Heima er bezt - 01.11.1970, Page 2

Heima er bezt - 01.11.1970, Page 2
Hjálpandi Kendur Fyrir nokkru las ég í blaði um merkilega starfsemi ungs fólks í stórborgum Englands. Skipulagðir hópar þess fara og heimsækja gamalt einstæðingsfólk og ör- yrkja og hjálpa þeim á ýmsa lund, gera húsin hrein, laga íbúðir og herbergi, jafnvel mála þau, fara í sendi- ferðir, taka gamla fólkið út með sér, elda handa því máltíðir o. s. frv. Hvarvetna voru þessi ungmenni au- fúsugestir gamla fólksins. Það var ekki einungis, að þau færðu kærkomna hjálp, heldur var hitt jafnvel enn meira virði að þau rufu múr einstæðingsskaparins og sýndu þessum öryrkjum, er þau heimsóttu, að til væri fólk, sem ekki hafði gleymt þeim, og enn væru þeir þáttur í þjóðfélaginu. En einstæðingsskapurinn, tilhugsunin um að vera gleymdur öllum, var jafnvel enn sárara en þótt skortur væri ýmissa lífsnauðsynja. Heimsóknir ung- mennanna urðu sem sólargeisli í hinni daglegu skugga- tilveru. Enda þótt starfsemi sem þessi, sé ef til vill ekki jafn- brýn hér á landi og í þéttbýli stórborganna, þá er þörf- in samt fyrir hendi. Og þörfin er ekki eingöngu þeirra, sem hjálparinnar þurfa að njóta, hún er ekki síður þeirra, sem hjálpina veita. Mikið er nú rætt um óró æskulýðsins, og glapstigu þá, sem æskan leiðist út á, allt frá venjulegum ærslum til eiturlyfjanautnar. Það er fásinna að stinga höfðinu í sandinn gagnvart þessum viðfangsefnum. Hér er eitt- hvað að, þótt það sé ef til vill minna meðal vor en í stóru löndunum. Engum hefir tekizt að svara til fulls spurningunni um hverjar séu orsakir þessa, og ekki ætla ég mér þá dul að geta það öðrum fremur. Og svo lengi, sem vér ekki finnum sjúkdómsvaldinn er lækningin tor- veld. Eitt vildi ég þó benda á, og það er vöntun verk- efna, sem fullnægi athafnaþrá unglinganna. Þeir sjá að vísu, að margt mætti betur fara í þjóðfélögunum, en annað tveggja af rangsnúinni uppreisnarfýsn eða þó öllu heldur vegna áróðurs óhlutvandra manna, sem hafa það eitt að markmiði að steypa þjóðfélagi vestrænna landa í rústir, leitar æskan inn á óheillabrautir uppþota og skemmdarverka eða fleygir sér í faðm eiturnautn- anna. Ef ekkert mark er framundan annað en að rífa niður, þá er ekki á góðu von. í hugum fólksins þróast andúð og illvilji til alls og allra, og þó einkum þeirra, sem leitast við að halda uppi lögum og reglu. Um allt þetta eru dæmin deginum ljósari hvarvetna um heim. En hvað kemur þetta við hjálparstarfsemi unga fólks- ins í Bretlandi, mun einhver segja. Meðal sjálfra vor og um heim allan er þörf marghátt- aðrar hjálpar og aðstoðar. Mjög er á dagskrá aðstoð við vanþróuðu löndin, og skal þörf hennar ekld dregin í efa. En ekki fæ ég varizt þeirri hugsun, að þeir, sem mest tala og hæst í þeim efnum, ættu einnig að líta sér nær og rétta hjálpandi hönd í sínu eigin nágrenni, og skipuleggja það starf. Og vert er að muna, að þótt þjóðin í heild leggi fram einhvem skerf í fjarlægan hjálparsjóð, þá verða einstaklingarnir hvorki betri né þroskaðri af þeim sökum. Vér höfum með því einungis innt af hendi þjóðfélagsskyldu með almennri skatt- greiðslu, en ég held fáir vaxi að góðleika eða manndómi, þótt þeir greiði skatta sína refjalaust. Maðurinn verður þá fyrst stærri af að hjálpa, ef hjálpinni fylgir nokkur fórn, þó einkum ef eitthvert persónulegt framlag fylgir þar með. Mér dylst ekki, að unglingarnir ensku, sem heimsækja gamla fólkið, auðgast á því andlega, vaxa að manndómi og þroska, sem þeir vart mundu gera, þótt þeir legðu nokkra shillinga í samskotasjóð. Þeir hafa í starfi sínu eignazt markmið til að keppa að, og hin per- sónulegu kynni af þeim, sem hjálpað er, opna augu þeirra fyrir mannlegu böli en kenna þeim um leið, hversu lítið þarf oft til að mýkja sársaukann og bægja bölinu til hliðar. En það eru fleiri en gamalmenni, sem þarfnast aðstoð- ar og persónulegrar hlýju frá umhverfi sínu. Fjöldi manns í þjóðfélaginu hafa orðið olnbogabörn þess á einhvern hátt. Sumir frá fæðingu vegna einhverrar D D vöntunar, andlegrar eða líkamlegrar, aðrir síðar á ævinni vegna sjúkdóma, óhappa eða ills umhverfis. Að vísu hefir tryggingakerfi þjóðfélagsins unnið ómetanlegt stórvirki til hjálpar þessum olnbogabörnum, svo að heita má, að þjóðfélagið hafi umskapazt af þeim sökum, en tryggingar og peningar koma aldrei nema að nokkru leyti til móts við þörfina. Þar er oft ekkert sem dugir, nema hin persónulega hjálp, ef á annað borð það er nokkuð, sem mýkt getur bölið. í þessu sambandi verð- ur mér hugsað til drykkjusjúklinga. Þótt mikið megi hjálpa þeim með læknismeðferð, sem raunar er vanrækt um of í þjóðfélaginu, þá mun samt hin persónulega hjálp, veitt af samúð og skilningi, verða oft það, sem úrslitum ræður. Alltaf er um það rætt að stytta vinnutíma, slíkt er eðlileg afleiðing vélvæðingar og tækni. En um leið lengj- ast tómstundirnar og sumum verður áhyggjuefni, hvern- ig með þær sé farið. Þær eru ætlaðar til blessunar ung- 386 Heima. er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.