Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Qupperneq 6

Heima er bezt - 01.03.1987, Qupperneq 6
Áskell á Skugga sinum. Myndin var tekin við Laugaskóla 1943. komst því heldur hrapallega úr takt við kórinn. Mér brá skelfilega við þessi mistök mín, en lærði mikið á þeim. — Áður en lengra er haldið, langar mig til að spyrja þig um framtíðaráform þín á unglingsárum. — — Mér er óhætt að segja, að þau hafi verið næsta óljós. Það hljómar ef til vill sem ábyrgðarleysi að segja, að lífið hafi gengið þar eins og af hendingu. En sjóndeildarhring- urinn þarna inn við öræfin afmarkaði sérstakan heim, sem ég undi þá vel við. Ég var snemma hændur að sauðkindinni eins og fleiri ættmenn mínir, sem eru margir hverjir óvenju glöggir fjármenn og voru a.m.k. áhugasamir um ræktun sauðfjár. Á heimaslóðum mínum var, að því er ég best veit, myndaður fyrsti félagsskapur til kynbóta sauðfjár hér á landi, en það var um miðja 19. öld. Og ég hafði gaman af að ganga við fé, en ól þó ekki í brjósti neina búskapardrauma. Það var líka augljóst, að nógir voru til þess að taka við búi á Mýri. Þegar ég fann sjávarlykt í fyrsta sinn En til marks um það, hversu lokuð þessi bernskuveröld mín var, þá hafði ég ekki komið á alla bæi í sveitinni fyrr en löngu eftir fermingu. í kaupstaðarferð fór ég í fyrsta sinn árið 1922, þegar ég var 11 ára gamall. Þá þurfti ég að fara til augnlæknis á Akureyri. Mamma fór ein með mér og að sjálfsögðu fórum við ríðandi heiman frá Mýri og sem leið lá yfir Vallnafjall vestur um skarð það, er löngum hefur verið talið Hellugnúpsskarð, sem nefnt er i Ljósvetningasögu. Komum við þá niður í Fnjóskadal skammt sunnan við Sörlastaði. Nokkru norðar var þá bærinn Belgsá, sem nú er í eyði. Þar bjó þá Karl Kristjánsson, Ingjaldssonar frá Mýri, frændi mömmu. Er mér í minni, hve vel var tekið á móti okkur þar á báðum leiðum. Þessi mæti frændi okkar, Karl, fórst síðar í snjóflóði skammt frá bænum 4. mai 1929 aðeins 38 ára. Einkasonur hans er Stefán Karlsson handritafræð- ingur, starfsmaður stofnunar Árna Magnússonar. Við héldum þá samdægurs áfram yfir Fnjóská og vestur yfir Vaðlaheiði um Bíldsárskarð. Það var mér ógleymanleg og töfrandi sýn, þegar við komum vestan í Vaðlaheiði og ég sá þá sjóinn í fyrsta sinn. Það dró heldur ekki úr áhrifum þess atburðar, að rétt um sama leyti og við sáum yfir Eyja- fjörð þá flautaði skip á Pollinum innan við Oddeyri. Þetta var stórkostlegt ævintýr fyrir daladrenginn og einstæð reynsla, þegar ég síðan fann sjávarlyktina í fyrsta sinn og sá risastór tré í Gróðrarstöðinni og í gömlum skrúðgörðum í Fjörunni. En ég man að við gistum í Fífilgerði, áður en við héldum vestur yfir Leirurnar. Annað, sem mér er minnis- stætt úr þessari fyrstu kaupstaðarferð, var það, að mamma hafði frétt að von væri á Sigurði Nordal norður til Akur- eyrar um þetta leyti. Þar átti þessi ungi lærdómsmaður, sem þegar var þjóðkunnur, að flytja bókmenntafyrirlestur. Veit ég að mamma hagaði för okkar þannig, að hún yrði stödd þennan dag á Akureyri. Hún var mjög bókmenntalega sinnuð og áreiðanlega nutu aðrir þess, þegar hún kom heim og endursagði fyrirlestur Nordals í baðstofunni á Mýri. — Þú sagðir áðan frá þeirri tónlistarfræðslu, sem faðir þinn veitti þér. Fékkstu ekki aðra tilsögn í orgelleik? — — Jú reyndar. Skömmu eftir áramótin 1927 gekk ég frá Mýri inn á Akureyri og var þar í einn mánuð hjá Sigurgeir Jónssyni við orgelnám. Það var notadrjúgur tími, því Sig- urgeir var fágætlega snjall kennari. Og meðan ég dvaldi á Akureyri í það sinn átti ég þess kost að hlusta á Karlakórinn Geysi, sem var skipaður ýmsum kunnum söngmönnum, sem sumir áttu eftir að láta mikið að sér kveða. En það var ekki Ingimundur Árnason, sem stjórnaði kórnum í þetta sinn, heldur Benedikt Elvar. Hann hafði æft hann þennan vetur. Þetta var áhrifamikill konsert fyrir heimalning eins og mig og hann glæddi áreiðanlega þá löngun til söng- stjórnar, sem átti eftir að rætast áður en mjög langur tími leið. Kvaddur til söngstjórnar og ráðsmennsku Haustið 1930 fór ég til náms á Alþýðuskólann á Laugum. I tómstundum komu nemendur þá gjarnan saman og sungu. Einhvern veginn vildi svo til, að það kom í minn hlut að hafa forystu um þessar söngæfingar og fyrr en mig varði var ég farinn að slá taktinn. Arnór Sigurjónsson skólastjóri fylgdist með þessu af nokkrum áhuga og svo kom, að hann og skólanefndin töldu ástæðu til þess að borga mér fyrir þessa söngþjálfun. Ég var á Laugum til vorsins 1932. Þá gerðist það tveim árum síðar, að Jón bóndi Sigurðs- son á Yztafelli, sem verið hafði formaður skólanefndar Laugaskóla um 10 ára skeið, tók að sér forstöðu fyrir hér- aðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði haustið 1934. Ástæð- 78 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.