Heima er bezt - 01.09.1965, Page 23

Heima er bezt - 01.09.1965, Page 23
Skálar. — Gamall útgerðarstaður. Börn borin (þ. e. fædd) á bjarndýrsfeldi. Einu sinni snemma vetrar lagði hafís mildnn að Langa- nesi, og komu mörg bjarndýr á land með honum. Einn bær var þar afskekktur á nesinu, en lá þó mjög vel við sjávarútvegi og trjáreka. — Þaðan kom enginn maður hvorki til kirkju eða annarra bæja, frá því á jólaföstu og fram að miðjum vetri, og hugðu menn, að bjarndýrin hefðu orðið heimilisfólkinu að skaða. Unglingsmaður var þar í sveitinni 18 ára gamall, smiður góður, röskur og hugaður. Hann smíðaði sér lagvopn mikið og fór svo kvöld eitt í tunglsljósi að vitja bæjarins. Var þetta hér um bil á miðjum þorra. Þegar hann kom að bænum, var þar allt brotið og bælt. Hann fann blóðuga fataræflana af fólkinu hér og þar. Líka var fjósið brotið upp og kýrnar uppétnar. Seinast hvarflaði hann upp á dyraloftið. Var þar allt óbrotið, og einnig stigi, sem upp á það lá. Hann litaðist um og horfði út um loftsgluggann. Sá hann þá hvar bjarndýra- hópur kom neðan frá sjó. Hafði hann á þeim tölu og voru þau 18. Eitt fór á undan og var það langstærst og rauðkinnótt. Það var fljótt mannsins vart á lyktinni og hljóp með mikilli grimmd upp stigann, og ætlaði að slá til manns- ins með hramminum, en hann lagði það undir bóginn í hjartastað, og var það bani dýrsins. Síðan drap hann 12 önnur dýr þarna í stiganum. Sneru hin þá undan og litu ekki við manninum, þó hann egndi þau upp á sig, og veitti þeim eftirför. Síðan fékk hann menn af næstu bæjum til að gera dýrin til. Mælt er, að hann hafi reist bú á jörðinni um vorið, og keypt hana fyrir það, sem Heima er bezt 335

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.