Heima er bezt - 01.09.1965, Síða 27

Heima er bezt - 01.09.1965, Síða 27
nokkuð. En svo brá við, að sýslumannskonan sá ekki huldukonuna upp frá því, og ekkert framar en hún hafði séð, áður en hún bar smyrzlin í hægra augað á sér.“ Við yfirgefum þá hið fagra og búsældarlega Vopna- fjarðarhérað, en til að ljúka ferðinni umhverfis þríhyrn- inginn milli fljótanna, að Jökulsá í Dal, eigum við eftir að fara yfir eina heiðina enn, en það er Hellisheiði, sem er á fjallgarðinum rnilli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíð- ar. Hún er hálend og mjög brött upp að sunnanverðu. Eitt sinn kom ég að norðan úr Vopnafirði og hafði gist í Fagradal. Snemma morguns lagði ég þaðan upp gangandi með fylgdarmanni, og drógum við farangur minn á smá-sleða. Færi var fremur gott fyrir gangandi mann. A sleðanum var hnakkur, hnakktaska og bakpoki. Á ferðum mínum um Austurland, var ég jafnan á sama hnakknum, hvort sem ég fór yfir heiðar, jökulvötn eða greiðfærar leiðir. Ég hafði alltaf tvær traustar gjarðir við hnakkinn og ístaðsólarnar í opnum lásum,svo að ekki væri hætta á að ég festist í ístöðunum, ef hestur dytti með mig. Kom þetta sér vel og bjargaði frá slysum. Að- ur en ég fór frá Fagradal um morguninn hafði ég haft samband við Björgvin bónda á Ketilsstöðum, og hann hafði lofað að koma á móti mér upp á syðri heiðarbrún. Þessi heiðarbrún er svo há, að sjaldan fer allur snjór úr brúninni, og er hún því kölluð Fönn. Þegar við ferðafélagarnir komum suður á brúnina var Björgvin bóndi þar fyrir. Fylgdarmaður minn sneri þá aftur með sleðann, en Björgvin tók bakpokann á bak sér, en hnakknum héldum við á milli okkar. Hélt ann- ar um ístaðsólarnar, en hinn um reiðann. Sunnan í heið- arbrúninni var harðfenni, en víða sá þó í kletta og mela- börð upp úr snjónum. Allt í einu komum við á flug- hála brekku. Ég gat stöðvað mig og náð fótfestu, en Björgvin féll við, og hefði runnið niður, ef við hefðum ekki haft hnakkinn á milli okkar eins og öryggistaug. Þetta leit ekki vel út. Virtist þarna vera verra að fara niður en upp, því að Björgvin hafði ekki átt í neinum erfiðleikum með að komast upp. Ég mundi þá eftir því, að í hnakktöskunni átti ég mannbrodda. Við tókum mannbroddana og skiptum þeim milli okkar og fékk þannig hvor okkar mannbrodd á annan fótinn. Síðan tókum við hnakkinn eins og áður osr notuðum hann sem öryggistaug. Tókst okkur þannig að hökta niður harðfennið. Af Hellisheiðarbrúninni er útsýn fögur yfir Ut- Hérað. I vatnavöxtum breiðir Jökulsá á Dal þar úr sér um sléttar eyrar og grundir út með Jökulsárhlíðinni. Er hún þá óheft stórfljót. Það er eins og fljótið mikla gleðjist yfir því, að vera laust úr þröngum gljúfrum Jökuldalsins, sem hafa þrengt að því á nær því 100 km langri leið. Þáttur þessi verður ekld lengri að þessu sinni. Ég hef reynt að bregða upp fyrir lesendanum smá myndum úr héruðunum á norðausturhorni landsins. Þessi hluti ís- lands er sérstæður um margt, ef hann er t. d. borinn saman við Mýrar, Borgarfjörð og Suðurlandsundirlend- ið. Þama er þurrlend, sendin jörð en hvergi flóar eða fúamýrar. Á sumrum er oft bjart yfir byggðum og ilmur úr grasi. Stefbi Jónsson. 11 * * Íll : fiff gp* 1« f 1 I* * 1 ir llj Bustarfell. Heima er bezt 339

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.