði og síðar á Þverá í Öngulstaðahreppi. Kona hans: Rósa Bjarnadóttir frá Kambfelli. Ari var þekkt skáld og rithöfundur. Gísli Jónsson í Teigakoti andaðist 1829. Elín Einars- dóttir, ekkja hans bjó áfram til 1833, en fluttist þá að Strjúgsá til Jóns sonar síns, og þar andaðist hún 31. ágúst 1844. Á Strjúgsá var vinnukona sem Jóhanna hét og var Heima er bezt 321

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.