Heima er bezt - 01.11.1970, Page 17

Heima er bezt - 01.11.1970, Page 17
JÓN GUÐMUNDSSON, SKÁLDSSTÖÐUM: ásö^u (Framhald) HOFSSTAÐIR Með úlfi skjálga kom út maður sá, er Hallur hét, ættstór og mikilhæfur. Hann bjó á Hofs- stöðum og reisti þar hof mikið. Sonur hans hét Rauður og bjó í Rauðsdal á milli Hofs- staða og Berufjarðar. Sá dalur heitir nú Stekkjadalur og er á Hofsstaðahálsi, skammt fyrir ofan Hofsstaði, sér þar glöggt fyrir bæjarstæði, en í þeim Rauðsdal, sem nú heitir og liggur að norðanverðu inn í Hofsstaðaháls, er ekkert bæjarstæði og hefur aldrei bær þar verið. Á milli Kinnarstaða og Hofsstaða er kelda sú er Gull- kelda heitir. Þar á Gull-Þórir að hafa sökkt kistum sínum í er hann fann í Valshelli. Keldan er mjög djúp og hefur aldrei verið kannað hvort gullkistur Þóris væru á botni hennar eður ei. Eins og fyrri segir var hof á Hofsstöðum í heiðnum sið. Á miðöldum var þar reist bænhús frá Staðarkirkju Hofsstaðir. og hefur það staðið á hóli þeim í túninu, þar er Bæn- húshóll heitir. Það hörmulega slys vildi til á Hofsstöðum 17. júlí 1863, að bóndinn þar, Illugi Björnsson, drukknaði við að synda hestum í vogi þar skammt frá er Hofstaðavog- ur heitir. Nánari atvik voru þau, að Illugi ætlaði að synda hestum sínum út yfir voginn úr nesi því er Kross- nes heitir. Lagði hann beizli við fjögra vetra hryssu, er hann átti, grip af úrvalskyni, og ætlaði að ríða henni á eftir hestunum yfir voginn. Háflæði var og mikið í voginum. Hafði hryssan ekki þrek til að synda yfir vog- inn og létu þau þar bæði líf sitt. Illugi var 36 ára er hann lézt. Þrettán árum síðar, 6. apríl 1876, drukknaði sonur hans, Kristmundur að nafni, í brimlendingu á Hjalla- sandi, hann var háseti Snæbjarnar í Hergilsey og átti þá heima í Svefneyjum. Maður á bezta aldri. 5. marz 1882 varð úti á Þorskafjarðarheiði Björn Magnússon sonur Magnúsar Björnssonar bónda á Hofs- stöðum. Björn var um tvítugt er hann lézt (sjá Múla). Heirna er bezt 401

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.