Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1970, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.11.1970, Qupperneq 31
— Hvað amar að þér, vina mín? spyr hann blíðlega. — Getur þú ekki sofið? — Ég er svo hrædd. — Við hvað ertu hrædd? — Við það, sem ég sá í stóra, ókunna húsinu áðan. — Nú, þig hefir þá verið að dreyma einhverja vit- leysu og orðið hrædd í svefninum. — Það var engin vitleysa, pabbi. Ég sá þig og mömmu í ókunna húsinu, og það var svo hræðilegt. Allir svörtu skuggarnir ætluðu að taka mömmu og líka Gerði á neðri hæðinni og hitt fólkið, sem sat við borðið, og var að drekka úr glösum. — Svona, svona, vina mín. Nú eru mamma og pabbi komin heim til þín og ekkert að óttast. Nú skaltu sofna aftur, og ég skal halda í höndina þína á meðan. — En ég ætla samt að lesa kvöldversin mín, áður en ég sofna, og biðja Guð og góðu englana hans að vaka hjá mér, eins og amma gerði, svo að mig dreymi ekki aftur svona ljótt. — Já, það skaltu bara gera, vina mín. Hrafnhildur litla ýtir sænginni til hliðar og réttir pabba höndina. Hann er alltaf svo góður og skilnings- ríkur. En þó er eitthvað óviðfelldið í bjarta svipnum hans núna, sem hún vildi geta þurrkað burtu, hún vonar, að það verði horfið þaðan á morgun. Síðan hefur hún lestur á kvöldversunum sínum. Frú Lísa er byrjuð að afklæðast við hjónarúmið. Hendur hennar er óstyrkar og fálmandi, þegar hún leggur frá sér samkvæmisklæðnaðinn, en svo leggst hún til svefns án þess að yrða á mann sinn eða dóttur. Og brátt er hún sofnuð þungum svefni. Hrafnhildur litla hefir lokið bænalestrinum sínum, og eftir örskamma stund er vitund hennar svifin inn á björt og fögur draumalönd. Eiður forstjóri sér, að litla stúlkan hans er sofnuð, og hann leggst þá einnig til hvíldar, þreyttur eftir óhollar lystisemdir, sem hann í raun og veru er ekkert sólginn í, en sem háttvís eigin- maður og félagi verður hann að fylgjast með tízkunni. Brátt hvílir öll fjölskyldan í djúpum svefni, og allt er hljótt. En þessi nótt hefir marlcað þau spor í sál Hrafnhildar litlu, sem aldrei framar mást þaðan.... II Ólíkar leiksystur Vordagurinn er bjartur og fagur. Sól skín í heiði, og jörðin angar af ferskum gróðri. Leiksysturnar, Hrafn- hildur og Lóa, dóttir hjónanna á neðri hæðinni, eru tvær saman að leik úti í stórum garði umhverfis heimili þeirra. Þeim er ætlað þar rúmgott, afgirt svæði til úti- leikja sinna, og þar eru þær öruggar. Frúrnar í húsinu, mæður þeirra, eru nýfarnar niður í borgina í verzlunarerindum, en litlu stúlkurnar höfðu lofað þeim því, að vera kyrrar heima og leika sér fall- ega, á meðan þær væru fjarverandi. Framhald. BREFASKIPTI Jóhanna Sigrún Thorarensen, Gjögri, Strandasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 19—21 árs. Elva Thorarensen, Gjögri, Strandasýslu, óskar eftir bréfaskipt- um við pilta og stúlkur á aldrnum 15—17 ára. Jóna Ingibjörg Bjarnadóttir, Gjögri, Strandasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Ingibjörg Þórarinsdóttir, Straumi, Hróarstungu, N.-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 16—20 ára. Þorsteinn Steingrimsson, Selá, Skaga (um Sauðárkrók) óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 30—35 ára. Mynd óskast með fyrsta bréfi. Helgi Þ. Friðjónsson, Rauðalæk 9, Reykjavík, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Frá bæjum í Reykhólasveit Framhald af bls. 402 --------------------------- um, að á hverju hausti kæmi karl einn frá fossinum í Hlíðará og gengi í kringum hey sín og væri hann frem- ur svipþungur ef vissi á harðan vetur, en væri hann með glöðu bragði þá vissi það á góðan vetur, og kvaðst Árni haga ásetning sínum eftir því. Margar slíkar sagnir mætti segja frá Hlíð, því flestir þeir bændur, sem hafa búið þar, telja sig hafa orðið vara við álfa og huldufólk. Síðasta húsfreyjan í Hlíð, Kristín Daníelsdóttir, sagði mér, að hún hefði oft séð huldufólk í Hlíð. Og um yngri son sinn, Guðmund, sagði hún mér eftirfarandi sögu: Það var að vetrarlagi eitt sinn í rökkurbyrjun, er Guðmundur var ungur drengur, að hann var staddur upp hjá fjárhúsum, er stóðu á hjalla efst í túninu. Er hjalli sá kallaður Traðir (þaðan er skammt að Hlíðará), sér Guðmundur þá að til hans kemur maður, sem hann ber engin kennsl á. Maður þessi kemur svo nálægt honum, að hann hyggst heilsa honum. Réttir Guðmundur hönd sína að mann- inum til kveðju, en þá bregður svo kynlega við, að maðurinn hverfur og sér Guðmundur ekki meira eftir af honum. Verður honum mjög bilt við og hleypur sem skjótast til bæjar yfirkominn af hræðsíu og var lengi að ná sér eftir þennan atburð. Engin skýring fékkst á þessu atviki. Jörðin Hlíð er metin samkv. síðasta fasteignamati 1957: Land á 6.800.00 kr.; hús á 5.200.00 kr. Alls á 12. 000.00 krónur. Tún sæmilegt. Hlíð fór í eyði haustið 1959, og má búast við að hún byggist ekld fyrst um sinn. Framhald. Heima er bezt 415

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.