Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 9
Fjölskyldan í Þingvallastrœti 34. Frá vinstri: Hörður, Gunnhildur,
Rósa, Lúðvik, Sigurbjörg, Áskell, Aðalbjörg, Freyr ogJón Hlöðver.
aðstoðað föður sinn við organistastörf síðustu árin; Freyr
rafvirki, sem starfar hér við Rafmagnsveitur ríkisins; Rósa
er meinatæknir og er búsett í Osló; Aðalbjörg stundar
fóstrustörf á Akureyri; Hörður orgelleikari í Reykjavík,
sem áður er getið; Lúðvík er blikksmiður hér á Akureyri og
Gunnhildur er fóstra búsett í Osló.
smalahundinn og gaf honum dreitil í hundadallinn. En
hundurinn vildi ómögulega lepja brennivínið. Kvað Þor-
steinn það í eina skiptið, sem hundurinn hefði ekki gegnt
sér. En þegar reynt hafði verið til þrautar, þá tók karlinn
dallinn og renndi niður dreitlinum. Þetta var grátbrosleg og
lifandi frásögn og út af henni lagði Þorsteinn síðan á
áhrifaríkan hátt. — Þorsteinn M. lét sér alltaf annt um hag
kennara skólans. Hann var, sem kunnugt er, um langt skeið
í bæjarstjórn Akureyrar og forseti hennar lengi.
Einhvern tíma mælti hann með því, að ég yrði valinn i
undirkjörstjórn. Ég færðist undan þessu við Þorstein, taldi
þetta alltof pólitíska nefnd fyrir mig, enda margir, sem
sóttust eftir sætinu. Þorsteinn hló og sagði: „Það eru engir
nema heiðarlegir menn valdir í nefndina og þú ert með
mörg börn á framfæri þínu og þarna færðu auk þess dá-
litlar „sporslur“, sem hljóta að koma sér vel.“ Það þýddi
ekkert að andmæla frekar. Á samstarfsárum okkar Þor-
steins pantaði ég mér landbúnaðarjeppa. Það var alls ekki
auðvelt fyrir kaupstaðarbúa, svo ég bað Þorstein M. að tala
við formann þeirrar nefndar, sem sá um úthlutun. Tók
hann því vel og sagði mér síðar, að formaðurinn hefði verið
tregur, en spurt sig jafnframt, hvort hann hefði ekki sjálfur
hug á því, að fá sér jeppa. Þorsteinn svaraði þá: „Nei, nei,
blessaður vertu, en ég ætla svo sem að hafa gott af þessu.“
Ég fékk jeppann og við Þorsteinn hlógum mikið að þessum
viðskiptum.
ég ætla svo sem að hafa
gott af þessu . .
Starfssvið mitt við Gagnfræðaskólann var tvíþætt, tón-
menntakennsla og húsvarsla. Á þeim árum byrjaði hver
dagur í skólanum á morgunsöng. Nemendur komu allir
saman í anddyrinu og ég gaf þeim tóninn, sem reyndist
ýmsum erfiður svo snemma dags, en var áreiðanlega
mörgum til andlegrar heilsubótar. Þá var Þorsteinn M.
Jónsson skólastjóri Gagnfræðaskólans og féll mér þegar
ákaflega vel við hann og það álit hélst meðan leiðir okkar
lágu saman. Þótt rödd Þorsteins væri skert af hálsmeini, þá
er hann einhver áhrifamesti ræðumaður, sem ég hef hlýtt á
og veit ég að allir, sem til þekktu, eru mér sammála um það.
í hvert sinn, sem hann hélt ræðu í skólanum, þá hlýddu allir
á með slíkri athygli að aldrei varð neitt til þess að trufla og
hvert orð heyrðist. Þessi hvíslandi rödd heyrðist út í hvern
kima. Unga fólkið hlustaði þá svo vel, að það hefði mátt
heyra saumnál detta, þegar ræðumaður gerði hlé á máli
sínu. Þorsteinn sagði mér eitt sinn, að þegar hann undir-
byggi ræðu, þá gerði hann sér hring og merkti inn á hann
öll aðalatriði frá upphafi til enda og þá gætti hann þess
jafnframt, að enda við upphafið. Engan mann hefi ég heyrt
flytja jafn skynsamlega og áhrifamikla bindindisræðu og
Þorstein M. Jónsson. Hún verður ekki endursögð hér, en
fólst í bernskuminningu frá Útnyrðingsstöðum á Héraði, er
hann vakti þar yfir vellinum og tók þá á móti drukknum
gesti, sem vildi endilega fá drenginn til þess að þiggja
brennivínssnafs. Þegar það gekk ekki reyndi hann við
Stærðfræði- og söngkennsla
Ég starfaði raunar með fjórum skólastjórum við Gagn-
fræðaskólann og féll vel við þá alla. Eftir Þorstein M. kom
Jóhann Frímann, sem lengi hafði verið kennari þar. Það
var árið 1955 og hann var skólastjóri í níu ár. Þá voru þar
við stjórnvöl frændur mínir tveir, ættaðir frá Stóruvöllum í
Bárðardal; Jón Sigurgeirsson, sem var settur til eins árs, en
hann var lengst skólastjóri Iðnskólans á Akureyri, og svo
Sverrir Pálsson bróðursonur hans, sem hefur senn stjórnað
skólanum í aldarfjórðung. Við Sverrir höfum starfað mikið
Kantötukórinn flytur íslensk lög undir stjórn Askels í Haga við
Stokkhólm sumarið 1951.
Heima er bezt 81