Heima er bezt - 01.11.1970, Side 18

Heima er bezt - 01.11.1970, Side 18
Foss í Hlíðará. Jörðin Hofsstaðir voru metnir á 16 hundruð að dýr- leika. Sumarhagar góðir, kolaskógur nokkur (Garpdals- kirkja átti um langan aldur skógarítak á Hofsstöðum). Tún sæmilegt, en engjaheyskapur rýr. Nú er jörðin metin samkv. fasteignamati 1956—57: Land á 3.400.00 kr; hús á 1.400.00 kr. Alls á 4.800.00 krónur. Hýsing er léleg, en tún allgott, 6.77 ha, véltækt. HLÍÐ I~|r líðar er lítið getið í Þorskfirðingasögu, aðeins ---11 það, að Gull-Þórir hafi haft þar annað bú sitt. í Landnámu segir, að Ingjaldur Hergilsson, er bjó í Hergilsey og veitti Gísla Súrssyni, fyrir hvað gerði Börkur hinn digri af honum eyjarnar, en hann keypti þá Hlíð í Þorskafirði og bjó þar síðan. Jörðin Hlíð var metin 24 hundruð að dýrleika, tún sæmilega gott og útengjaslægjur víðlendar en ei að sama skapi grasgefnar. Málnytjar voru þar í bezta lagi og úti- gangur góður á vetrum þá eigi var harðæri. Skammt fyrir innan túnið í Hlíð er gömul hjáleiga er hét Hlíðarkot. Það fór í eyði 1784? Hefur þar verið mun skemmtilegra bæjarstæði en heima í Hlíð. Munnmæli segja, að einnig hafi verið býli á milli Hlíð- ar og Laugarlands, á Hlíðahlíð, en á hvaða tíma er nú eigi vitað. Þann 28. janúar 1758 varð úti Jón Guðmundsson frá Hlíð, 18 ára, nánari atvik eru ókunn. Þann 2. september 1818 fannst rekinn Sveinn Þor- leifsson. Drukknaði 15. ágúst það ár. Meinast fallinn af hesti í sjóinn á ferð sinni inn með Þorskafirði, líklega skammt frá Hlíð. Árið 1882 lenti ungur maður frá Hlíð í hrakningum á Þorskafjarðarheiði. Hann hét Daníel Júlíus Jónsson, en þess er nánar getið í þættinum um Múla. Á seinasta tug 19. aldar bjó í Hlíð sá maður, er hét Daníel og var Daníelsson. Það bar svo til eitt sinn síðla dags, um vetur, að Daníel skrapp fram að Kinnarstöð- um einhverra erinda. Veður var vont, hríðarkóf og all- mikill snjór á jörðu. Bar ekkert til tíðinda á leiðinni fram eftir, en þá er hann hélt heimleiðis var komið nátt- myrkur og hríðarveður, og það svo dimmt, að þegar hann var kominn nær miðja vegu á milli Kinnarstaða og Hofsstaða, treysti hann sér ekki til að rata lengur. Hafðist hann við um nóttina í Krossnesinu og kól til skemmda á öðrum fætinum. Gekk hann haltur æ síðan. Allt frá því að menn sáu anda Gull-Þóris hverfa í drekalíki inn í fjallið fyrir ofan bæinn í Hlíð, hafa verið uppi ýmsar sagnir um að hulduverur ættu sér þar byggðir og bú. Skammt fyrir innan bæinn í Hlíð er á, er Hlíðará heitir, í henni er tvítugur foss, niður af hon- um er svokallaður Árdalur, þar er brött brekka, sem eigi mátti slá, því þá hlutust stór áföll af. Á 18. öld bjó í Hlíð bóndi er Árni hét. Kona hans hét Margrét. Er hún gekk með síðasta barn sitt dreymdi hana að til sín kæmi álfkona, er Jaktþrúður hét, og bæði hana að láta barnið, það er hún gengi með, bera nafn sitt. Margrét vildi verða við bón hennar en Árni ekki. \rar því barnið ekki látið bera heiti álfkonunnar. Segir þjóðsagan að bæði konan og barnið yrðu skammlíf. Á meðan Árni þessi bjó í Hlíð er það haft eftir hon- Framh. á bls. 415 Hlið. 402 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.