Heima er bezt - 01.11.1970, Side 4

Heima er bezt - 01.11.1970, Side 4
PÁLMI EYJÓLFSSON: Fimmtíu ár á ferðal um Suéurland Ei hefur á landi okkar þótt hinn mesti heiður að því að vera talinn góður ferðamaður, einkum þó meðan enn var ferðazt fótgangandi eða á hestum, enda reyndi þá bæði á hugrekki og forsjálni. — Gömlu ferðamennirnir á íslandi voru og líka veðurfræðingar og vatnamenn, og lærðu hvort tveggja af eigin íhygli og arfgengri reynslu. Allir litu upp til landpóstanna gömlu, enda völdust í þá sveit einungis vaskir menn og traustir. Guðlaugur Bjarnason og kona hans, Lára Sigurjónsdóttir, á yngri árum. Einn af þessum gömlu landpóstum, hann Guðlaugur Bjarnason, bóndi að Giljum í Hvolhreppi, er enn við allgóða heilsu þegar miðað er við áttatíu og eins árs aldur, og margur yngri má öfunda hann af minninu. Engan veit ég um, sem öllu lengur hefur ferðazt um Arness- og Rangárvallasýslur en hann Guðlaug, en ferðir hans um Suðurland hófust fyrir fimmtíu og fjórum árum. — Býlið hans Guðlaugs og hennar Láru, konunnar hans, Giljur, stendur rétt austan við Mos- hvolsásinn í Hvolhreppi, vinalegur, lítill bustabær með fríðri fjallasýn. Guðlaugur Bjarnason er fæddur 11. ágúst 1889, og kona hans, Lára Sigurjónsdóttir, er fædd 11. maí 1894. Við settumst sitt hvoru megin við eldhúsborðið á Giljum, ég og hann Guðlaugur, eina aftanstund í sum- ar og létum hugann reika til löngu liðinnar tíðar, með- an klukka landsins gekk enn hægt. Það færðist hýruglampi í augun á þessum aldna heiðursmanni þegar ég spurði hann um aðdragandann að því, að hann réðist til Hans pósts Hannessonar, og hann hóf frásögn sína lágri, yfirlætislausri röddu: „Látum okkur nú sjá: — Þá er fyrst til að taka, að vetrarvertíðina 1913 var ég háseti á skútu, sem hét Björn Ólafsson frá Reykjavík, og endaði sú skútuvera með því, að skipið strandaði við Örfirisey í rjóma- sléttum sjó, en slæmu skyggni vegna snjómuggu. — Skútunni varð ekki bjargað og upp úr þessu varð ég atvinnulaus um tíma. A góðviðrisdegi varð mér gengið upp Skólavörðu- stiginn og yfir Skólavörðuholtið framhjá skólavörð- unni, þar sem nú gnæfir Hallgrímsturn við himinn. Ég tók stefnu á býlið hans Hans pósts, sem stóð þarna eitt húsa í Holtinu, en nú mun þar standa hús, sem er nr. 25 við Leifsgötu. Þarna á þessum slóðum var tekið mikið uppfyllingarefni í Reykjavíkurhöfn, bæði grjót og möl, og var gengið nærri Hanshúsi eins og það var nefnt, og stóð það síðast eins og á háum hól. Grjótið og mölin var flutt á þeirri einu járnbraut sem á íslandi hefur gengið. Þegar ég kom í fyrsta skipti til Hans pósts, var hann að kemba hestum sínum inni í hesthúsi, og stóðu þar 388 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.