Heima er bezt - 01.11.1970, Síða 14

Heima er bezt - 01.11.1970, Síða 14
HINRIK A. ÞÓRÐARSON: PRESTUR I PISLARSTOL Framhald Einhvern veginn hefur það náð festu í hugum manna, að séra X’aldimar hafi litið niður á séra Brynjólf, og gert grín að honum. Bréf sem til eru og Valdimar skrifaði sem prófastur um málefni Brynjólfs og ákærur á hann, afsanna þetta með öllu. Auðséð er á þeim bréf- um, að þeir hafa verið mjög góðir kunningjar. Pró- fastur segir Brynjólf gáfaðan og fjölfróðan, góðan ræðu- mann, sem geri öll prestsverk lýtalaust. Vitað er að þeir skiptust á ræðum, en það mun hafa verið algengt á þeim tíma hjá nágrannaprestum, þar sem gott var í milli. En séra Valdimar var allra manna lagnastur, með við- ræðum sínum við séra Brynjólf, að ná út úr honum þeim snjöllu tilsvörum sem hann var frægastur fyrir. En það var nokkuð sem skáldið kunni vel að meta, og sparaði ekki að segja frá. Eitt sinn var séra Valdimar á leið heim til sín frá Reykjavík. Kom hann þá við á Ólafsvöllum, því leiðin lá þar ekki fjarri garði. Þetta var á þeim tíma, sem Al- þingi stóð yfir. Sér Brynjólfur spurði strax frétta og gekk fast eftir. Segir þá Valdimar með þungum áhyggjusvip, að sums staðar í útlöndum sé búið að setja það í lög, að drekkja öllum pokaprestum. Og nú ætli þeir hér á Alþingi að apa þetta eftir. Liggi fyrir þinginu frumvarp um þetta efni, og þurfi ekki að efa að það verði samþykkt. Brynjólfur varð alvarlegur við þessi tíðindi, en sagði þó í huggunartón: „Vertu óhræddur séra Valdimar, þeir taka þig ekki. Þú ert hreint ekkert verri en ég.“ Fyrir kom það, að séra Valdimar messaði á Ólafsvöll- um, og tók þá stundum til altaris séra Brynjólf og aðra þá er trúðu, eða þóttust trúa á þann viðurgerning. Einu sinni þegar Valdimar hafði lokið messu á Ólafs- völlum, gekk Brynjólfur til hans og spurði með óræðum svip: „Óaði þér ekki að segja ,Drottinn sé með yður‘ yfir þessum skríl? (Sumir segja: yfir Skeiðamönnum). Prófasti varð svara fátt og þagði. Þá sagði Brynjólfur, svo sem eins og við sjálfan sig: „Þögn er sama og sam- þykki. Jú, honum óar, honum óar.“ Séra Pétur, tvíburabróðir Brynjólfs, var lengi prestur á Kálfafellsstað í Öræfum. Á vorin tók hann sér stund- um ferð á hendur til Reykjavíkur. Er það löng leið og vötn .11 yfir að fara. Á þeim ferðum kom hann við á Ólafsvöllum, því það var lítið úrleiðis, og dvaldi hann þar jafnan nokkra daga. Eitt sinn var Pétur á slíkri ferðareisu og dvaldi þá um tíma á Ólafsvöllum. Þeim bræðrunum kom þá saman um það, að nota tækifærið og Pétur messaði í Ólafs- vallakirkju, meðan hann hefði viðdvöl á staðnum. Boð- uðu þeir til messu á næsta sunnudegi, en með fremur litlum fyrirvara. Laugardaginn næsta á undan lentu svo prestarnir báð- ir í gleðskap nokkrum, sem stóð langt fram á kvöld. Hafði Pétur orð á því við bróður sinn, að hann mætti ekki vera að þessu. Sagðist þurfa að semja ræðu fyrir morgundaginn. Brynjólfur tók dauft í það og sagði: „Blessaður góði, hafðu engar áhyggjur. Ég á nóg af ræðum handa þér.“ Lét Pétur sér það vel líka. Morguninn eftir kom Brynjólfur með stóran bunka af ræðum, og lagði á borðið hjá bróður sínum. Tók séra Pétur efstu ræðuna í bunkanum til flutnings, án þess að skoða nokkuð innihaldið. Fjöldi fólks kom til kirkju, því marga rak forvitnin til að sjá og heyra séra Pétur. Er svo frá sagt, að þegar prédikun hófst, hafi séra Brynjólfur ókyrrzt nokkuð í sætinu og hvimað augum um kirkjuna, svo sem til þess að athuga hvemig fólkið tæki ræðunni. Sást þar ekkert óvenjulegt og kyrrðist hann þá aftur. Eftir messu spurði hann Ólöfu hvernig henni hefði fallið ræðan. Lét hún vel yfir og taldi mikinn mun á prestsskap þeirra bræðra. Þá brosti Brynjólfur og sagði: „Ræðan var nú eftir mig, og það var páskaræða. Og fyrst að þú tókst ekki eftir því, þá hefur enginn gert það. En til hvers er að vera að messa yfir svona fólki?“ Aftur messaði séra Pétur á Ólafsvöllum þegar hann var þar á ferð, og varð ekkert sögulegt við það, nema Brynjólfur brá ekki venju sinni og spurði Ólöfu hvern- ig henni hefði fallið ræðan. Ólöf hrósaði séra Pétri og taldi hann miklu skörulegri og betri prest en Brynjólf. Varð þá presti að orði: „Ógurlegur kjáni! Sjónin ekki betri en heyrnin.“ Ætlaði hann að segja eitthvað meira, en hvarf frá því og gekk hlæjandi burtu. Ekki er vitað hvað það var, sem Brynjólfur hætti við að segja. En einhvern veginn barst það út, að af svari hans til Ólafar mætti ráða, að séra Pétur hefði ekki messað á Ólafsvöllum daginn þann. Vel mátti það vera, Framh. á bls. 400 598 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.